Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.05.1973, Page 5

Stúdentablaðið - 01.05.1973, Page 5
Arni Blandon: MCNNTAMÁLA■ ÞANKAK SAGAN AF PALLA Einu sinm var strákm sem hét Palli. Palla langaði til að laera: Palli vildi vera nemandi. Palli fékk sér bók og byrjaði að lesa. „Nú er ég að lœra" sagði Palli. „Nei" sagði pabbi Palla, „þú ert bara að leika þér að lesa. Til þess að læra eitthvað merkilegt verðurðu að fara í skóla." Palli fer í skóla, en Palla finnst skólabækurnar leiðinlegar. „Mig langar ekki að læra þessar bækur" segir Palli ,$vona, svona," segir kennarinn, „þetta eru mjög merkilegar bækur, vertu nú þægur og lærðu cdlt sem stendur í þessum bókum og þá færðu háa einkunn á próf- mu." Palli lærir og lærir, þó honum finnist leiðinlegt ab læra því Palli vill vera duglegur nemandi og fá háar einkunni á prófun- um. Þess vegna hœtlcr hann að brúka munn við kennarann og lærir það sem honum er sagt og tekur öll próf möglunarlaust. Hann hlustar alltaf vel á kenn- arann og segir aldret orð í tím- um og Palli er því reglulega stilltur og góður nemandi. Palli lærir að tilgangur menntunar er að taka próf. Palli lærir að allt er satt sem stendur bókum og Palli hættir alveg að hugsa sjálf- stætt eða bera fram athugasemd- ir. Palli verður því '’taf feg- inn þegar hann sleppur við að gera það sem reynir á sjálfstætt framkvæmdaþrek hans. Palla finnst bezt að láta mata sig á staðreyndum vegna þess að hann er vanastur því og kann ekki önnur vinnubrögð. Svo heldur Palli áf:am að læra og fer í Háskólann. Þar hittir hann einhverja stúdenta sem eru að tala um seminör, marklýs- ingu og nýjar námsaðferðir. En Palli vill ekki hlustu á þá, því hann hefur lært að öruggast er að treysta kenurunum og hann veit að til þess að fá góðar eink- unnir er bezt að hafa kennarana á sínu bandi og vera ekki með neinar skoðanir um að einhverjn þurfi að breyta. Palli veit að það eirta sem hann þarf svo að gera til að ná góðu prófi er að lesa vel námsbækurnar sem kennar- inn segir honum að Lesa fyrir prófið. en síðan geri líka ekk- ert til þó hann gleymi Nlu sem hann hefur lært þegar prófinu er lokið. Og Palla finnst bezt að lesa út af fyrir sig í og iði og vera ekki að láta aðra stúd- enta rugla sig i ríminu með nýjum skoðunum. Og Pall' ' srir og lærir allan ársins hring og vill ekk.i vinna neitt á sumrin því honum finnst svo leiðinlegt og erfitt að vinna Svo þegar Palli er búinn að læra fær hann mikið kaup fyrir litla og auðvelda vinnu hjá mönnum sem segja honum hvað hann á að vinna. Og nú græðir PaUi svo mikla peninga á svo skömmum tíma að hann getm keypt sér flottan bíl og stórt hús og hann eignast hlut í stóru fyr- irtæki sem hann græðir heilmik- ið á, og hann getur ávaxtað pen- ingana sína í skuldabréfum og fasteignabraski. Og Palli getur látið margt fólk, sem ekki hefur fengið neina menntun, vinna mikla, erfiða og leiðinlega vinnu í fyrirtækinu fyrir lítinn pening og Palli græðir á og fingri. Og Palli hugsar með sér: Það er eins gott að verkafólkið fer ekki í skóla því þá væri enginn til að vinna leiðinlegu og erfiðu verkin og þá mundi ég ekki græða svona mikla peninga. Og Palli er feginn að hann skyldi lesa allar leiðinlegu skólabæk- urnar og vera svona hlýðinn við kennarana: Því ef hann hefði ekki verið það væri hann