Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Blaðsíða 21

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Blaðsíða 21
STÚDENTABLAÐ 19 nokkrir háskólastúdentar fastmælum um að halda uppi söngfélagi innan vébanda Há- skólans veturinn 1931—32. Var Höskuldur Ólafsson, stud. jur. valinn söngstjóri. Þessi stúdentakór hól' starf sitt svo seint, að ekki í eyndist unnt að syngja á skemmtun stúd- enta 1. desember 1931. En á þrettánda- dansleik háskólastúdenta 1932 flutti hann nokkur lög og þótti takast ágætlega. Enn- fremur söng kórinn á minningarhátíð þýzka skáldsins Goethe veturinn 1932 (í Gamla Bíó-) og á sumargleði stúdenta sama ár. Vorið 1932 fór kórinn austur á Stokkseyri og söng þar fyrir troðfullu húsi áheyrenda og fékk beztu viðtökur. Skönnnu eftir Stokkseyrarförina söng kórinn í útvarpið. Á skemmtifundi innan kórsins, sem haldinn var í lok háskólaársins, tóku félagarnir sig saman um að halda kórnum uppi á komanda vetri. Hann byrjaði æfingar í október í haust og hefir æft af kappi síðan. Vitnar sú starfsemi um lofsverðan áhuga. Lánssjóður stúdenta hefir nú starfað í rúm 4 ár. Fyrstu lánin voru veitt úr honum vorið 1928. Síðan hafa verið veitt 70 lán 160—500 kr. hvert. Af lánunum greiðast 3,5% vextir og 1% í lántökugjald. Þau eru veitt lengst til 4 ára og þannig hagað, að aíborgun þurfi ekki að greiða fyr en að ioknu námi. Háskólaráðið hefir þrisvar veitt sjóðnum lán, í fyrsta skiptið 10 þús. kr. og í hin skiptin 5 þús. kr. lán vaxtalaus til 10 ára. Tekjur sjóðsins eru vextir af lán- um og ennfremur árgjöld allra skrásettra háskólastúdenta, er nemur 2 kr. Lánssjóð- urinn er ein af þörfustu stofnunum stúd- enta. Þótt enn eigi hann langt í land með að geta fullnægt lánsþörfum allra stúdenta, megum vér vera þess fullvissir, að einhvern- tíma verði hann svo öflugur, að stúdentar þurfi ekki að leita fyrir sér annarsstaðar um lán og hlíta hinum háu vöxtum hjá op- inberum lánsstofnunum. ÖUum stúdentum, eldri sem yngri, ber því skylda til að styðja vöxt hans og viðgang. Hátiðahöld stúdenta 1. desember. Stúdentaráð Háskólans gengst fyrir há- tíðahöldum í dag, eins og undanfarin ár. Skemmtiskrá dagsins er í aðalatriðum á þessa leið: Kl. 10: Stúdentablaðið kemur út. Selt á götunum allan daginn. Kl. 1: Stúdentar safnast saman við Menntaskólann. Gengið í skrúð- göngu með lúðrasveit í broddi fylk- ingar og staðnæmst við Alþingis- húsið. Kl. V/o,: Flytur Ásg. Ásgeirsson forsætis- ráðherra ræðu af svölum Alþingis- hússins. Þvínæst leikur lúðrasveit þj óðsönginn. Kl. 3Almenn skennutun í Gamla Bíó. Skemmtiskrá: Ræður: próf. Alex- ander Jóhannesson háskólarektor og sr. Þorst. Briem ráðherra; fiðluleikur, leikfimissýning, upp- lestur, tvísöngur (Gluntar) og kór- söngur (Stúdentakórinn). „1. des.“'-merki verða seld á göt- unum allan daginn. íslendingabók (,,Selskinna“) liggur frammi í anddyri Háskólans. *--■-=?r— ■ * i. 7í,v.ss Kl. 7: Hefst borðhald stúdenta að Hótel Borg. Kl. 9: Hefst dansleikur stúdenta að Hótel Borg. Ágóði af hátíðahöldunum rennur aðallega til Stúdentagarðsins og að nokkru leyti til almennrar starfsemi Stúdentaráðsins. Vill Stúdentaráðið mega vænta þess, að menn bregðist að vanda vel við, og styðji fjársöfn- un Stúdentaráðsins með ráðum og dáð. Heit- ir Stúdentaráðið á alla góða íslendinga til fulltingis Stúdentagarðsmálinu, sem nú og um næstu framtíð verður að teljast mesta velferðarmál íslenzkra stúdenta.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.