Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Síða 31

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Síða 31
STÚDENTABLAÐ 23 liggja í íslenzkum handritasöfnum heima og erlendis, og orðaforði þeirra er oft allur annar en hinna prentuðu bóka. Svo er þó fyrir að þakka að talsvert hefur verið gefið út á síðari árum af þessum ritum; á sumum sviðum má kalla að sæmilegt úrval sé til, svo sem í sagn- fræði. En önnur svið hafa að miklu eða veru- legu leyti orðið út undan, og frá sjónarmiði orðabókarmanns er það skaði sem ekki verður bættur nema með því einu að fleiri rit séu gefin út, og nýjar og betri útgáfur komi fram á þeim ritum sem ekki eru til nema í næsta ófullnægjandi útgáfum, en þau eru því miður allt of mörg. I þessum vanda er að vísu mikil stoð í orða- söfnum 17. og 18. aldar. Þau eru fleiri en flesta grunar, en langflest óprentuð og lítt eða ekki rannsökuð. Merkast þeirra er án efa orðabók Jóns Ólafssonar frá Grunnavík í Árnasafni. Hún er í níu þéttskrifuðum bindum í arkar- broti og geymir geysimikinn orðaforða, sem hefur orðið að litlum notum í prentuðum orða- bókum. Þessa orðabók og ýmsar aðrar, þótt minni séu, höfum við orðabókarmenn ekki ennþá orðtekið, en í þeim verður án efa hægt að finna svör við mörgum spurningum sem ekki verður leyst úr með orðasöfnun úr prent- uðum textum einum. Ástæðan til þess er sú að í mörgum þessara orðasafna er mikill orða- forði úr mæltu máli svo og úr ritum sem aldrei hafa komizt á prent. Þegar nær dregur nútímanum verða vanda- mál okkar orðabókarmanna annars eðlis. I fyrsta lagi vex bókafjöldinn hröðum skrefum svo að ekki er um annað að ræða en að velja úr textum til orðtöku, og skiptir þá miklu að það úrval sé gert af þeirri fyrirhyggju að engin mikilvæg svið tungunnar verði út undan. í annan stað er það augljóst mál að hinar gífurlegu breytingar á atvinnuháttum Islend- inga síðustu mannsaldrana hafa haft í för með sér miklar breytingar á íslenzkri tungu. Fjöldi nýrra orða hefur komið upp, og fjöldi gamalla orða er að hverfa með þeim atvinnuháttum sem þau voru tengd. Að því leyti sem þessi orð hafa ekki verið fest á bækur er nú að verða hver síðastur til að bjarga þeim frá glötun. Orðabók Háskólans hefur ekki aðstöðu 'til að ’ taka slíka söfnun að sér að öðru leyti en því að við höfum tekið því með þökkum sem okkur hefur verið sent, og munum halda því áfram. En hér þyrfti á skipulögðum aðgerðum að halda, — það kostar aftur á móti starfsfólk, kostar fé, sem orðabókin hefur ekki tök á. Þess má minnast að í nágrannalöndum okkar hefur slík söfnunarstarfsemi verið rekin árum saman, sumstaðar með fjölmennu starfsliði, og er þó hvergi nærri lokið, því að stöðugt skýtur upp nýju efni eftir því sem nákvæmar er safnað og vandlegar unnið. Við orðabókarmenn erum stundum spurðir hvort við rekumst ekki á marga nýstárlega og merkilega hluti. Þessu er ekki auðsvarað, því að það sem sumum finnst merkilegt þykir öðr- um hégómi einn. Vitanlega finnum við margt orða sem ekki standa í prentuðum orðabókum, rekumst á mörg merkingarafbrigði sem geta varpað ljósi yfir sögu orða og orðatiltækja. Margt af þessu er mikill matur fyrir málfræð- inga, en ekki ævinlega eins girnilegt til fróð- leiks leikmönnum. Eins kemur hitt fyrir að við finnum ekki orð sem ætla mætti að væru gömul í, hettunni, þ. e. svo virðist sem sum orð sem nú eru mjög algeng séu til orðin miklu síðar en margir hafa talið. Eg skal að lokum nefna tvö dæmi um slík orð, sem komu mér a. m. k. á óvart. Orðin alltaf og alveg eru í hópi algengustu orða í íslenzku nútímamáli, bæði í ræðu og riti. Lærðir málfræðingar hafa talið að orðið alltaf sé eldra en íslands byggð og rakið uppruna þess aftur í frumnorrænu. En samkvæmt þeirri vitneskju sem við orða- bókarmenn höfum fengið, hygg ég að óyggjandi rök séu fyrir því að orðið hafi ekki verið notað á íslandi svo að nokkru nemi fyrr en á síðari helmingi 18. aldar, og algengt verður það vissulega ekki fyrr en á 19. öld. Ennþá yngra er alveg. Það virðist ekki hafa orðið algengt fyrr en um eða eftir miðja 19. öld. Hér skal ekki gerð nein tilraun til að skýra þetta fyrir- brigði, aðeins á það bent að eldri skýringar, a. m. k. í orðinu alltaf, hljóta að vera rangar. Þessi orð eru ekkert einsdæmi, síður en svo, en þau eru nefnd hér af því að þau eru svo algeng að fæstum dettur í hug að þau eigi sér ekki miklu lengri sögu.

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.