Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 11

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 11
STÚDENTABLAÐ 3 TÓMAS GUÐMUNDSSON, skáld: 1 tilefni J/ess, að æskuvinur minn og gamall hekkjarbróðir, Halldór Kiljan Laxness, hefur nú verið sæmdur bókmenntaverðlaunum Nóbels, þykir stjórn Stúdentablaðsins við eiga, að ég segi hér nokkuð frá kynnum mínum við hann á skólaárunum. En þó að ég sé allur af vilja gerð- ur og eigi margar hugstæðar minningar um sam- vistir okkar á þessu tímabili, er ég ekki viðbúinn að rekja þær hér að nokkru ráði. I fyrsta lagi tæki sú upprifjiin mig lengri tíma en ég hef til umráða og í annan stað mundi ég telja mér skylt að leita áður samráðs við skáldið, en til þess er ekki heldur tækifæri að sinni. Allt að einu er mér meinfangalaust að drepa hér á örfá atriði. Það var haustið 1917, að tveir skólapiltar, sem setið höfðu veturinn áður í fyrsta bekk Mennta- skólans, gerðu þá sviplegu uppgötvun, að þeir væru ákaflega gáfaðir, og af því tilefni hug- kvæmdist þeim að lesa annan og þriðja bekk á einum vetri. Var Sigurður Olafsson, síðar verk- fræðingur, annar piltanna, en hinn var Tómas Guðmundsson, höfundur þessarar greinar. Þegar nokkuð kom fram á haustið, auglýstum við eftir þriðja pilti til að sækja með okkur einkatíma í nokkrum námsgreinum, og höfðum við þá það tvennt í liuga að dreifa kostnaðinum og lífga félagsskapinn. Llrðu nokkrir ungir menn til að ásælast þessa virðingarstöðu. Meðal þeirra var kornungur sveinn, bjartur yfirlitum og grann- Halldór Kiljan Laxness - Horft til æskuára - vaxinn, með jóst hár, mikið og sítt, og gott ef hann kynnti sig ekki með þeim orðum, að hann væri Halldór Guðjónsson rithöfundur frá Lax- nesi. Þótti okkur Sigurði auðsætt, að þar væri sá maður kominn, sem við höfðum svipazt eftir, og var hann umsvifalaust ráðinn til félags við okk- ur menntamennina. Fljótt þótti okkur Sigurði það hafa ásannazt, að ekki hefði okkur brugðizt dómgreindin i þetta skipti fremur en endranær. Reyndist Halldór okkur ágætur og skemmtilegur félagi, og tókust með okkur hin beztu kynni. Við Sigurður vorum þá sambýlismenn við Laugaveginn, en Halldór bjó einu húsi neðar, við sömu götu. Var okkur því hægt fyrir urn gagnkvæmar heimsóknir, og gerðust þær tíðar, en ekki voru allar þær ferðir farnar til vísindaiðkana. Eg var um þessar mundir haldinn þrálátri skáldskaparástríðu, en sjálfur var Halldór þegar orðinn afkastamikill rithöf- undur. Hygg ég ekki of mælt, að hann hafi haft með sér i bæinn þetta haust hátt í kofforti af frumsömdu máli, skáldsögum, Ijóðum, ritgerð- um og dagbókum. Einnig mun hann þennan vet- ur hafa setíð flesta daga að skriftum, lengur eða skemur, ef ég man rétt, og var hann í einu orði sagt hin mesta hamhleypa til ritstarfanna. Sitt- hvað af því, er hann skrifaði, kom á prent um þetta leyti, einkum í dagblöðum bæjarins, en jafnvel líka í Vésturheimsblöðum, Lögbergi eða Heimskringlu. Birti hann sögur sinar undir höf- undardulnefni, sem■ hann notaði um skeið, og er því hæpið, að ókunnugir finni þær. Þá fékkst hann og noklmð við tónsmíðar og hafði vist i liuga að koma þeim á framfæri við útgefendur, en þær tilraunir fórust fyrir. Það leyndi sér yfir-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.