Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.05.1973, Side 4

Stúdentablaðið - 01.05.1973, Side 4
I. EFNAHAGSREIKNINGUR. Fjárhagur Stúdentaráðs Skilafundur SHÍ, sem er nokkurskonar uppgjörsfundur fráfarandi Stúdentaráðs, var haldinn 7. apríl s.l. Samkvæmt venju var þar lagt fram reikn- ingsyfirlit liðins rekstrarárs þ.e. apríl ’72 — 1. apríl ’73. 1 ljós kom að fjárhagsafkoman í lok þess var mjög traust. Rekstrarhagnaður reyndist kr. 331.228,00 og hafði þá verið afskrifað kr. 234.648,00. Eign- ir umfram skuldir voru kr. 1.001.817,00. Hér á eftir fylgir úrdráttur úr reikningsyfirliti SHl, en reikn- ingarnir í heild fást fjölritaðir á skrifstofu SHl. Ástæðurnar fyrir því, hversu rekstrararafkoman reynist góð eru einkum tvær. 1 fyrsta lagi varð hagnaður af áttadagsgleði mun meiri en áætlað hafði ver- ið fyrirfram. í öðru lagi tókst með aðgæzlu og skynsamlegri samvinnu við SlNE um skrif- stofuhald að halda skrifstofu- kostnaði um 100 þús. kr. und- ir áætlun. Hið háa lánsframlag til Stúdentablaðsins 230 þús. kr. er vafalaust þyrnir í augum sumra, en í því sambandi er vert að geta þess, að framlag til Stúdentablaðsins á þssu kjörtímabili er u.þ.b. 21 þús. kr. á hvert blað (alls útgefin 11 blöð), en var á kjörtíma- bili fyrra ráðs 38 þús. kr. á blað (alls útgefin 4 blöð). Þannig að rekstur blaðsins hefur augljóslega farið batn- andi. Enda þótt rekstrarafkoma liðins kjörtímabils hafi verið góð er ljóst að á yfirstandandi kjörtímabili þurfa tekjur að vaxa verulega ef unnt á að vera að standa undir hinni auknu starfsemi, sem fyrirhug- uð er og þegar hefur verið tekin ákvörðun um. Þar er um að ræða nýendurskipu- lagða stöðu formanns SHl, sem m.a. felur það í sér að hann hlýtur allt að kr. 240 þús kr. laun fyrir að vera nánast heiltíma starfsmaður SHl. Þá má nefna aukin fram- lög til menningarmálastarf- semi innan HÍ, útgáfustarf- semi, leiksýningar, leikhringi, seminör o.s.frv. auk væntan- legrar starfsemi nýstofnaðrar fundanefndar, sem kann að reynast kostnaðarsöm. Ekki er ólíklegt að kostnaður af þess- ari starfsemi nemi á milli 2 og 300 þús. kr. Rekstrarkostnaðarauki SHl á yfirstandandi kjörtímabili kann því að nema um 500 þús. kr. og er þá ekki reiknað með verð- og kauphækkunum. Auk þess sem núverandi tekjustofnar geta með engu móti staðið undir þessum kostnaðarauka, kann svo að fara,að hinn drýgsti þeirra, áttadagsgleðin, falli niður um næstu áramót vegna andstöðu íþróttahreyfingarinnar við þessari notkun Iþróttahallar- innar. Það er því augljóst, að leita'" verður nýrra tekjuliða. Innan SHl hafa menn einkum hall- ast að því, að þær 500 kr. af hverju innritunargjaldi, sem fram að þessu hafa runnið til greiðslu á 2 milljón kr. ábyrgð stúdenta á kostnaði við bygg- ingu Félagsheimili stúdenta renni framvegis til Stúdenta- ráðs, þar sem ábyrgðin er nú að fullu greidd. Þetta virðist á margan hátt eðlilegasta og heppilegasta úr- ræðið og það sem ekki hækk- ar kostnað hins almenna stúd- ents. Þar að auki er um svo háa upphæð að ræða (uþb 1 milljón á ári) að fjárhag SHl ætti að vera borgið næstu ár- in. Halló stúdentarí Okkar ástkæri meðbróðir og skólafélagi Stefán Unnsteins- son hefur látið af ritstjórastörfum við Stúdentablaðið og annar maður tekið hans sæti. Þannig er lífsins gangur, en seint verður Stefáni fullþakkað vanþakklátt starf í þágu stúdenta, sem hann rækti af stakri eljusemi og óeigingirni. Þeir sem hafa notið frábærra starfskrafta hans að undan- förnu eru fulltrúar útgerðarauðvaldsins á fjörðum vestur, og svo náttúrlega þeir fjölmörgu verkamenn þar, sem hann hefur starfað með, og sparað ótalin handtök og erfiði. Stúd- entar mega minnast ritstjóra síns með söknuði um leið minn- ugir þess, að Stúdentablaðið getur ekki kallast stúdentablað, nema stúdentar hafi nennu á að skrifa í það; að þeir lesi það og styrki með áskriftum. Það er nú mergurinn málsins. Nýskipaður ritstjóri vill því hvetja alla ritfæra hugsandi menn, til að draga sig fram úr hýði sínu, og koma öllum sínum hjartans eldmóði á þrykk í Stúdentablaðinu. Það stendur öllum stúdentum opið eins og.alkunna er,- Hitt er aftur á móti grátleg staðreynd, að allt of fáir stúdentar hafa tímt að sjá af litlum 300 krónum af svimhá- um, námslánum sínum, til að splæsa í áskrift á þeirra