Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 47

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 47
STÚDENTABLAÐ 39 Árshátíð Stúdentafélags Háskólans nefndist að þessu sinni samkvæmi nokkurt stórkost- legt, sem haldið var í Tjarnarcafé 20. nóv. s. 1. til heið- urs nýstúdentum. Hafði dregizt nokkuð, að hóf þetta væri haldið, m. a. vegna verkfalls hljómsveitarmanna, en nú var tekið það ráð að dansa eftir hljómplötuleik. Magister bibendi var próf. Jón Steffenssen. Séra Sig- urður Pálsson í Hraungerði flutti ræðu. Vilhjálmur Þórhallsson, stud. jur., fagnaði nýstúdentum og bauð þá velkomna í hóp háskólaborgara, en Halldór Hall- dórsson, stud. med., þakkaði fyrir hönd nýstúdenta. Þá söng Sigfús Halldórsson tónskáld nokkur lög, og óx fögnuðurinn við það um allan helming. Loks voru -borð upp tekin og dansað. Leið svo kvöldið við glaum mikinn, og þótti þetta með beztu skemmtunum sinnar tegundar. Aðild stúdentaráðs að I. U. S. hefur valdið miklu róti í hugum háskólaborgara ó síðast liðnu ári. Málavextir eru þeir, að á fundi í stúdentaráði 11. nóv. 1954 var lögð fram svo hljóðandi tillaga: „Fundur haldinn í Stúdentaráði Háskóla íslands fimmtudaginn 11. nóv. 1954 ákveður, að stúdentaráð sæki um inngöngu í I. U. S. með skilyrðisbundinni þátt- töku. Skulu kosnir þrír menn til þess að gera tillögur til stúdentaráðs verðandi skilyrði þau, er sett verða af ráðsins hálfu, en stúdentaráð sendi síðan inntökubeiðn- ina til I. U. S. ásamt þeim skilyrðum, er það setur“. Flutningsmenn tillögunnar voru 5, eða allur meiri hluti stúdentaráðs, og var tillagan samþykkt með at- kvæðum þeirra gegn 4 atkvæðum fulltrúa „Vöku“. Á fundi í S. H. í. 25. maí 1955 mættu sem fulltrúar I. U. S. Indverjinn Harish Chandra og Norðmaðurinn Egil Danielsen. Var þar samþykktur samningur um aukaaðild („associated membership") Stúdentaráðs Háskóla íslands að Alþjóðasambandi stúdenta (Inter- national Union of Students). Er í samningnum gerð grein fyrir stöðu S. H. í. í I. U. S. og tilgangi samtak- anna. Mælir ein grein samningsins svo fyrir, að „S. H. í. og I. U. S. vinni saman að auknum viðskiptum, er miði að praktískri samvinnu stúdenta: þáttöku í íþróttamótum, stúdentaskiptum, ferðalögum, námskeið- um, ráðstefnum, vetrar- og sumarmótum, aðstoð við þurfandi stúdenta og þátttöku í annarri starfsemi, er S. H. í. -kynni að óska eftir“. Hafa þegar farið fram nokkur stúdentaskipti við Is- land á vegum I. U. S„ og er nánar frá þeim skýrt ann- ars staðar í annálnum. Breytingar á kennaraliði. Prófessor dr. med. Jóhann Sæmundsson yfirlæknir lézt hinn 6. júní s. 1. Dr. Jóhann var fró kennslu sakir veikinda síðast liðið skólaár, og kenndi þá Sigurður Samúelsson fyrir hann og er hann nú eini umsækj- andinn um embætti Jóhanns heitins. En sakir þess, að Sigurður Samúelsson dvelst nú ytra, kenna þeir fyrir hann dr. Sigurður Sigurðsson berklayfirlæknir, Friðrik Einarsson læknir og dr. Oskar Þórðarson læknir. Prófessor dr. Ólafur Lárusson lét af kennslustörfum við lok síðasta vormisseris. Var embættið auglýst, og var cand. jur. Magnús Torfason skipaður prófessor frá 8. júlí s. 1. Prófessor dr. Leifur Ásgeirsson hefur leyfi frá kennslu þetta háskólaár og dvelst við rannsóknarstörf í Bandaríkjunum. Við kennslustörfum hans við verk- -fræðideildina hafa þeir tekið mag. Magnús Magnússon, Björn Bjarnason, cand. mag., og Þorbjörn Karlsson verk- fræðingur. Dr. phil. Ole Widding sendikennari í dönsku lét af starfi hér í lok síðasta haustmisseris, en við því tók cand. mag. Erik Sþnderholm. Á síðasta Alþingi var stofnað nýtt kennaraembætti í lífeðlisfræði, en sú staða er enn óveitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.