Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 15

Stúdentablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 15
STÚDENTABLAÐ 15 Álfheiður Kjartansdóttir húsmóðir: Ænei, ég held, að íslenzk tunga sé ckki í bráðri hættu. Þótt erlend áhrif dynji á henni úr öllum áttum, ]>á er hún svo blessunarlega úr garði gerð, að hún getur ekki gleypt þau hrá, hún verður að japla á þeim langa hríð, spýta þeim ef til vill frá sér aftur ellegar kyngja þeim, en þá er búið að matbúa þessi áhrif og gera þau auðmelt, aðlaga útlendu orðin íslenzku beygingarkerfi, og það er naumast á þeim erlendur svipur. Þetta er víst kallað málþróun eða eitthvað þvílíkt. Margir hafa stórar áhyggjur af þeirri breytingu, sem orðið hefur á íslenzkum heimilum og fjölskyldu- lífi, fólk hafi ekki lengur tíma til að tala við börnin og kcnna þeim málið, gamla fólkið sé ekki lengur við hönd- ina að lesa fyrir þau og kenna þeim vísur og kvæði. Mér hefur skilizt, að t. a. m. þættir hljóðvarpsins um ís- lenzkt mál og daglegt mál séu óhemju vinsælir hjá fólki á öllum aldri. Eg held, að áhugi á íslenzkri tungu sé ofarlega í okkur flestum stundum veit fólk einfaldlega ekki af þessum áhuga, fyrr en eitthvað verð- ur til að levsa hann úr læðingi, og allt í einu er unglingur með þágu- fallssýki búinn að snúa við blaðinu, farinn að vanda mál sitt og lesa Snorra Hjartarson og Þorstein frá Hamri, og þá er honum borgið. Ólafur Jensson læknir: Það er nú erfitt að svara þessu. lslenzkan er í mikilli sókn á mörg- um sviðum, og það hefur reynt á þolrifin í seinni tíð í gífurlega mörg- um fræðigreinum. Það er ekki sjáan- legt annað en hún verði burðarás- inn í andlcgum fræðigreinum í fram- tíðinni. íslenzkan er nægilega frjó til þess að fullnægja hugsanlegri þörf að mestu levti þó að ný tækniorð berji sífellt að dyrum og skapi tíma- bundna erfiðleika, sérstaklega þar, sem framvinda er mjög hröð. Eg er bjartsýnn, hvað snertir þróun og möguleika íslenzkunnar hjá þeim, sem hafa gengið í skóla og lært að vanda mál sitt. Aftur á móti cr viss hættublika á lofti, og það er fyrst og fremst mikil notkun erlendrar tungu hjá æskunni. aðallega í erlendum dægurlögum, sem eru reyndar svo fábreytileg hvað snertir orð, að ekki getur verið um að ræða framfarir á þeirri tungu, sem sungið cr á, en hvíld frá siing á eigin tungu. Sá hluti æskunnar, sem hefur hlotið litla menntun og lítið aðhald, er einkum í hættu fyrir þessum áhrifum. Þegar þessi æska fer að kenna sínum börnum íslenzka tungu, eru líkur á því, að ekki sé mikil málkennd hjá slikum foreldr- um. Af þessu má kannski draga þá ályktun, að hætta sé á skiptingu í ída Ingólfsdóttir fóstra: Það fer nú eftir því, hvernig á það er litið. Ég held þó, að ekki steðji að henni mikil hætta, en að vissu leyti þurfum við að vera vel vakandi yfir móðurmáli okkar. Það virðist vera þannig ástatt fyrir sumu yngra fólki, að það eigi erfitt mcð að tjá sig, nenni jafnvel ekki að hugsa. Það má vera að þetta sé vegna þess, að það les ekki nægjan- lega mikið af góðum íslenzkum bók- um, og eins koma þarna erlend áhrif. Það umgengst heldur ekki nógu mik- ið eldra fólkið lengur, og þess vegna verða skólarnir og jafnvel dagheim- ilin að koma til hjálpar. En þeim börnum, sem alin eru upp á heimil- um, þar sem gott mál er talað. er ekki svo hætt við að týna því. Erlendu áhrifin koma aðallega méð erlendum dægurlagatextum,sem krakkarnir gleypa í sig og læra, en svo geta þeir kannski ekki komið móðurmálinu fyrir sig í daglegu tali. tvo hópa: þeir, scm eru ríkir á orð, og þeir, sem eru fátækir, og jafnvel þeir, sem eru bláfátækir. Við höfum þó baráttutæki, sem eflaust verður bcitt af góðum mönnum á vísinda- legan hátt, þar er hclzt að telja skóla, útvarp og sjónvarp.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.