Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Page 40

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Page 40
32 STUDENTABLAÐ SKARPHÉÐINN PÉTURSSON, stud. theol.: „Væri minn brandur búinn með stól" Þegar kolbítarnir risu úr öskustónni og bjuggust til ferðar til að vinna sér frægð og frama fylgdu þeim oft misjafnar óskir, en oft var þeim fylgt á leið af gamalli móður, er gaf þeim að skilnaði ryðfrakka einn. Varð sá að bitrum brandi, er í mannraunir kom, og dugði þá vopna bezt. Þegar kolbítarnir íslenzku rísa nú úr margra alda öskustó erlendrar áþjánar, sem enn er ekki séður endir á, eiga þeir sem áður þann brand, er oft hefur bitrastur reynzt. Margur hefur verið með vopnum veginn, en enn þá fleiri munu þeir þó vera, er sviðið hefur undan eggjum hvassrar tungu. Og svo mun enn verða um langa framtíð. Sú gæfa er okkur gefin, er þetta land byggjum, að upprunann getum við rakið allt frá fyrstu byggð landsins til þessa dags. Og þau tengsl verða seint fullþökkuð. Römm verður hún ætíð taugin, er bindur okkur við upprun- ann. Enn þá berjast Islendingar í Kanada hæp- inni baráttu til viðhalds íslenzkri tungu og horfa ekki í þann kostnað, sem af því er. Það er ættarmetnaður þeirra að halda við íslenzkri tungu. En hversu sem sú barátta endar, mun rétt, að við minnumst þess, að barátta okkar er önnur og nálægari. A þessu landi verður ís- lenzka að talast, eigi hún ekki að deyja út, og við verðum að gera okkur það ljóst, að með auknum áhrifum frá erlendum þjóðum, vex einnig hætta á því, að tungan spillist. Að ógleymdri dvöl hins erlenda liðs, sem hér er nú og hlýtur með sambúð sinni við landsmenn að orka til málspella, sé eigi rönd við reist. Nú þarf ekki lengur að fárast yfir dönsku slettun- um, sem í æsku minni þóttu versti blettur íung- unnar. Þær slettur eru ýmist horfnar eða enginn tekur eftir þeim lengur. En í staðinn koma aðrir blettir. Sletturnar, sem unglingar í Reykjavík bera sér í munn í dag eru að vísu fæstar orðnar bókmál, en vel getur svo farið, að þær verði orðnar að talmáli alþýðu með næstu kynslóð og bókmáli með annarri, verði engar skorður við reistar. Þegar kolbítar rísa, má jafnan gera ráð fyrir, að þeir séu ekki að öllu sem aðrir. I sekk og ösku lærist fátt. En er semja skal sig að venju- legum siðum, má fullvíst telja, að hemil verði á því að hafa, því að of snögg myndi sú breyting verða hemill allra hetjudáða. Og allar voru hetjudáðir kolbítanna unnar, áður en þeir urðu sem aðrir menn. Ekki síðar. Það er eðli alls járns að safna ryði, sé það vanhirt. Og á góðmálm tungunnar fellur einnig ryð, sé hann látinn ósnertur. Orð, sem látin hafa verið ónotuð um hríð, verða annarleg í munni, þótt tiltæk séu. Og gott má stál vera, ef ekki sjást skörð á eggjum eftir slíka með- ferð. Notkun tungunnar til ljóðagerðar hefur án efa á liðnum öldum orðið að miklu gagni til verndar menningu og tungu þjóðar vorrar. Það agar vel að fella mál í þröngar skorður ríms og stuðla. Sennilega er af hörku dregið sam- nefni stuðuls sem ákveðins þáttar í vísnagerð og bergtegundum, og hvort tveggja fer vel og er augnayndi, ef rétt er myndað á réttum stað. Og hvort tveggja er smámenni hættulegt viður- eignar, ef röngum tökum er beitt. Rætt er um að sverfa til stáls. En við íslenzkum stuðlum

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.