Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Blaðsíða 16

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Blaðsíða 16
14 STÚDENTABLAÐ hann trauðla fundinn. Sumum kann nú að '.irðast þetta lítill kostur, heldur hið gagn- sræða, stakan sé persónuleikalaus. Nei, segi ég. En það er persónuleiki gjörvallar þjóð- arinnar, sem kemur til dyranna á sinn frum- ræna og eðlilega hátt. Stakan er grunntónn- inn úr djúpi þjóðarsálarinar. öll ])jóðin á hana. Enginn fer snauður með öllu frá borði liennar, því að sérhver finnur einhversstað- ar í ríki hennar fulltrúa hugsana sinna og kennda, finnur einhverja stöku, er hann raular sér til hughægðar, sem hann fær til að samhljóma strengjum sálar sinnar og fvlla upp í skörð hæfileikans til að koma líugsunum sínum í ljóðrænt form. Þannig er stakan skuggsjá þjóðlífsins og í henni speglast barátta þjóðarinnar fyrir lífinu, löng og kyrrlát vetrarkvöld, hríðar og harð- viðri, skeiðsprettir á glófextum gæðingum, skin og skuggar, gleði og sorg, ást og hatur. — Hún er þjóðin sjálf. Vegna þess, að stökurnar eru alþjóðar- eign og fljúga á vængjum vindanna um land *»• allt, er næsta erfitt að vita um hina réttu höfunda. Því eru vísur títt rangfeðraðar í ræðu og riti. Væri næsta nauðsynlegt að safna lausavísum og feðra þær og vinna úr hinum miklu vísnasöfnum Landsbókasafns- ins. III. Ekki vita menn með vissu, hvenær lausa- vísur hefjast, en mjög er það snemma. En áðallega kemur skriður á lausavísumar með Jóni Arasyni og þó einkum Þórði á Strjúgi á 16. öld. Eftir það er mjög títt, að menn kasti fram lausavísum við ýmis tækifæri. Sjálfsagt er rímunum það mikið að þakka, að lausavísur skapast. Vísur úr rímum hafa verið lærðar, menn gleymt samhenginu og uppruna þeirra og þær orðið lausavísur. Þannig eru margir húsgangar, er enn lifa vor á meðal, og fáir hafa vitneskju um, að séu úr fornum rímum. Er og næsta líklegt, að fleiri mundu finnast þaðan kynjaðir, ef það efni væri rannsakað. Það grunar víst fáa, að vísan um regnbogann: Hver er sá veggur víður og hár, vœnum settum röndum, gulur, rauður, grænn og blár. gjörður af meistara höndum? sé úr rímum, sem líklega eru ortar á 15. öld (Geiplum) og kann þó næstum hvert rnannsbarn hana. Rímurnar hafa reynzt ótrúlega lífseigar. Á siðaskiptaöldinni eru þær bannfærðar af vandlætingasömum Lútei'strúarmönnum. Ekki tekst þó að yfirstíga þær; þær meira að segja leggja undir sig hið andlega svið (biblíurímurnar). Á ofanverðri 19. öld veg- ur Jónas Hallgrímsson að þeim, en þær haldast samt fram yfir aldamótin 1900. Og þótt rímurnar hverfi, koma þær fram í lausa- vísum og vísnaflokkum. Formið •— hættirnir — haldast. Efnið verður annað. Sigurður Breiðfjörð fékk þær sárabætur i gröfinni, að eitt hið snjallasta skáld, Þor- steinn Erlingsson, yrkir hann svo að segja upp, aðeins á fegraðan hátt. Og enn yrkja bæði þjóðskáld og alþýðuskáld vísur. Lausavísur og rímur hafa átt drýgri þátt í að viðhalda máli voru og menningu en margur hyggur. Þær hafa haldið fjölda fornra orða og kenninga í lífrænum tengsl- um við nútíðarmálið. Kenningarnar eru nú ao yísu að mestu horfnar og skal það ekki lastað. En fallegar geta þær verið, séu þær eðlilega notaðar og ekki einungis sem dauð form. Þá hefir vísnagerðin beinlínis verið hugsuninni þjálfun, verið einskonar leikfimi hugviti manna og snilli. Stakan nemur sífellt ný lönd. Með breytt- um lífháttum reynir á þanþol hennar. — Síðastliðið sumar kom ég austan frá Þing- völlum ásamt fleira fólki. Vindur stóð úr austri. Bifreiðamar þutu áfram í moldryk- inu. Jósep Húnfjörð var með í förinni, og n ælti þá fram þessa stöku: Sögustaðnum fræga frá fýkur ryk á skikkjur, gúmmílöppum ólmast á ójámaðar bikkjur.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.