Stúdentablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Qupperneq 18

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Qupperneq 18
10 STÚDENTABLAÐ Hið nýkjörna stúdentaráð Háskóla íslands: Jón Tómasson, stud. jur., l\afn Hjaltalín, stud. theol., Jón Hall- grímsson, stud. med., Sigurður Ltndal, stud. jur., ritari, Björgvin Guðmundsson, stud. oecon, formaður, Stefán 1. Finnhogason, stud. odont., gjaldkeri, Guðmundur Pétursson, stud med., Skarphéðinn Pótursson, stud. theoh og Sveinn Skorri Höskuldsson, stud. mag. hvar maður situr í skugga af steini og horfir á hann, og hefur orðið áheyrsla að ángist hans. Þeir horfa hvor á annan um hríð. Þá segir mað- urinn: Þetta hreysi byggja melrakkar einir. Konúngur s-pyr: Hver ert þú? Maðurinn svarar: Eg em hið íslenska skáld. Velkominn skáld, segir konúngur; eða heyrða eg rétt áður, að þií hefðir ort um mig kvæði? Satt er það herra, segir þessi maður, eg hef ort kvæði mjög dýrt þeim garpi er bestur er orðinn á Norðurlöndum, og yður, hans konúngi. Þetta kvæði keypta eg við sælu minni og sól, og dætr- um mínum, túngli og stjörnu; og við fríðleik sjálfs mín og heilsu, hendi og fæti, hári og tönn; og loks við ástkonu minni sjálfri er byggir undir- djúpin og geymir fjöreggs míns. Styttu nú stundir konúngi þínum, skáíd, segir Ólafur Haraldsson, og flyt hér gerplu þína undir hörginum í nótt. Skáldið svarar og nokkuð dræmt: Nú kem eg eigi leingur fyrir mig því kvæði, segir hann, og stendur upp seinlega, og haltrar á brott við lurk sinn, og er horfinn bak hörginum. Þá var túngl geingið undir og felur nóttin dal og hól að Stiklarstöðum, og svo hinn síðfrjóva hegg. (Sögulok). Halldór Kiljan Laxness: Ur Rhodymenia palmata Tveir erum vér leitendur og lifendur hans, grímubúnir guðir í gervi konu og manns; báðir þrá hið Eina; bágt eiga þeir. Báðir eru blekkíng. Tvisvar tveir eru tveir. Einn hnípir eftir þegar annar deyr.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.