Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 46

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 46
38 STUDENTABLAÐ sjóðir félagsheimilisins fremur rýrir, en stjórn sú, sem kosin var fyrir félagsheimilið, hefur gert frumdrög að víðtækum fjáröflunarleiðum, sem vonir standa til, að komist til framkvæmda fyrr en síðar, enda er hér um brýnt nauðsynjamál stúdenta að ræða. Hátíðahöld og skemmtanir voru með margvíslegu móti eins og jafnan áður. Er fyrst að nefna hátíðahöld 1. des. s. 1. Þau hófust með guðþjónustu í 'kapellu háskólans 'kl. 11 f. h., og sá Bræðralag um undirbúning, en séra Guðmundur Sveinsson prédikaði. Kl. 13,15 héldu stúdentar í skrúð- göngu frá hsákólanum að Alþingishúsinu og hlýddu þar á ræðu prófessors Jóns Helgasonar, er hann flutti af svölum hússins. Kl. 15,30 hófst samkoma í hátíðasal háskólans. Formaður stúdentaráðs flutti ávarp. Ræður fluttu þeir Gísli Sveinsson, fyrrv. sendiherra, og próf. Sigurbjörn Einarsson. Kristinn Hallsson söng, en Jór- unn Viðar, Ernst Norman, Ingvar Jónasson og Einar Vigfússon léku Mosaic mucical eftir Bengtson. Um kvöldið var hóf stúdenta að Hótel Borg, og voru for- setahjónin meðal gesta. Ræðu flutti próf. Jón Steffens- sen, Árni Bjömsson og Erlingur Gíslason sungu glunta og Hjálmar Gíslason skemmti með gamanvísnasöng. Að lokum var dansað og skemmtu menn sér ágætlega. Þóttu hátíðahöld dagsins takast vel að öðru leyti en því, að skrúðganga var fámenn og sviplítil. Er helzt búizt við, að hún verði lögð niður. Aramótafagnaður var haldinn í samkomusal Þjóð- leikhússins. Guðmundur Pétursson, stud. med., flutti áramótaræðu, en síðan var dans og gleði fram eftir nóttu. Sumarfagnaður var hald- inn að Hótel Borg. Jón Har- aldsson, stud. odont., flutti ávarp, en síðan var stiginn dans. Þá efndi stúdentaráð til dansleiks og einnar kvöld- vöku á árinu. Stúdentaráð annaðist að venju dagskrá í ríkisútvarp- inu síðasta vetrardag. Þar flutti formaður stúdentaráðs ávarp, en erindi fluttu þeir Asgeir Ingibergsson, stud. theol., og Sigurður Líndal, stud. jur. Lesið var upp úr kvæðum eftir Hannes Pétursson, stud. mag., Jón Böðvarsson, stud. mag., og Matthías Jóhannessen, stud. mag. Að lokum var samfelld dagskrá, svipmyndir úr skólalífi fyrr og nú, er Jökull Jakobsson, stud. theol. stjórnaði. Gjafir bárust háskólanum margar og höfðinglegar. — Er þar fyrst að nefna Verðlaunasjóð Alfreðs Benzons, sem stofnaður var 17. jan. þ. á. af Þorsteini Scheving Thor- steinssyni lyfsala. Er sjóður þessi um 115 þús. kr. og skulu veitt úr honum verðlaun fyrir vísindalegar rit- gerðir um efni úr lyflæknisfræði og lyfjafræði og lyf- sölufræði. Auk sjóðsins færði Þorsteinn Scheving há- skólabókasafninu stóra og dýrmæta bókagjöf, m. a. fágæt rit eftir Arngrím lærða. Einnig hefur Þorsteinn á þessu ári og bróðir hans, Magnús Scheving Thor- steinsson forstjóri, gefið stórgjafir í Minningarsjóð Þór- unnar og Davíðs Schevings Thorsteinssonar. Mun sjóður þessi framvegis standa undir greiðslu á húsaleigu fjög- urra stúdenta í stað þriggja hingað til. Hin svokallaða 1. aprílnefnd, sem stóð fyrir hátíða- höldum í vor vegna 100 ára afmælis frjálsrar verzlunar á Islandi, gaf háskólanum sjóð, að upphæð 100 þús. kr. Að gjöfinni stóðu Verzlunarráð Islands, Samband ís- lenzkra samvinnufélaga, Samband smásöluverzlana og Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Mun sjóði þessum verða varið til styrktar nemendum og kandídötum í viðskiptafræðum hér við háskólann. Á s. 1. vetri var hér á ferð ameríski fiðlusnillingur- inn Isacc Stern. Hélt hann hljómleika fyrir stúdenta, auk þess sem hann hélt allmarga tónleika fyrir almenn- ing. Varði hann öllum ágóða af þeim til kaupa á tækj- um til tónlistarflutnings og hljómplötusafni, sem hann gaf síðan háskólanum. Tæki þessi voru sett upp í sam- bandi við hátiðasalann, og hafa tvisvar verið haldnir tónleikar af þeim í haust. Þá hefur þýzka sendiráðið gefið háskólanum mjög vandað Linguaphone-námskeið í þýzku. Enn fremur hefur Linguaphone-stofnunin í London gefið háskól- anum hið nýja Linguaphone-námskeið í íslenzku, er þeir sömdu próf. Stefán Einarsson og próf. Björn Guð- finnsson. Friðrikssjóður var stofnaður á fundi stúdentaráðs 10. marz s. 1. sam- kvæmt tillögu frá Olafi H. Ólafssyni, stud. med. Til- gangur sjóðsins er sá að veita okkar fræknasta skák- manni, Friðriki Ólafssyni, viss laun árlega, svo að hann geti helgað sig óskiptur skáklistinni. Kosin var tíu manna framkvæmdanefnd, og samdi hún við fyrirtæki og einstaklinga um 500 kr. greiðslu á ári, auk þess sem aðrar fjáröflunarleiðir hafa verið reyndar. Var mála- leitan nefndarinnar yfirleitt mjög vel tekið, og mun starfsemi hennar komin á öruggan grundvöll. Vinnumiðlun stúdenta var haldið áfram. I vinnumiðlunarnefnd áttu sæti Björgvin Vilmundarson, stud. oecon., form., Þórir Ólafasson, stud. med., ritari og Þórður Sturlaugs- son, stud. oecon. Eftir jól hvarf Þórir Ólafsson af landi brott, og tók þá Björgvin Jóhannsson, stud. med., sæti hans í nefndinni. Verkefni nefndarinnar á árinu var einkum þríþætt. I fyrsta lagi að útvega stúdentum vel launaða sumaratvinnu, í öðru lagi vinnu um jólin og í þriðja lagi þeim, er óskuðu eftir vinnu með námi. Umsóknir urðu nú nokkru færri en undanfarin ár, en það kemur einkum til af því, að nefndin lagði nú höfuðáherzlu á að auglýsa þær stöður, sem hún hafði til ráðstöfunar, í stað þess að hafa tal af umsækjendum persónulega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.