Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Page 12

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Page 12
10 STÚDENTABLAÐ hafi svarað: „Guten Abend, womit kann ich dienen“. Þarna er ráðið hugsaði ég. Síðan sagði hann mér, að gistihús, sem hæfði pyngju minni væri á næstu grösum og að sporvagnar væru hættir að ganga, því að komið væri fram yfir miðnætti. Lögregluþj ónninn hefir auðsjáanlega hald- ið að ég væri Frakki, þegar ég yrti á hann á frönsku, en þá var fyllsta kurteisi frá lians hálfu sjálfsögð og frönsku kunni hann ekki, og var þá ekki annað að gera en að nota þýzkuna. Ég frétti það seinna, að nokkrum dögum áður en ég kom, hefði aukizt svo mjög andúðin gagnvart Þjóðverj- ism í Praha, að stappaði nærri óeirðum. Orsakaðist það af því, að það var eins og þá hafi allt í einu runnið upp fyrir Tjekk- anum, að hljómmyndin „Zwei Herzen im Dreivierteltakt“ bæri þýzk, en ekki tjekk- nesk framleiðsla, en hún hafði verið sýnd undanfarna 4 mánuði í beztu kvikmynda- húsum borgarinnar við mikla aðsókn. Þá var Tékkanum nóg boðið, hann blátt áfram gerði uppreisn gegn myndinni. Uppreisn sú datt svo úr sögunni, þegar búið var að brjóta rúðurnar í flestöllum, þýzkum, opin- berum byggingum borgarinnar. Já. — Það er Praha, höfuðborg Cesko- slovensko, borgin, sem aðeins hefir vinning- inn á við Kaupmannahöfn, um íbúafjölda. Borgin, sem liggur í hvilftinni á miðri Bæ- heimssléttunni; þar sem einstakir menn, þjóðir og heilir þjóðflokkar — allt frá því að sögur hófust og fram á vora daga — hafa borist á banaspjótum út af trúmálum, þjóðernismálum, landamerkjamálum eða ómerkilegum nábúakrit. Það er þarna, sem síðasti þáttur undir- búnings undir þrjátíuárastríðið var leikinn, þegar sendimönnum keisarans var varpað út um glugga hallarinnar á Hraein-hæðinni, þar sem nú býr Mazaryk forseti unga tékk- neska lýðveldlisins, einn af forsetunum á ní- unda aldurstugnum. Það er Praha, borgin þar sem gyðingar geta rekið sína starfsemi, bæði leynt og ljóst alveg óhindraðir. Þar sem hebreskar auglýsingar eru leyfðar á strætum úti, en ekki þýzkar. Tékkarnir snúa andúð sinni til Þjóðverjanna og segja, gjalda skal glíku glíkt; áður lcúguðu Þjóðverjar okkur, en á meðan hafa Gyðingarnir frið. í Praha er og íjöldi Ameríkumanna, Englendinga og Frakka, eru þeir síðastnefndu þar í háveg- um hafðir, því að Tékkarnir trúa því, að þeir eigi þeim að þakka sjálfstæði sitt. liússar, Búlgarar, Serbar og Afganar eru og fjölmennir í Praha, en minni virðingar njóta þeir hjá frændum sínum Tékkunum heldur en Vestur-Evrópuþjóðirnar. Praha er einn af elztu háskólabæjum í Ev- rópu. Stúdentalíf mun vera meira og fjöl- breyttara þar en í nokkurri annari borg. Þar má í stúdentahóp sjá fulltrúa fjarlægustu heimsálfa, hreinræktaða Mongóla austan úr Asíu, Indvei'ja, hrokkinhærða Astralíunegra og Hottintotta, Indíána og Kreola, að ógleymdum öllum svipbrygðum norðurálfu- kynflokkanna. Þegar stúdentinn er kominn til Praha, ier hann beina leið upp á skrifstofu stúd- entaráðsins tékkneska. Þar gefur hann upp þjóðerni, nafn og heimilisfang, en í staðinn fær hann einskonar aðgangskort (Legitima- tion), sem hann svo framvísar í verzlununi, matstofum, kvikmyndahúsum og leikhúsum ef hann þarf eitthvað að kaupa og fær drjúgan afslátt. Frá íslandi! sagði ráðið þegar að mér kom, það könnuðust þeir alls ekki við. Ég bað þá að taka fram landakortið, nú þar var þá hvorki norðurhluti Svíþjóðar, Nor- egur né ísland tekið með. Þá sagði ég þeim, að það væri landið, sem hefði haldið 1000 ára afmæli Alþingis hátíðlegt á síðastliðnu sumri; nú, það könnuðust þeií við, þó vildu þeir seint hverfa frá þeirri villu, að landið væri nýlenda frá Danmörku eða Englandi. Einn aðalþátturinn í stúdentalífinu eru veizlurnar, sem rikið heldur í samráði við stúdentaráðið tékkneska, fyrir erlenda stúd- enta. Er þangað boðið 1—2 fulltrúum frá

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.