Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.01.1970, Qupperneq 11

Stúdentablaðið - 01.01.1970, Qupperneq 11
STÚDENTABLAÐ 11 miklu, livernig íslenzkum mennta- og menningarstofnun- um tekst að halda í horfinu og bœgja áleitnum skaðvöld- um frá. En úrslitum ræður um sigur eða ósigur í barátt- unni um viðhald og velferð íslenzkrar tungu, hvort ís- lendingar hafa framvegis sem hingað til þjóðarmetnað og manndómsvilja til að tala og rita tungu feðra sinna óspillta, en það ákvarðar um ókomin ár, hvort Islendingar teljast sérstök, sjálfstæð þjóð. Ami Þórðarson. Til þess að unnt sé að svara þessari spurningu, verður að vera ljóst, livað í því felst, að íslenzk tunga sé í hættu. Á hverju er hætta? Hvað er í húfi? Eg hugsa mér, að tvennt skipti hér mestu máli. I fyrsta lagi er íslenzk tunga í hættu, ef horfur eru á, að hún líði undir lok, hverfi úr tölu lifandi tungumála og verði ckki annað en dautt bókmál eins og t. d. gotneska. I öðru lagi kalla ég, að íslenzk tunga sé í hættu, ef líkur eru til þess, að notendur hennar hætti að geta skilið ís- lenzk rit frá Ara fróða til Halldórs Laxness nema í þýð- ingu ellegar talað mál, sem geymt er á segulböndum eða hljómplötum frá síðustu áratugum. Öllum hlutum, kvikum sem dauðum, er hætta búin á einhvern hátt. Allt getur skemmzt eða spillzt, eyðilagzt eða tortímzt. Svo cr einnig urn mál manna. En það er ekki venja að tala um hættu fyrr en umtalsverðar líkur eru til ])ess, að eitthvað slíkt muni að höndum bera þá og þegar eða innan skamms. Ég ætla að miða svar mitt við næstu 100 ár eða u. þ. b. og geri þá ráð fyrir, að heimurinn standi og þjóðin lifi, þótt hvort tveggja sé öldungis óvíst. Að þessu atlvuguðu getur það ekki verið neitt vafamál, að íslenzk tunga er í einhverri hættu. Spumingin er frem- ur sú, hve mikil hún er. Og þá skiptir lika máli, hvort höfð er í huga alger útrýming eða gagnger breyting á málinu. Ég fyrir mitt le.yti óttast pyndinguna meir en aftökuna. Ef þjóðin heldur velli og fær að ráða málum sínum sjálf, hefi ég enga trú á, að hún leggi niður tungu sína af frjálsum vilja og fari að mæla á máli annarrar ])jóðar. Þar að auki er þetta ekki eins einfalt og að skipta um föt. Ilins vegar væri eflaust liægt að kúga þessa dverg- þjóð til hvers sem er, ef í það færi. Sagt hefir verið, að sjálfstæðisbarátta smáþjóðar sé ævarandi, og það hygg ég, að sé rétt. Glötun sjálfsforræðis er að vísu ekki sama og útrýming þjóðtungunnar. Það sýnir saga íslendinga sjálfra. En á það ber að líta, að tímarnir eru breyttir og ekki víst, að íslendingum yrði leyft að nota sitt eigið mál, ef þeir kæmust oftar undir erlend yfirráð. En fyrr má rota en dauðrota. Mannlegt mál er breyt- ingum undirorpið hvar sem er og hvenær sem er, hvorl sem þjóð er einangruð eða ekki. Sú hætta vofir því ávallt yfir, að mál íslendinga taki smám saman þeim stakka- skiptum, að það, sem áður var sagt og skrifað á íslenzku, verði þeim ekki lengur skiljanlegt. Þannig hefir farið fyrir frændum vorum á Norðurlondum. Þeir geta tæplega talizt læsir á eigið mál, ef það er eldra en 300—400 ára. Svipað er að segja um Englendinga og Þjóðverja. Allt vort mál- verndarstarf hefir miðað að því, að þetta gæti ekki gerzt á Islandi. Vandinn er að halda svo á málum, að þjóðtunga Is- lendinga verði þeim sem fullkomnast tæki i dagsins önn — hverjar sem kröfurnar verða til lífsins gæða og hversu hátt sem andinn stefnir — án þess að rjúfa þurfi það undraverða samband, sem Islendingar hafa við fortíð sína og á engan sinn líka meðal þjóða lieimsins. Og þjóðin hefir sannað, að þetta er unnt að gera. Fram að þessu hefir það tekizt vegna þess, að fólkið í landinu hefir verið ein- liuga. Þannig hefir íslenzka þjóðin unnið mesta menning- arafrek sitt. Þótt einhverjir hafi dottað, hafa alltaf nógu margir vakað. Það er þetta, sem skiptir sköpum, en ekki liitt, hvort erlend áhrif eru hér meiri eða minni. „Vilji er allt, sem þarf“. Enn erum vér ekki verr staddir en svo, að nógu margir halda vöku sinni, svo að allt megi blessast. Og í sannleika sagt hefir íslenzk tunga aldrei verið máttugri en nú. Mér cr því fjarri skapi allt bölmóðstal. En ef tungan á að vera þjóðinni framvegis það, sem lnin hefir verið henni hingað til, verður sífellt að halda henni í góðri rækt og dugir ekki að kveinka sér við þeirri fyrirliöfn. Ef þjóðin telur hana eftir, á hún ekki frelsi sitt skilið. Sú hætta, sem ég óttast e. t. v. helzt nú í svipinn, er, að einhugur þjóðarinnar bili af misskilningi fremur cn viljaleysi, að ábyrgðinni verði varpað yfir á skóla og sér- fræðinga, en almenningur láti sér fátt um finnast eða vantreysti sér. Það sé fjarri mér að gera lítið úr ábyrgð og skyldum íslenzkukennara og uppeldisstofnana. En hitt má ekki gleymast, að íslenzk málvernd er ekki viðfangs- efni handa fáum útvöldum. Ilún er einmitt þjóðarverkefni. Baldur Jónsson.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.