ekki svona 4kur. Markmið þessa greinarkorns er að vekja stúdenta til umhugs- unar og umræðu um gildi og tilgang meníiftunar, námshætti, kennslufyrirkomulag o. s. frv., sem sé, þau mál er ættu að varða stúdenta hvað mest, þar eð þáu eru grundvöllur' ög ammi þess vinnusviðs er stúdentar hafa. Á- hugi stúdenta í Háskólanum virðist þó vera furðu lítill á þessum grundvallarmálum náms- manna ef marka má fjölda þeirra greina sem birtust í Stúd- entablaðinu 1972 en þar fjöll- uðu tvær greinar um slík mál: „Hugleiðingar um : kólamennt- un" eftir Björn Bergsson (7. tbl.), þar sem segir m. a.: „Grundvallarhlutverk menntunar á að vera það, að búa nemand- ann undir framtíðina. Það á fyrst og fremst að búa nemand- ann undir það samfélag sem hann sjálfur mun lifa í fr: mtíð- inni en ekki undir óbreytta nú- tíð eins og nú er gert. Ég vil leyfa mér að fullyrða að í suin- um tilvikum hér á landi sé ver- ið að búa menn undir framtíð- ina sem óbreytta nútíð" og „Menntun í nútímaþjóðfélagi á að stuðla að sjálfsmótun og sjálfsstjóm nemenda. studdri upplýstri skynsemisvitund, efldri td gagnrýnnar afstöðu í hverju efni." Hin greinin er eftir Ein- ar Orn og heitir: „Námsmanna- hreyfing — hvenær kemur bú?" (8. tbl.). Þar segir m .a.: „Náms- maðurinn byrjar, eða heldur i- fram í mörgum tilfellum. að keppa við félaga sína og skríða fyrir kennurum sínum og öðmm yfirboðurum. Hann klifrar upp prófstlgann með þolinmæði og þrautseygju og möglar ekki. hversu óskynsamleg sem náms- efnið, kennslan og prófin kunna að vera. Hann veit að það borg- ar sig ekki, það gæti aðeins taf- ið hann á uppleiðinni. Hann reynir að takmarka hugsun sína við eigin vellíðan og vasntanlega efnalega velferð." Tilgangur þessa greinarkorns felur í sér að algildar skýrgrein- ingar, og fullnaðarafstaða til ein- stakra mála verða látin liggja milli hluta en stúdentum ætlað að fyl’i í sjálfsagðar eyður með ferskum hugmyndum og um- ræðum. Drepið er á nokkrar hugmyndir um nýbreytni í námsháttum sem hafa verið of- arlega á baugi víða meðal er- Iendra stúdenta undanfarin ár og hafa meira að segja verið settar fram í stefnuskrá menntamála- nefndar SHÍ. Einnig eru dregnar fram nokkrar ástæður fyrir kröf- um stúdenta um afnám úreltra kennsluhátta. 1. Hvers vegna vilja stúdentar fækka fyrirlestrum? 1. Ef góð kennslubók í ákveð- inni grein er fyrir hendi og nemandinn kann að lesa, þarf ekki að Iesa bókina fyrir hann. 2. Ef um enga kennslubók er að rasða í ákveðinni grein væri ráð að gefa út þennan blessað- an fyrirlestur, sem kennarinn er búinn að stauta sig í gegnum í bráðum 20 ár. Fyrirlestrar eru fornaldarvinnubrögð frá þeim tíma er bækur voru ekki til: „Fyrirlestrar eru móðgun vtð prentlistina.' 3. Flestum leiðist eintal og upp- Iestur á þurrum satðreyndum. Er sýnt hefur verið fram á að vi-rkt nám er árangursríkara en óvirkt virðist engin ástasða til að halda í úreltar kennsluaðferðir nema ef vera skyldi fyrir atvinnumissi fyrirlesara. 