eigin ? málgagni. Það er í rauninni reginhneysa að innan við þriðj- ungur þeirra, sem kaupa blaðið skuli vera við nám í háskól- anum. Blaðið á jú að heita stúdentablað. Viljum við því hér með áminna hlutaðeigandi stúdenta og hvetja þá til að næla sér í áskrift. Eins vill Stúdentablaðið minna áskrifendur sína á að í draga nú ekki lengur að senda greiðslu fyrir áskrift þessa árs. Stúdentablaðið er fátækasta blað landsins, og því ekki vert að sýna því ósJdlvísi I áskriftum. Eitt tölublað hefur því miður fallið úr frá áramótum, en blaðið vill hugga á- skrifendur sína með því, að úr því verður bætt að hausti. Og að lokum: Kaupið, lesið og skrifið í Stúdentablaðið, málgagn stúd- enta. NEÐANMALSSAGAN: ÁREITI I STRÆTISVAGNINUM I. HLUTI Eftir Ármann A. Sveinsson Frú Magdalena hagræddi sér í stóln- um fremst í strætisvagninum. Hún hafði óljósan fiðring í hægri úlpuvas- anum en uppgötvaði brátt sér til hug- arhægðar, að það var bara vinstri höndin á henni að róta eftir smápen- ingum. Frú Magdalena leit um öxl, og síðan eldsnöggt fram aftur. Það fór ekki á milli mála að maðurinn, sem skrifað hafði verið um í Velvakanda og nefndur var Búkurinn, sat aftast í vagninum, úti í horni, og gaf henni gætur. „Guð minn góður“ hugsaði frú Magdalena. „Þetta er alveg voðalegt,“ sagði hún við sjálfa sig. „Hvernig dirf- ist Búkurinn að horfa svona dónalega á mig. Ég er alveg viss um, að hann hefur áreiti í huga.“ Hún hafði séð á það minnst í Velvakanda, að Búkurinn hefói oftast áreiti í huga. „Guð minn góður, hvað á ég að gera?“ hugsaði frú Magdalena. En Búkurinn sat sem fastast og horfði út um gluggann. Hann horfði á hús, bíla, reiðhjól, konur, karla, börn, gamalmenni, hunda, ketti og ljósa- staura, og hafði áreiti í huga. „Guð minn góður,“ hugsaði frú Magdalena, og færði sig aftar í vagninn. Framhald í næsta blaði. 4 — STÚDENTABLAÐIÐ EIGNIR: Handbært fé í banka og sjóði...................... 432.754,00 Hjá SlNE ............................. 14.685,00 Hjá Stúdentabl. f. f. ári. 150.755,00 + aukning á árinu ........ 230.230,00 Samtals: 381.565,00 -r- eftirgefið ........... 150.755,00 230.230,00 Hjá Gylfa Jónssyni ................... 2.400,00 Hjá Vietnam nefnd ................... 3.569,00 Hjá 1. des. nefnd ................... 9.089,00 Óhafið rikisframlag .................. 30.000,00 Fyrirfram greidd laun ................ 10.000,00 --------- 299.973,00 ÁHÖLD: Hrein áhaldaleiga ............................. 121.253,20 ÝMISLEGT: Eignfært framl. til ferðaskrifstofu stúd. 27.785,00 Námstæknibæklingur ............... z 34.075,00 Námsmannahandbók .................. 114.976,00 176.836,00 Samtals eignir: ................................. 1021.816,60 SKULDIR: Ógr. sjálfsábyrgð til Samv.tr....... 20.000,00 EIGIÐ FÉ: Höfuðstóll f. f. ári 541.113,01 + afskr. sk. við félagsh.sjóð 129.475,64 + hagnaður á árinu 331.227,95 Samtals skuldir: ................... 1021.816,60 II. REKSTRÁRREIKNINGUR: GJÖLD: Afskriftir: Samt. afskrifað 234.647,55 FERÐAKOSTNAÐUR: NOM í Osló’ ....................... 39.730,00 European Youth Conference, Helsinld 15.000,00 Samtals ferðakostnaður: ........... 54.730,00 SKRIFSTOFUKOSTNAÐUR: Laun ............................... 245.300,00 Pótur og sími ..................... 43.527,00 Fjölrit. kóstn. ' j 28.24^4,00 : . i . - 10.803,00 Samt. fjölritunarkostnaður ....x... 17.444,00 Annað (ritföng, viðg. o.þ.h.) ..... 28.881,70 Samtals skrifstofukostnaður: .............. 335.152,70 YMISS KOSTNAÐUR: Bifreiðakostnaður ..............„.... 10.161,00 Annað (augl. viðg. o.þ.h.) ........ 90.913,00 Samtals ýmiss kostn.: .:.................... 101.074,00 ANNAÐ: . Kynningarfundur .....:.............. 27.201,30 Framlag til ÆSÍ ........._......:.. 5.000,00 Framlag til Menn. mál. starfsemi .. 14.591,00 Framlag v. Vestmannaeyjasöfnunar 100.000,00 Framlag í Landhelgissjóð .......... 20.000,00 Samtals: 166.792,30 Samtals gjöld: ............................... 892.396,55 Hagnaður: 331.227,95 1223.624,50 TEKJUR: Áttadagsgleði 669.143,50 Innritunargjöld 367.500,00 Ríkisstyrkir 143.000,00 Hagn. af NOM á Islandi 19.344,00 Hagn. af sölu alþj.skírteina 13.166,00 Vaxtatekjur 7.493,00 Aðrar tekjur 3.978,00 Samtals tekjur: 1223.624,50 * ♦ Á I

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.