Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Síða 26

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Síða 26
18 STÚDENTABLAÐ ingum til rannsókna á landi voru og auðæfum þess. Auknar rannsóknir á náttúru landsins, jarðfræði þess og dýrafræði, á jarðefnum, sem hér finnast, á efnum úr sjó, tilraunir til úr- vinnslu úr afurðum landbúnaðar og fiskiveiða munu án efa færa okkur fjölmörg tækifæri til nýrrar framleiðslu og bættrar afkomu. Allar framfarir í þessum efnum byggjast þó á aukn- um vísindarannsóknum, og að þeim ætti Vís- indasjóður að geta stuðlað. Það er alkunna, að nýtízku stóriðnaður út- heimtir mjög sérhæfða verkfræðiþekkingu, sem ekki fæst nema með kostnaðarsömum sér- undirbúningi og reynslu. Hér á landi hefir t. d. verið rætt um stórframleiðslu á klóri, þungu vatni og magnesium. Framtíð þessara fyrir- ætlana og annarra svipaðra veltur að miklu leyti á þeirri verkfræðimenningu, sem við eig- um yfir að ráða. Fjáröflun til Vísindasjóðs mætti haga með ýmsum hætti. Þá hlið málsins er áreiðanlega tiltölulega auðvelt að leysa með góðum vilja. Framleiðslugeta þjóðarinnar hefir vaxið óð- fluga undanfarið og aukningin heldur vonandi áfram með svipuðum eða meiri hraða. Hand- bær verðmæti vaxa að sama skapi, eins og alls staðar má sjá. Þess vegna hefir þjóðin nú efni á að bæta upp ýmislegt, sem hana áður skorti á við ríkari þjóðir. Engu fé yrði varið af meiri framsýni en því, sem færi til að tryggja fram- tíð vísindalegrar menningar í landinu. Til að tryggja Vísindasjóði nægilegar tekjur hefir rannsóknaráð stungið upp á, að lagður verði lítils háttar aukaskattur á tiltekna söluvöru og renni hann beint til sjóðsins. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Landgræðslusjóður hafa þegar fengið heimild til svipaðrar „skatt- lagningar“ og báðar þessar ágætu stofnanir hafa þegar fengið öruggar tekjur til starfsemi sinnar. Með góðum vilja stjórnarvaldanna ætti að vera auðvelt að tryggja Vísindasjóði nægar tekjur, og hefir rannsóknaráð sem sé þegar bent á leið til þess. Rannsóknaráð telur, að stjórn Vísindasjóðs og úthlutun styrkja úr honum eigi að vera að öllu leyti í höndum fulltrúa frá íslenzkum vís- indastofnunum. Með því ætti að verða bezt tryggt, að styrkveitingar yrðu í samræmi við þörf og verðleika umsækjandi og að þeim yrði beint til þeirra fræðigreina, sem mesta hafa þörfina á hverjum tíma. Það hefir háð stórlega þróun vísindastarf- semi hér á landi fram til þessa, að oft hefir orðið að taka óreynda unglinga beint frá próf- borði og ætla þeim vandasöm verkefni í rann- sóknastofum og annars staðar. Það er óum- flýjanlegt að gefa mönnum um tíma tækifæri til framhaldsnáms og þjálfunar undir hand- leiðslu reyndari manna. Aðrar þjóðir hafa fyrir löngu tekið upp svipað fyrirkomulag og hér er stungið upp á. Við verðum að gera ráðstaf- anir til að þjálfa okkar menn á sama hátt og aðrir, ef okkur á að takast að koma vísinda- stofnunum okkar á sæmilegan rekspöl. Steingrímur Steinþórsson, ráðherra, sem fer með málefni rannsóknaráðs hefir nýlega óskað eftir, að rannsóknaráð gangi frá tillögum sín- um um Vísindasjóð í frumvarpsformi. Mun vera ætlunin að koma málinu áleiðis með laga- setningu, þegar færi gefst. Það er trú rannsókna- ráðs, að þegar frá líður, muni það fé, sem lagt er til vísindalegrar þjáflunar ungu mennta- mannanna, skila ríkulegum arði bæði í menn- ingarlegu og fjárhagslegu tilliti. * Vísindaleg menning miðrar tuttugustu aldar er undirstaða örustu framfara, sem um getur í sögunni, og um leið hefir hún breytt heims- mynd, lífsviðhorfi og jafnvel fegurðarsmekk þeirrar kynslóðar, sem hefir tileinkað sér hana. Við hlið hinna fornu humanistisku greina er ný tegund menningariðkunar að vaxa til áhrifa. Þjóð telst ekki menningarþjóð vegna þess eins, að þar kunni menn að skrifa sögur, yrkja ljóð og mála myndir — hversu snilldarlega sem allt þetta er gert — heldur verður hún einnig að vera jafnoka aðili að hinni sérkennilegu vísinda- legu menningarsköpun miðrar tuttugustu aldar. Hún þarf að vera fær um að gefa og þiggja gjaldgenga vöru í þeim menningarlegu sam- skiptum þjóðanna, sem sérkenna þetta tímabil. Við Islendingar höfum ekki til fulls áttað okkur á, hve nauðsynlegt er að efla vísindalega menningu í landinu, ef við eigum að halda okkar hlut í þeirri öru þróun og samkeppni, sem einkennir öld vora. Við þurfum að verða hlutgengur aðili í þeirri menningarlegu sam- búð, sem mun grundvalla samskipti þjóðanna í framtíðinni. Efling vísinda í landinu er þó ekki fyrst og fremst kvöð á okkur, til að við getum talizt menn með mönnum, heldur er hún

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.