Stúdentablaðið - 01.12.1932, Page 19
17
?
STÚDENTABLAÐ
P. Petersen, bfóstjóri
Vert er, að þeirra manna sé að nokkru
getið hér í blaðinu, sem vel hafa gert til
stúdenta og greitt götu þeirra með höfðing-
lyndi sínu.
P. Petersen bíóstjóri er einn þeirra manna,
Frá því að hið nýja kvikmyndahús hans
tók tii starfa, hefir hann endurgjaldslaust
ltð stúdentum húsið fyrir iiátíðarhöldin 1.
desember, og sýnt stúdentum einstaka lip-
uið og greiðvikni.
Stúdentar munu minnast þessa eins og
verðugt er, og nöfn slíkra manna, munu ætíð
í heiðri höfð þeirra á meðal.
verið — og stjórn reglunnar þá líklega líka
— það sem hann kallar „passivur gagnvart
ástandinu“, sem sé ekki vitað sitt rjúkandi
ráð. En þegar á síðasta Alþingi kom fram
frumvarp í þá átt að afnema þessi bann-
lagaslitur, sem enn eru við líði, eignaðist
stórtemplar allt í einu skoðun á þessum mál-
um, og þá líklega aðrir templarar líka. Halda
slcyldi fast við „bannhugsjónina“ og hvergi
frá henni þoka. Það er því sýnt, að templ-
arar hafa ekkert lært á þeim árum, sem
liðin eru frá 1915, og væri ekki um jafn
greint fólk að ræða, yrði slíkt án efa tald-
ir hálfgerðir þursavitsmunir.
Templurum mun seint takast að boða þá
trú meðal íslendinga, að það, að bragða
vín öðru hvoru, sé bráðdrepandi heilsutjón
og siðferðileg svívirðing. íslendingum, sem
alizt hafa upp við mjöð og brennivín aft-
ur úr grárri forneskju, án þess að úrkynj-
ast, að því er séð verður, veitist erfitt
að skilja slíkt. Þeim mun og seint takast
að vinna málstað sínum fylgis með sví-
virðingum um þá, sem eru á öðru máli en
þeir, en seinast mun þeim takast að ná
sínu markmiði með banni. Eina ráðið við
óhúflegri nautn víns væri, ef hægt væri að
koma því nógu rækilega inn hjá almenn-
ingi, að skömm væri að þeim mönnum, sem
kynnu ekki með vín að fara, og að þeir
ættu bezt heima í Góðtemplarareglunni.
Ég nenni ekki að fara þeim orðum um
Góðtemplararegluna, sem Cató fór um
Karþagó. Þeir, sem halda, að þeir hafi gott
af að vera í þeim félagsskap, er það ekki
of gott.
Áfengi og áfengisbö) er sitt hvað, þótt
templarar tali tíðast um það sem eitt og hið
sama, og þó að margt hnjóðsyrði heyrist
um Bakkus, hygg ég helzt, að
— „smáni jafnt hans gáfu góða
Góðtemplarar og fyllisvín"
Sölvi Blöndal.
•---o----
Frá stúdentum
Stúdentafélag Háskólans starfaði með lík-
um hætti síðastliðinn vetur og undanfarið.
Margir fundir voru haldnir og umræður
jafnan hinar fjörugustu, þótt fundarsókn
væri ekki alltaf svo góð sem skyldi. Félag-
ið er málfunda- og skemmtifélag og hefir
frá byrjun haft það á stefnuskrá sinni, að
kynna stúdentum þær stefnur í vísindum
og stjórnmálum, sem efstar eru á baugi á
hverjum tíma.