Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 43

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 43
STUDENTABLAÐ 35 mun kennsla læknanema við Háskóla íslands dragast hröðum skrefum aftur úr því, er kennt er við aðra háskóla . . .“ Islendingar hafa náð glæsilegum árangri í heilbrigðismálum sínum. Þessum árangri var aðeins hægt að ná í sjálfstæðu landi. Er við minnumst þeirra tímamóta er urðu 1 sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar í dag fyrir 37 árum, þá vitum við, að barátta þeirra frumherja, sem þá sigruðu svo glæsilega, er það að miklu leyti að þakka, hvar við stöndum í dag. En í læknavísindum halda framfarirnar ávallt áfram. Þess vegna mega menn ekki líta ánægðir á unnið verk, heldur krefjast meira af sér og sækja fram. Kennslan í læknadeildinni þarf að aukast og batna. Eins og nú er háttað, er búið mjög illa að prófessorum deildarinnar, þeir og að- stoðarmenn þeirra eru ofhlaðnir störfum, vinnu- skilyrðin eru oftast léleg, þeir hafa ekki það rúm eða þau tæki, sem nauðsynleg eru til kennslunnar. Nauðsynlegt er að fjölga lækn- um á Landsspítalanum, svo að þeir, þ. e. læknar, geti betur sinnt skyldu sinni um að kenna stúdentum og kandídötum. Læknis- fræðileg bókasöfn verður að stofna við sjúkra- húsin og í Háskólanum (þar er til vísir að því). Nauðsynlegt er að efla lánasjóð stúdenta, og auka námslánin. Þannig mætti lengi telja, en í stuttu máli er nauðsynlegt að bæta öll vinnuskilyrði til náms og kennslu við læknadeildina. I dag, á þessum minningardegi þjóðarinnar, sem við stúdentar höfum gert að sérstökum baráttudegi okkar, verðum við að heita því, hvort sem við erum við háskólanám enn, eða eigum það að baki, að vinna af kappi að því að sótt verði á og aldrei slakað á kröfunum í baráttunni fyrir framförum í heilbrigðismálum þjóðarinnar. Frá Félagi guðfræðinema Á s. 1. vetri gekkst félagið fyrir nokkrum umræðufundum meðal guðfræðistúdenta, þar sem stúdentar sjálfir höfðu framsögu um guð- fræðileg efni. Auk þess töluðu á fundum félags- ins Alfreð Gíslason læknir, sem talaði um samstarf presta og lækna, og enski skurðlækn- irinn Arnold Aldis, sem hér var staddur á vegum Kristilegs stúdentafélags. Félagið sá um bókmenntakynningu s. 1. vetur í samvinnu við bókmenntakynninganefnd stúdentaráðs. Var þar flutt efni úr kaþólskri tíð. Magnús Már Lárusson, prófessor, valdi efnið og flutti skýr- ingar, en þrír guðfræðistúdentar lásu upp. Auk þess var flutt gamalt tón með aðstoð Róberts A. Ottóssonar. ÞÓRÐUR STURLAUGSSON, stud. oecon.: Vöxtur Viðskiptadeildar Starfsemi Viðskiptadeildar Háskóla Islands hófst árið 1941. Hafði þá um skeið verið starf- ræktur eins konar viðskiptaháskóli, og gengu nemendur hans í viðskiptadeildina við stofnun hennar. Voru því þegar í upphafi 46 nemendur í deildinni, og útskrifaði hún vorið 1942 níu kandidata. Næstu árin þar á eftir, eða til loka heims- styrjaldarinnar, er nokkur afturkippur í deild- inni, og má segja, að hún „nái sér ekki á strik“ fyrr en árið 1947, er hún tekur að vaxa á ný. Árið 1950 hefur hún aftur náð sinni upphaf- legu stærð, og er vöxtur hennar síðan jafn og mjög ör. Taldist hún við síðustu stúdentaráðs- kosningar hafa 104 nemendur. Viðskiptadeildin hefur að ýmsu leyti sér- stöðu meðal annarra deilda háskólans. Má þar til dæmis nefna, að lokaprófið veitir kandidöt- um engin lögákveðin réttindi til opinberra emb- ætta eða annarra starfa. Viðskiptafræðingurinn verður að prófi loknu að ráða sig til skrifstofu- starfa og á sína framtíðarmöguleika meir en aðrir háskólaborgarar undir hagnýti mennt- unar sinnar. Eigi hafa þó þessir vankantar íslenzkra laga orðið viðskiptafræðingum framatálmi, því að nú er svo komið, að ekkert meiriháttar fyrirtæki, sem halda vill velli í harðri samkeppni nútímans, telur sig hafa efni á að starfa án kunnáttumanna í viðskiptafræð- um. Er hér mörgum að þakka og þá helzt frá- bærri atorku forráðamanna deildarinnar, er stöðugt vinna að endurbótum og aukningu námsefnis og kennslu. Annað, sem telja má ólíkt með viðskipta- deild og öðrum deildum háskólans, er fyrir-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.