Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Page 18

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Page 18
16 STÚDENTABLAÐ tækifæri til þess að daí’na í skjóli þeirra, og í 17 ár hefir Góðtemþlai'areglunni verið að hraka. Þegar á árunum 1907 til 1913 fækkaði meðlimum reglunnar um þriðjung. Allt var í háalofti í herbúðum templara, og árið 1911 lá við, að þetta merkilega fyr- irtæki klofnaði við lítinn orðstír austur á Seyðisfirði.' Templarar lágu í innbyrðis krit- rm yfir óstjórninni á reglunni, og kenndi hver öðrum um hrakfarir hennar. Bannhug- siónin fór í hund og kött urn leið og hún var praktiseruð. Sá „meirihluti“, sem byggt liafði verið á, reyndist. fram úr hófi ótraust- ur grundvöllur. Bannlögin voru brotin leynt og ljóst kringum allar landsins strendur, og smygl og brugg jókst með ári hverju. Þegar á Alþingi 1917 var farið að reyna að lappa upp á lögin, og þá var í þingsöl- um farið þeim orðum um þau, að reynsl- an væri búin að sanna fánýti þeirra. Spánarvínaundanþágan 1922 flaug í gegn um þingið. Reynslan var þá enn átakan- legar búin að sanna fánýti laganna. Og með þá revnslu til grundvallar munu þeir templ- arar, sem atkvæði greiddu með undanþág- unni, hafa i'étt upp sínar munaðarlausu hendur. Allir síðari tíma réttarfræðingar munu vera á eitt sáttir um það, að þau lög, sem eiga sér enga stoð í hugmyndum, hugsun- arhætti eða lífsvenjum almennings muni verða skammlíf. Sagan er búin að kenna okkur það. Og saga íslenzku bannlaganna er búin að færa oss heim sanninn um það, að þau áttu aldrei og h.afa aldrei átt stoð í hinum ríkjandi hugsunarhætti meðal þjóð- arinnar. Þjóðin hefir frá upphafi litið á þau sem þrælalög, talið vanzalaust að brjóta þau, og gengi þeirra hefir staðið í jöfnu hlutfalli við þann hugsunarhátt. Fyrsta janúar 1915 höfðu templarar böð- að hér á landi nokkurskonar nýja innreið Krists í Jerúsalem. En sá Pálmasunnudag- ur þeirra hefir síðar fyrir eld reynslunnar fengið á sig ]rann svip, að nú eru menn yfirleitt sannfærðir um, að Barrabas hafi riðið asnanum í það skipti inn í Jerúsalem, en ekki Kristur. Starf Reglunnar hefir verið í því fólgið hin síðari ár að hamla á móti. Stórstúku- þingin gefa frá sér andvörp til landslýðs. f'étur Sigurðsson, prédikari, er keyptur til aí ferðast um landið og halda bindindisfyr- irlestra, og fjöldi manna úti um landið, sem sjaldan hefir komizt upp á það krambúðar- loft að fá ókeypis iyrirlestra í skammdeg- inu, hópast að, í von um ball á eftir. En 1 egar Pétur Sigurðsson kemur heim, skrif- ar hann langar og athyglisverðar greinar í ,,Vísi“ um sitt blessunarríka starf. Regl- an kemur fram með þá hógværu tillögu, að íimleikar og knattspyrna sé í sambandi við slarf hennar, ef svo mætti til takast, að á þann hátt mætti slæða nokkrar sálir inn í hennar gæzkuríka móðurfaðm. Og með því að öll sókn í þágu bindindismálanna er þrotin, og allt er á undanhaldi, þykir þó skárra en ekkert að hafa „Sóknina" á prenti. Hér hefi ég fyrir framan mig eitt blað af „Sókn“. Maður skyldi ætla, að stór þátt- iu’ blaðsins væri um hin blessunarríku áhrif hímnlaganna í Bandaríkjunum. En svo er ei. Ilér er hinsvegar kynjasaga frá Noregi um slagsmál, áflog, hnífstungur, glóðar- a igu, slagandi og grenjandi fylliraftaher, sem um hvítasunnuleytið hafi verið ekið í heilum bílhlössum í tugthúsið. Mun þetta sett til skýringar þeim áhrifum, sem bann- ið hefir haft á frændur vora Norðmenn. í næsta dálki blaðsins er andstæðan við þetta svínarí, templarinn, Sigurður Jónsson barnaskólastjóri (sextugur um líkt leyti og þessi djöfulgangur var í Noregi). Hann er i’mkringdur af börnum eins og frelsarinn, hógvær, óframfærinn og svo lítillátur, að hann fæst ekki til að láta taka mynd af sér í tilefni af afmælinu, né láta neitt við sig hafa. Svívirðingar um Guðmund Hann- esson prófessor og stúdenta almennt reka svo lestina. Slík er „Sókn“ templaranna. Sigfús Sigurhjartarson, stórtemplar, höf- uð reglunnar, hefir allt fram til þessa árs

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.