4. Rannsóknir hafa sýnt að fyrir- lestrar eru að mestu gagnslausir sbr. t. d. J. Marr et. al., „The Contribution of the Lecture to College Teaching" í Journal of Educational Psychology, L.I. (1960), 277—284. Allir stúd- entar vita einnig, að engin fylgni er milli þekkingar og ástundunar fyrirlestra. Ástæður fyrir Iífs- seiglu fyrirlestrarformsins eru líklega helzt þær að kennarar þekkja ekki eða hafa ekki þjálf- un í öðru formi kennslu — og þegar nemendur koma í fyrir- lestra hafa þeir vfirleitt ekki les- ið námsefnið sem kennarinn fer í (annars væri tímasókn hrein tímaeyðsla og endurtekning með of stuttu mÚIibili) og trúa því síðan allt kennslumisserið, að gagn verði að hinum sundur- lausu punktum úr fyrirlestrunum fyrir próf, því kennarinn semux jú prófin. Þannig binda kenn- arar hendiur nemenda undir yf- irskyni akademísks frelsis. 5. Mikill þjóðarauður fer í kostnað við, oft á tíðum, gagns- laus óþörf og léleg fyrirlestrar- störf. Óþörf fyrirlestra sést t. d. greinilega á því þegar nemend- ur eiga að Iesa 1000 bls. fyrir próf en yfirferð í fyrirlestrum nær aðeins 200 bls. eða er jafn- vel engin. Einnig má benda á að þegar rándýrir erlendir fyrir- Iesarar eru fengnir hingað er það sjaldnast gert með þörf nemenda á slíkum fyrirlesara í huga, því nemendur eru sjaldnast eða aldrei spurðir álits og hafa því lítið sem ekkert gagn af slíkum fjárútlátum. — Mörg dæmi eru þess, að nemendur eru látnir sjá um fyrirlestra sem kennarar þiggja laun fyrir (vondir menn kalla það arðrán). 2. Hvers vegna'"Viljá''Stúdentarj fjölga seminörum? 1. í seminörum eru nemendur virkir þátttakéndui ' 1 umíæðúih og Iæra betur af því, en að hlusta á eintal: Bezta nám er kennsla. 2. í seminörum ráða nemendur á hvaða hátt farið er yfir náms- efnið. 3. Nemendur læra sjálfir að greina á milli aðal- og aukaat- riða, í staðinn fyrir að láta gera það fyrir sig. 4. Nemendur tengjast sterknm félagsböndum, námið verður líf- legra, tilgangur þess Ijósari qg tengsl námsins við raunvoru- leikann skýrari. 5. Hópvimna hafur þroskandi á- hrif á persónumótun nemand- ans. 6. Hópvinna hefur í för með sér sífelida upprifjun aðalatriða og endurmat á þeim, sem er eimhver áhrifaríkasta námsaðferð er þekkist. 3. Hvers vegna eru próf óraun- hæfur mælikvarði við mat á nemanda? 1. Vegna þess að þau eru algjör- lega einangruð og sértæk at- vinnubótavinnubrögð sem hver.gi þekkjast í þjóðfélaginu nema í skólakerfinu: Nemandi les nokk- ur hundruð blaðsíður á skömm- um tíma og skrifar síðan í oróf- inu um þennan fróðleik á fjór- um tímurn. Árangur í prófi stendur ekki í réttu hluttaili við áramgur í starfi, einfaldlega vegna þess að prófki reyna ekki á þá þastti í fari eimstaklingsins sem hann kemnr til með að nota á almennum vimmumarkaði eða í praxfs. PrðfLn athuga að- eins hversu gott sfcammdma- minni viðkomandi próftaki hef- ur, ekki hversu góður verkmoð- 'ttf' hárttt' 'éir ‘Þáð * siéfii' koíhá* 'íetfi í staðinn fyrir hin verðlausH próf er: raumhæf verðmætasköp- Úh fýrir þjÖðfélágið ■ með vfðttt- kenndum vinnubrögðum s. s. greinum, álitsgerðum, ritdómum o. s. frv. sem btrta mastti t. d. í fjölmiðlum. Eínniig ættu að koma í stað prófanna í núver- andi mynd, raunhæf vinnubrögð í hinum ýmsu stofnanium þjóð- félagsins, þar sem reyrn mætti á þá kunnáttu sem nemandfmn hefbr aflað sér og loemur hon- um og þjóðfélagimu að beinum FramhaM á H. síóa. Kodak i Kodak i Kodak P Kodak I Kodak j ■HM ffiHBBH WUHKSBtM hhb KODAK Litmqndir HANS PETERSEN H/f. BANKASTR. 4 SÍMI 20 313 GLÆSIBÆ SÍMI 82590 ■ ■■■ Kodak I Kodak i Kodak i Kodak » Kodak STÚDENTABLAÐIÐ — 5

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.