Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 44
36
STÚDENTABLAÐ
komulag prófa. Deildinni er eigi skipt í hluta
eftir því, hve nemendur eru langt komnir í
námi, heldur eru allir saman á fyrirlestrum og
geta tekið próf í hverri námsgrein fyrir sig,
þegar er yfirferð í henni er lokið. Auðveldar
þetta nemendum mjög próflestur og gefur mun
betri námsárangur en þegar tekið er próf í
mörgum og stundum efnismiklum námsgrein-
um með nokkurra ára millibili.
Nemendur viðskiptadeildar hafa með sér fé-
lag, er starfað að hagsmunamálum þeirra, og
stendur það einnig fyrir umræðufundum,
skemmtunum og kynnisferðum í stórfyrirtæki.
Er ævinlega mikið fjör í því og óskandi, að svo
verði, því að það eflir samtakamátt nemend-
anna og örvar áhuga þeirra á náminu.
BIRGIR JÓH. JÓHANNESSON, stud. odont.:
Fró Tannlækneadeild
í fámennustu deild Háskóla Islands, tann-
læknadeildinni, eru nú að jafnaði 12—14 nem-
endur. Deildin var stofnuð árið 1944, en tók
til starfa haustið 1945, svo að nú í haust eru rétt
10 ár liðin frá því, að kennsla hófst í tannlækn-
ingum hér á landi. Frá upphafi hefir deildin
verið til húsa á efstu hæð norðurálmu Háskól-
ans.
A fyrstu starfsárum deildarinnar voru nem-
endur fáir, allt að fjórðungur þess, sem nú er,
og húsrými hennar því nægjanlegt. En nem-
endum fjölgaði skjótt með vaxandi þörf fyrir
fleiri tannlækna í landinu, og nú er svo komið,
að húsnæðið er orðið allt of lítið, auk þess
sem herbergjaskipan er mjög ábótavant.
Menn geta gjört sér í hugarlund, hvernig
starfsskilyrðin eru, þegar haft er í huga, að
húsnæðið, sem deildin á við að búa, er lítið
eitt stærra en tannlækningastofur almennt
gerast hér á landi. Væri freistandi að lýsa hús-
næði því, sem deildin hefir til umráða, en það
mun hafa verið gjört hér í Stúdentablaðinu
fyrir 2—3 árum, svo að ég leiði það hjá mér að
sinni. Þrátt fyrir þessa erfiðleika og aðra, sem
að deildinni steðjuðu í upphafi, hefir árangur
sá, sem af henni hefir hlotizt, verið ágætur, og
eru allir sammála um það, að með störfum
hennar þennan fyrsta áratug, hafi traustur
+■
Frá ritnefnd
Ritnefnd Stúdentablaðs þakkar öll-
um þeim, sem stuðlað hafa að því, að
blaðið mætti verða sem bezt úr garði
gert, bæði þeim, sem hafa ritað í blaðið
og þeim, sem hafa prýtt útlit þess með
teikningum sínum, myndum og góð-
um ráðleggingum.
Sérstaklega þakkar nefndin starfs-
mönnum Alþýðuprentsmiðjunnar fyrir
ágæta samvinnu og frábæra lipurð í
starfi.
+,--------------------------------------4
grundvöllur verið lagður að áframhaldandi
tannlæknanámi hér á landi. Þetta er fyrst og
fremst því að þakka, að í upphafi voru valdir
að deildinni kennarar, sem voru starfi sínu
vaxnir og hafa með þolinmæði sigrazt á byrj-
unarörðugleikum í starfi sínu.
Margar nýjungar, sem fram hafa komið á
sviði tannlækninga síðustu árin, hafa verið
reyndar, eftir því sem efni og ástæður hafa
leyft. Þær, sem vel hafa reynzt, hafa verið
felldar inn í námið, en hinum hafnað. Kennslu-
bækur eru ætíð þær yngstu, sem völ er á.
Vonandi rætist brátt úr húsnæðismálum
deildarinnar, en ætlunin er, að því er ég bezt
veit, að deildin verði til húsa í hinni nýju við-
byggingu Landsspítalans, sem þegar eru hafnar
framkvæmdir við. Þar verður, án efa, vítt til
ákjósanlegustu fyrir námið, bæði kennara og
veggja og hátt til lofts og skilyrði öll hin
nemendur.
Félag tannlæknanema var stofnað árið 1949,
en vegna fámennis hefir starfsemi þess ekki
verið eins blómleg hjá öðrum fjölmennari
deildarfélögum þessa skóla. Af og til hafa
skemmtifundir verið haldnir nemendum til
skemmtunar og fróðleiks. Einnig hefir sá háttur
verið upp tekinn meðal nemenda deildarinnar
að fara í stutt ferðalag einu sinni á ári, öllum
til hinnar mestu ánægju.