Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Page 21

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Page 21
STÚDENTABLAÐ 13 Stúdentar frá Verzlunarskóla íslands vorið 1955. Fremri röð: Steinunn Yngvadóttir, Sigríður Guðjónsdóttir, Anna Thoroddsen, Jón Gíslason, skólastjóri. Dóra Hafsteins- dóttir, Anna Tryggvadóttir og Sigrún Tryggvadóttir. — Aft- ari röð: Kristinn Hallgrímsson, Helgi Jónsson, Örn Erlends- son, Þorsteinn Magnússon, Grétar Haraldsson. ^ Guðmundur Pálsson, Jóhann Ragnarsson, Gunnar Dyrset, Ámi Bjarna- son, Árni Finnsson, Eyjólfur Björgvinsson og Svavar Árna- son. ég manna síðastur vilja mæla stjórnarvöldun- um bót, sök þeirra í þessu efni er svo sannar- lega mikil og ægileg. En þar með er ekki sagt, að sekum alþýðumönnum skuli haldast uppi að réttlæta fyrir sér sína eigin sök með hinni stóru sök stjórnarvaldanna. Athugum nokkur alkunn sannindi. A togarana hefur orðið að ráða fjölda útlend- inga, og hafa þó margir þeirra ekki fullan mannskap. Hvers vegna „hrekjast“ menn ekki út á togarana? Fiskibátarnir liggja bundnir við bryggjur, jafnvel þegar uppgrip eru hvað mest, vegna þess að ekki tekst að manna þá. Hvers vegna ,,hrekjast“ menn ekki út á bátana? Heilir togarafarmar úldna og ónýtast í höfn- um vegna skorts á vinnuafli í fiskverkunar- stöðvunum. Hvers vegna ,,hrekjast“ menn ekki inn í fiskverkunarstöðvarnar? Landbúnaðurinn á í vaxandi erfiðleikum vegna mannfæðar, og liggur víða við landauðn af þeim sökum. Væri það nokkur goðgá að spyrja, hvort ungir og hraustir menn þyrftu að láta sér ofbjóða það að gerast bændur og „hrekjast“ út í einhverja góða sveit? Já, hvers vegna „hrekjast“ menn ekkert nema í hernámsvinnuna? Það er vegna þess, að þar hafa menn alltaf beztar og öruggastar tekjur, segja málgögn her- námsandstæðinga. Þetta leyfi ég mér líka að vefengja. Eg leyfi mér að vefengja það, að menn hafi alltaf meiri tekjur við hinar þjóðhættulegu bandarísku hernaðarframkvæmdir, heldur en þjóðnýt ís- lenzk framleiðslustörf. Til dæmis efast ég um, að verkamennn á Keflavíkurflugvelli hafi að undanförnu haft mikið meiri tekjur af að byggja upp hernám Islands, heldur en stéttar- bræður þeirra hér fyrir austan hafa haft af að verka hvern togarafarminn á fætur ðrum, ásamt bátfiski. Hitt er sjálfsagt rétt, að til að afla teknanna þurfi menn minna á sig að leggja á Keflavíkurflugvelli heldur en þar sem stund- aðir eru íslenzkir atvinnuvegir. En ef slíkt ætti að gilda sem rök í málinu, hlyti jafnframt að gilda það siðferðisviðhorf á Islandi, að dáðleysi

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.