Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Blaðsíða 15

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Blaðsíða 15
STÚDENTABLAÐ 13 Stakan og Islendingar. i. Islendingar geta ekki stært sig af mörg- nm nýjungum á bókmenntasviðinu. Allt frá ])\\, er forfeður vorir skópu hina dýru háttu á söguöldinni og sögurnar síðar, er svo al- mennt talið, að fátt nýstárlegt spretti upp hjá oss í fásinninu. Þessu er þó ekki fylli- lega svö faiáð. Merkileg nýjung kemur í ljós um miðja 14. öld, rímurnar, þá er farið að yrkja undir nýjum háttum, rímnahátt- um. En hvort sem hér er að einhverju leyti að ræða um áhrif af erlendum miðalda- kvæðum (danzkvæðunum), er • hér um al- gerlega nýtt ísienzkt form að ræða. Þessir nýju hættir eru síðan, að minnsta kosti fyrst um sinn, eingöngu notaðir til að yrkja söguljóð undir. Enda þótt í rímum fyrri alda mörgum hverjum sé fremur lítill skáldskapur, er þó vert að athuga það, að þær ásamt kaþólskum helgikvæðuin og lúterskum sálmum eftir siðaskiptin eru næstum hið eina andlegt fóður þjóðarinnar í rúmar 5 aldir. Með árás Jónasar Hall- grímssonar gegn Sigurði Breiðfjörð er oft svo talið, að rímurnar hafi fengið það hol- undarsár, er riðið hafi þeim að fullu. Svo er þó ekki í raun og veru. I fyrsta lagi voru rímur ortar allt fram að aldamótunum 1900 eða jafnvel lengur og eru kveðnar enn í dag. Auk þess er það hinn nýi andi nýs tíma, sem er að drepa á dyr, og Jónas er aðeins einn af boðberum hans. Án Jónasar htfðu örlög rímnanna orðið hin sömu. II. Fátt er svo dásamlegt eins og stakan. Upp úr flatneskju rímnanna hefur hún sig eins og obeliski á sandauðn, lítil og veik — styrk og voldug. Liðug í snúningum eins og gáskafullur lækur á vordegi í fjallshlíð, sterk og markvís eins og vopn afreksmanns- ins. Hún klappar manni þýðlega á vangann, eins og skáldið Þorsteinn Erlingsson segir: þær eru margar lærðar lítt, leita skammt til fanga, en þær klappa yndisþýtt eins og böm á vanga. Hún svæfir litlu börnin með ljúfum og látlausum hreimi. — Aðeins andartak. Stak- an er orðin magnþrungin, hvöss og ádeilu- gjöm, þung eins og foss í vorleysingu, hár- beitt eins og spjótsoddur. Ferskeytlan er Frónbúans fyrsta barnaglingur. En verður seinna í liöndum hans hvöss sem byssustingur, segir líka Andrés Björnsson. Á löngum og torsóttum ferli hefir ríman og stakan fylgt íslengingnum sem góður og tryggur félagi. I raunum sínum og bág- indum hafa menn ort og raulað stökur sér til hughægðar. I aðdáun sinni á náttúrunni, lmdahjali og lækjanið, þrastasöng, sólrisi og seiðandi fjallavötnum sem hrikalegum hörmum, frostum og fannkyngi hefir stak- an reynzt öruggur boðberi hugsananna. Æskumaðurinn liefir hvíslað henni í eyru ástmeyjar sinnar. Hestamaðurinn hefir lcveðið hana um hestinn sinn. Fjörkippir gæðingsins og vasapelinn juku dýpt tón- anna og magn kveðandinnar. Þeir, sem minna áttu undir sér að völdum og þessa heims gæðum og fóru halloka fyrir burgeis- um og valdamönnum, gripu til hins bitra vopns — eina vopnsins, er þeir áttu til — siökunnar og húðflettu þá miskunnarlaust. — Stakan er lítilþæg. Oft geta hin minnstu atvik orðið til að skapa vísu, fyndna og meinyrta eftir þvi, hvernig á stendur. F'urðumikið getur komizt fyrir í aðeins ör- íáum orðum, enda er það oftast einhver smellin líking eða hnittinyrði, sem lyftir stökunni og ljær henni vængi. En hafið þér veitt því eftirtekt, lesendur góðir, að næstum ógerningur er að þekkja höfunda lausavísanna ? Ef maður veit engin deili á höfundinum af þekkingu sinni, og þótt hans sé leitað með loganda ljósi, verður

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.