Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Side 25

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Side 25
STÚDENTABLAÐ 17 í þeim löndum, þar sem vísindaleg menning stendur meS þlóma, er kappkostað að örva hina efnilegustu úr hópi ungra menntamanna til að leggja fyrir sig vísindastörf og að hjálpa þeim til framhaldsnáms og rannsóknastarfa að loknu háskólaprófi. Af öllum þeim fjölda, sem lýkur háskólaprófi í hvers konar náttúrufræðum og læknisfræði, eru tiltölulega fáir, sem hafa áhuga á vísinda- störfum eða hæfileika til þeirra, og sjaldnast er fyrirfram hægt að sjá, hverjir það eru. Reynslan ein getur skorið úr því, en þó því aðeins, að þeir fái tækifæri til að reyna sig. í löndum, sem eiga ágætar vísindastofnanir í hinum ýmsu greinum náttúruvísinda og læknis- fræði, reyna þessar stofnanir að laða til sín álitlega menn og gefa þeim tækifæri til að reyna krafta sína og fá nauðsynlega undir- búningsæfingu. Algengasta fyrirkomulagið á þessari aðstoð er, að opinberir eða hálfopinberir sjóðir veiti efnilegum mönnum lífvænlega vinnustyrki til eins eða fleiri ára að loknu háskólaprófi. Á þeim tíma kemur í ljós, hvort áhugi mannsins og hæfileikar endast honum til að hann geri sér vísindi að æfistarfi eða hann hverfur að öðrum verkum í grein sinni. Einnig verður þá tækifæri fyrir vísindastofnanir til að sjá, í hverjum er mestur slægur. Allir kannast við Rockefellersjóðinn í Banda- ríkjunum og Carlsbergsjóðinn í Danmörku. BJÖRN SIGURÐSSON, dr. med. Formaður rannsóknaráSs ríkisins: Stofnun Vísindasjóðs Þeir cg fjölmargir hliðstæðir sjóðir víða um lönd hafa unnið ómetanlegt starf við að ala upp nýja kynslóð áhugasamra og dugandi vís- indamanna. Hér á landi er að verða brýn þörf fyrir hlið- stæða aðstoð og uppörvun til ungra manna, sem lokið hafa háskólaprófi í náttúruvísindum og læknisfræði. Rannsóknaráð ríkisins hefir um rúmlega tveggja ára skeið unnið að athugun á þessu máli, og árið 1954 gerði það tillögur til ríkis- stjórnarinnar um lausn, sem ætti að geta orðið til mikilla bóta. Rannsóknaráð lagði til, að stofnaður yrði sjóður, er gæti veitt kandidötum í náttúru- fræði, efnafræði, eðlisfræði, verkfræði, læknis- fræði o. s. frv. allríflega rannsóknarstyrki. Talið var að 750.000,00 til 1.000.000,00 kr. á ári mundu nægja eins og sakir standa. Þeir, sem styrkinn hlytu, ættu á styrkjatímabilinu að vinna vísindavinnu á stofnunum hér á landi eða á annan hátt undir handleiðslu reyndra manna. Auk lífeyris mundi sjóðurinn væntanlega greiða rannsóknarkostnað, ferðakostnað og andvirði bóka og rannsóknatækja, ef þörf krefur. Styrkur yrði veittur til eins árs í senn en hann mætti framlengja a. m. k. einu sinni, ef viðtakandi sýnir áhuga og hæfileika í starfi og það er af öðrum ástæðum æskilegt. Meginhlutverk Vísindasjóðs á að vera að örva efnilega menn til að leggja fyrir sig vís- indastörf og að þjálfa þá til rannsóknavinnu. Ymsir munu eflaust hverfa til annarra starfa að styrktíma loknum. Fjárhagshjálpin til þeirra verður þó engan veginn til ónýtis. Þeir munu hafa fengið mjög dýrmæta reynslu í fagi sínu,- sem kemur þeim að haldi, jafnvel þótt þeir hverfi frá vísindastörfum í þrengri merkingu. Einnig mundi sjóðurinn geta stuðlað að lausn hagnýtra úrlausnarefna með styrkveit-

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.