Stúdentablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Qupperneq 20

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Qupperneq 20
12 STÚDENTABLAÐ skilning í gerðum, en lítinn í orðum. Hjá öðrum finnur maður aftur á móti mikinn skilning í orðum, en engan í gerðum. vað ég á við? Eg á fyrst og fremst við það, að ýmsir fari nú mjög svo villur vegar í siðferðisviðhorfi sínu til hernámsins. Eg á við það, að ískyggi- lega margir Islendingar þykist geta samrýmt þetta tvennt: að vera andstæðingar hernámsins, og vinna við að byggja það upp. Eg á við það, að margur Islendingurinn sé um þessar mundir meiri frelsishetja í nösunum en hjartanu. Og hver mundi vera orsökin til þessa? Meginorsökin er áreiðanlega sú, að forustu- menn og málgögn hernámsandstæðinga van- rækja það hlutverk sitt að boða allan sannleik- ann í þessu efni. Þegar til dæmis rætt er um hinn mikla straum vinnuafls frá framleiðslu til hernáms- starfa, heitir það alltaf að stjórnarvöldin hafi hrakið menn út í þessi störf. En á sama tíma eru svo kannski heilir togarafarmar af fiski að úldna í Reykjavíkurhöfn, meðal annars vegna þess að vinnuafl skortir til að taka á móti afl- anum og verka hann. Sá fiskur sem íslenzkir togaramenn hafa dregið upp úr köldum djúp- um hafsins milli íslands og Grænlands, og reynt að vanda sem mest að umbúnaði í lestinni, hann úldnar og ónýtist þegar þeir koma með hann að, vegna þess að landar þeirra, sem áttu að verka hann, eru hlaupnir suður á Keflavíkur- flugvöll að sópa gólf eða þvo upp leirtau. Nei fyrirgefið: hafa verið hraktir þangað af stjórn- arvöldunum. Allir hrekjast í hernámsvinnuna. En leyfist þó að spyrja: Hvers vegna ,,hrekjast“ engir í hin auðu pláss við verkunarborð fisk- vinnslustöðvanna? Komum annars betur að því atriði síðar. Það vantar svo sem ekki, að málgögn her- námsandstæðinga séu á varðbergi um hagsmuni íslenzkra verkamanna gagnvart Bandaríkja- mönnum. Um eitt skeið til dæmis var verka- lýðsbarátta þeirra mikið til einskorðuð við kröf- una um að Hamilton léti landa vora á Vellin- um fá skyr og annan íslenzkan mat að borða, í staðinn fyrir bandaríska matinn, brasaðan og niðursoðinn. Maður hefði getað ímyndað sér að þessir landar vorir væru orðnir svo þungt haldnir af hinni bandarísku niðursuðu, að starfsorka þeirra væri á þrotum. Þeir þyrftu sem sé að fá kjarngóða íslenzka fæðu til að geta verið duglegri við að byggja upp hið bandaríska hernám. Eg vil að vísu ekki mæla gegn því að Islendingar fái fæðu við sitt hæfi. En ég hef áður sagt og segi enn, að ættjörðin frelsast ekki fyrir það eitt, að menn borði skyr. Og fullkomin lækning við þeim meltingarkvill- um sem Hamilton kann að valda mönnum, get- ur auðvitað engin orðið önnur en sú, að hætta að borða hjá Hamilton. A öðru tímabili birtust í einu blaði hernáms- andstæðinga harðcrð skrif út af því, að menn þeir í hópi reykvískra vörubílstjóra, sem væru andstæðingar hernámsins, fengju ekki vinnu við að aka bandarískum hergögnum suður á Keflavíkurflugvöll. Þetta blað hafði þó ekki farið dult með þá skoðun sína, að bandarísk hergögn væru tæki sem auðvaldið hygðist nota til að brjóta á bak aftur samtök alþýðu, hvar sem því yrði við komið, og helzt að drekkja frelsisbaráttu mannkynsins í blóði. Engu að síður krafðist blaðið þess í nafni al- þýðu, að hernámsandstæðingar úr stétt reyk- vískra vörubílstjóra fengju vinnu við að aka þessum hergögnum á áfangastað. Þeir hefðu fullan rétt til að græða á því, engu síður en aðrir vörubílstjórar. Svona verkalýðsbarátta er utan og ofan við minn skilning. Eg mundi að minnsta kosti hugsa mig tvisvar um, áður en ég gengi til manns, sem ég vissi að hefði hug á að skjóta mig í hausinn, og spyrði hvort hann vildi ekki borga mér kaup fyrr að hlaupa eitt- hvað og sækja honum hlaðna byssu. Öðru hverju les maður í málgögnum her- námsandstæðinga, að þessi eða hinn hernáms- andstæðingurinn hafi verið rekinn úr vinnu á Keflavíkurflugvelli, og er slíkum fregnum ávallt fylgt eftir með miklum vandlætingar- skrifum. Atvinnuofsóknir ber að sjálfsögðu að fordæma, í hvaða mynd sem þær birtast. En leyfist þó enn að spyrja: Hvað eru hernáms- andstæðingar að gera á Keflavíkurflugvelli? Sú staðreynd, að þeir hafa ráðið sig þangað, er að mínum dómi ekki minni ástæða til vand- lætingar heldur en hitt, að þeir hafa verið rekn- ir þaðan. |á, en þeir hafa verið hraktir þangað af stjórn- arvöldunum, segja málgögn hernámsand- stæðinga. Er þetta nú alltaf alveg víst? Að vísu mundi

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.