Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Side 45

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Side 45
STUDENTABLAÐ 37 Annáll Háskólans Háskóli íslands var settur fyrsta vetrardag að viðstöddum forseta íslands, fulltrúum erlendra ríkja og fleiri stórmennum. Hátíðin hófst með því, að Dómkirkjukórinn og Guð- mundur Jónsson óperusöngvari fluttu kafla úr háskóla- kantötu Dr. Páls Isólfssonar við háskólaljóð Þorsteins Gíslasonar undir stjórn tónskáldsins. Síðan flutti rektor magnificus, dr. Þorkell Jóhannesson, setningarræðu sína, en þá voru aftur fluttir kaflar úr háskólakantöt- unni. Rektor ávarpaði nú nýstúdenta, mælti til þeirra hvatningar- og viðvörunarorð og árnaði þeim heilla í framtíðinni. Síðan afhenti hann þeim háskólaborgara- bréfin. Að lokum söng Dómkirkjukórinn þjóðsönginn. At- höfninni var útvarpað. Bókmenntakynningar voru tvær á árinu. Fyrri kynningin var með öðru sniði en vant er. Var hún samfelld dagskrá um kaþólsk- an sið á Islandi. Prófessor Magnús Már Lárusson valdi efnið, en guðfræðistúdenlarnir Asgeir Ingibergsson, Hjalti Guðmundsson og Olafur Skúlason lásu. Próf. Magnús tengdi saman kaflana. Hjalti Guðmundsson, stud. theol. og Róbert A. Ottósson sungu tvo forna íslenzka munkasöngva. Dagskrá þessi var flutt í febrú- ar, en var fremur fásótt. Kiljansvaka var haldin 6. marz. Formaður stúdenta- ráðs, Skúli Benediktsson, stud. theol., flutti ávarp. Jakob Benediktsson magister flutti erindi um skáldið, Þorsteinn O. Stephensen leikari og háskólastúdentarnir Árni Björnsson, stud. mag., Baldur Jónsson, stud. mag., Jón Haraldsson, stud. odont., Sigurður Líndal, stud. jur. og Sveinn Skorri Höskuldsson, stud mag., fóru með kafla úr verkum s’káldsins. Jón Sigurbjörnsson söngvari söng lög við texta eftir Halldór Kiljan Laxness, og að lökum las skáldið kafla úr Gerplu. Húsfyllir var á kynningu þessari. Báðum bókmenntakynningunum var síðar útvarpað af segulbandi. í bókmenntakynninganefnd áttu sæti þeir Jón Böðvarsson, stud mag., Jón Marínó Samsonar, stud. mag., og Þórir Einarsson, stud. oecon. Stúdentaráðskosningar fóru fram 29. okt. s. 1. Kosningabarátta var hörð að venju, og komu út eigi færri en 6 blöð fyrir kosningar. Kvöldið fyrir kjördag leiddu menn saman hesta sína á framboðsfundi. Var hann allharður, en flestir munu þó hafa komizt út þaðan jafn heilir og áður, bæði á sál og líkama. Fram komu þrír listar, og urðu úrslit kosninganna þau, að A- listi, borinn fram af Félagi róttækra stúdenta, Félagi lýðræðissinnaðra sósíalista og Þjóðvarnarfélagi stú- denta, hlaut 249 atkvæði og fjóra menn kjörna, Guðmund Pétursson, stud. med., Skarphéðin Péturs- son, stud. theol., Björgvin Guðmundsson, stud. oecon., og Stefán Yngva Stefánsson, stud. odont., B-listi, listi Félags frjálslyndra stúdenta, hlaut 84 atkvæði og einn mann kjörinn, Svein Skorra Höskuldsson, stud. mag., C-listi frá Vöku, félagi lýð- ræðissinnaðra stúdenta, hlaut 273 atkvæði og kjörna Sigurð Líndal, stud. jur., Jón Þ. Hallgrímsson, stud. med., Rafn Hjaltalín, stud. theol., og Jón G. Tómasson, stud. jur. Hið nýkjörna stúdentaráð skipti með sér verkum, og var Björgvin Guðmundsson kosinn formaður, Sigurður Líndal ritari og Stefán Yngvi Stefánsson gjaldkeri. Rússar innrituðust í haust sem hér segir: Guðfræðideild 7, læknadeild 28, lagadeild 13, viðskiptadeild 20, heim- spekideild 88 (þar af 6 í íslenzk fræði), verkfræðideild 17. Eru rússar því samtals 173. Almennur stúdentafundur var haldinn í hátíðasal háskólans 8. febrúar s. 1. vegna skrifa brezkra blaða um sjóslys út af Vestfjörð- um. Var eftirfarandi tillaga samþykkt einróma: „Almennur fundur stúdenta við Háskóla íslands, haldinn þriðjudaginn 8. febr. 1955, lýsir yfir vanþóknun sinni og hryggð vegna hinna fáheyrðu aðdróttana og einstæðu ósanninda, sem fram hafa komið í garð ís- lendinga í brezkum blöðum að undanförnu í sam- bandi við sjóslysin út af Vestfjörðum nýlega. Fundurinn beinir þeirri eindregnu áskorun til ís- lenzkra stjórnarvalda, að þau láti einskis ófreistað til að hrinda þessari ódrengilegu árás og krefjist þess af brezkum stjórnarvöldum, að þau beiti sér fyrir leið- réttingu og algjörri uppreisn Islands í þessu máli“. Félagsheimili stúdenta hefur verið ætluð lóð í háskólahverfinu, eins og áður hefur verið frá skýrt. Gengið var frá heildar- teikningum af húsinu á árinu. Enn sem komið er, evu

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.