Stúdentablaðið - 01.12.1955, Side 48
40
STUDENTABLAÐ
Sendikennarar.
Þessir sendikennarar erlendra háskóla staría hér:
Cand. mag. Erik Spnderholm i dönsku, fil. mag. Anna
Larson í sænsku, cand. philol. Ivar Orgland í norsku
og dr. Edzard Koch í þýzku.
Nýtt kvikmyndahús.
Fyrirhugað er, að háskólinn komi sér upp nýju kvik-
myndahúsi bráðlega. Hefur háskólanum verið gefinn
kostur á lóð undir húsið við Hagatorg. Mun verða
stefnt að þvi, að húsinu verði komið upp fyrir haustið
1961, en þá er útrunninn leigusamningur háskólans um
húsnæði í Tjarnarbíói.
Utanfarir og stúdentaskipti.
Emil H. Eyjólfsson, er stundar nám í París, sat
stúdentaráðstefnu, er haldin var á vegum COSEC í
Ljubliana í Júgóslavíu 5.-9. janúar 1955.
Erlingur Gíslason, stud. mag., sótti alþjóðlegt
stúdentaþing, sem haldið var á vegum COSEC í Birm-
ingham dagana 4.—14. júlí 1955. Tóku stúdentar frá
53 þjóðum þátt í móti þessu.
Tveir fulltrúar frá Alþjóðasambandi stúdenta, I. U. S.,
dvöldust hér um tíma s. 1. vor, m. a. til þess að hafa
viðræður við stúdentaráð um
inngöngu í I. U. S., og er þess
getið nánar annars staðar í
annálnum. Sá stúdentaráð
um uppihald þeirra og fyrir-
greiðslu hér. Voru þeim
sýndar helztu stofnanir i
Reykjavík og auk þess farið
með þá til Þingvallar. Að
skilnaði skiptust þeir á gjöf-
um við stúdentaráð, og ætla menn, að þeim hafi þótt
förin hingað allgóð.
Björn Pálsson, stud. jur., og Ingi G. Lövdal, stud.
oecon., dvöldust s. 1. júlímánuð i sumarbúðum I. U. S.
í Sommerwalde skammt frá Berlín. Þótti þeim félög-
um þar gott að vera. Fluttu þeir hingað stein for-
kunnarfagran og færðu stúdentaráði að gjöf frá Berg-
háskóla.
Samkvæmt boði I. U. S. sendi stúdentaráð þriggja
manna sendinefnd á 10. ráðsfund samtakanna i Sofíu
hinn 26. ágúst s. 1. Til fararinnar völdust þeir Ingvar
Gíslason, stud. jur., Þórir Einarsson, stud. oecon., og
Arni Bjömsson, stud. mag. Var Ingvar formaður nefnd-
arinnar. A þingi þessu voru tekin til meðferðar ýmis
sameiginleg hagsmunamál stúdenta. Hófst þingið á ræðu
framkvæmdastjóra, þar sem hann gerði grein fyrir hlut-
verki I. U. S. Brýndi hann fyrir mönnum, að æðri
menntun skyldi vera frjáls og aðgengileg öllum, án
tillits til efnahags og þjóðfélagsstéttar eða uppruna.
Einnig lagði hann áherzlu á endurskoðun námsefnis
í háskólum, lausn vandamála nýlendustúdenta, sam-
starf og sameiningu stúdenta o. fl. Ráðsfundi var slitið
kvöldið 31. ágúst, og bauð þá borgarstjórnin í Soffíu
mótsgestum til veizlu, en næstu daga þar á eftir voru
famar skemmti- og kynningarferðir um nágrennið.
Voru þeir félagar mjög ánægðir með för þessa og töldu
hana hafa verið bæði til gagns og lærdóms.
Lagamót í Lundi.
Mót norrænna laganema og ungra lögfræðinga, hið
10. í röðinni, var haldið í Lundi 5.—15. júní s. 1. Mótið
sóttu 8 Islendingar, þar af 6 laganemar við Háskóla
Islands. Hinir sænsku gestgjafar höfðu vandað mjög
til undirbúnings og var allur aðbúnaður með ágæt-
um. Viðfangsefni mótsins var hlutverk lögfræðinga í
þjóðfélaginu. Um það voru haldnir 20 fyrirlestrar og
umræður fóru fram. Auk þess var ferðazt um suður-
héruð Svíþjóðar, komið á fagra staði og sóttar heim
merkar stofnanir. Einn íslenzkur fræðimaður flutti
fyrirlestur á móti þessu. Var það Arni Tryggvason,
hæstaréttardómari.
Heimsmeistaramót stúdenta í skák 1955
fór fram í Lyon i Frakklandi dagana 6.—15. maí. Af
íslands hálfu tóku þátt i mótinu Guðmundur Pálma-
son, stud. polyt., Ingvar Asmundsson, stud. oecon., Þórir
Ólafsson, stud. phil., og Sveinn Kristinsson, stud. mag.
Fararstjóri og varamaður var Guðjón Sigurkarlsson,
stud. med. Varð íslenzka sveitin 6. í röðinni af 13
þátttökuþjóðum og náði beztum árangri allra Vestur-
Evrópuþjóða. Rússar sigruðu og hlutu 41 vinning af
48 hugsanlegum.
Erlendir fyrirlesarar,
sem heimsótt hafa háskólann á árinu:
Próf. Séamus O’Duilearge frú Dublin.
Próf. Frede Castberg háskólarektor frá Osló.
Próf. E. Busch frá Kaupmannahöfn.
Próf. Thorkil Kristensen frá Kaupmannahöfn.
Próf. Felix Genzmer fri Túbingen.
Dr. Richard Doll frá Lundúnum.
Dr. Hakon Stangerup frá Kaupmannahöfn.
Kjell Rödam hæstaréttarlögmaður frá Kaupmanna-
höfn.
Fyrirlestrar fyrir almenning í hátíðasalnum.
5. des. 1954: Próf. dr. Símon Jóh. Agústsson: Hug-
leiðingar um Hávamál frá sálfræðilegu sjónarmiði.
30. jan. 1955: Próf. dr. Þorkell Jóhannesson: Upphaf
stórútgerðar á Norðurlandi á 19. öld.
21. febr. Próf. dr. Jón Jóhannesson: Grænlands-
hrakningar 1406—1410.
21. marz: Þórir K. Þórðarson, dósent: Qurmanhand-
ritin og Essenar.
6. nóv.: Próf. Sigurbjörn Einarsson: Lífsskoðun Al-
berts Schweitzers.
13. nóv.: Sr. Bjarni Jónsson: Um Spren Kierkegaard.
Erlendir stúdentar,
sem stunda nám við háskólann i vetur eru 18 að tölu.
f læknisfræði eru sjö Norðmenn og einn Færeyingur.
íslenzku nema 10 erlendir stúdentar, einn danskur,
einn norskur, einn enskur, einn hollenzkur, einn kana-
dískur, einn svissneskur, tveir þýzkir og tveir spænskir.