Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.05.1973, Page 9

Stúdentablaðið - 01.05.1973, Page 9
nota frístundirnar til pólitísks starfs eða sinna öðrum hugð- arefnum sínum — því lengur dregur hann það að ganga I hjónaband. En líkamlegar þarfir taka ekki mið af fjár- hagsaðstæðum: Þær knýja stöðugt á um fullnægingu. Ö- kvæntur verkamaður leitar á vit gleðikvenna til að fá útrás og sama gerir ókvæntur milli- stéttarmaður. Þetta er dæmi um óvirka aðlögun verka- mannsins að hörðum lífskjör- um sínum. En þetta ferli er ekkert einkamál verkalýðsins. Allar aðrar stéttir og þjóðfé- lagshópar bregðast við á sama hátt flæktir í net þróunar auð- valdsþjóðfélagsins sem nær um heim allan. Þá fyrst kemur munurinn í ljós þegar athyglinni er beint að þeim virku, skapandi öfl um sem andæfa og neita að laga sig að niðurdrepandi veruleikanum og að nýjum hugsjónum og tilraunum með samskipti kynjanna. Þetta and- leifarnar af gerfiböndum hinn ar borgaralegu fjölskyldu. Þessi „undirgefni“ eins með- lims verkalýðsstéttarinnar gagnvart öðrum hefur skaðleg áhrif á sálgerð verkalýðsins á sama hátt og hugmyndin um eign eins á öðrum. Það er ekki í samræmi við hagsmuni byltingarstéttarinnar að út- nefna einhverja ákveðna með- limi stéttarinnar sem sjálfstæða 'fulltrúa hennaf með þeirri skyldu að gæta hagsmuna stétt- arinnar en ekki hagsmuna ■hinnar éiriangruðu fjölskyldu. Þeir árekstrar sem verða milli hagsmuna fjölskyldunn- ar og séttarinnar í verkfalli eða virkri baráttu og það sið- ferðilega mat sem verkalýður- inn leggur á þá eru nægilega skýrt dæmi um undirstöður hinnar nýju hugmyndafræði hans. Hugsið ykkur að verk- smiðjueigandi neyðist til þess vegna fjölskylduaðstæðna að taka fé út úr fyrirtæki sínu SEINNIHLUTI Virk aðlögunP óf er aðeins að finna hjá verkalýðsstéttinni. Þetta merkir samt sem áður ekká- aðrar stéttir og hópar færi sér ekki í nyt nýjar að- ferðir t§em binn framfarasinn- aði verkalýður hefur útfært (þetta á sér í lagi við um menntamenn úr millistétt sem vegna félagslegra aðstæðna sinna eiga mesta samleið með verkalýðnum). Borgararnir gleypa við nýjum hugmynd- um verkalýðsins í ómeðvitaðri ósk um að blása nýju lífi í köld og stirðnuð hjónabands- form sín. En þær hugsjónir og kynferðisleg siðalögmál sem verkalýðurinn þróar með sér fullnægja á engan hátt stéttar- legum þörfum borgaranna. Þau endurspegla kröfur verka- lýðsstéttarinnar og eru henni nýtt vopn í félagslegri baráttu hans. Þau vega að undirstöð- um félagslegrar drottnunar borgarastéttarinnar. Þetta skul- um við sýna fram á með dæmi. FJÖLSKYLDA OG STÉTT Tilraunir menntamanna úr millistétt til að leysa hið ó- rjúfanlega kirkjulega hjóna- band af hólmi og setja í þess stað borgaralega vígslu sem veitir þeim meira svigrúm valda því að grundvöllur fé- lagslegs stöðugleika borgara- stéttarinnar veikist. Þær brjóta niður fjölskylduna sem bygg- ist á einkvæni og eignaréttar- hugmyndinni. Á hinn bóginn er aukinn sveigjanleiki í samskiptum kynjanna í samræmi við höf- uðverkefni verkalýðsstéttarinn- ar og er í raun og veru óbein afleiðing eins þeirra. Afneitun „undirgefnis“-þáttar hjóna- bandsins brýtur niður síðustu þegar illa árar fyrir það. Af- staða borgaranna er skýr og afdráttarlaus: „Fjölskyldan saman við viðhorf verkanianna til verkfallsbrjóts sem rýfur samstöðuna og fer að vinna í miðju verkfalli til að forða fjölskyldunni frá hungri. „Stéttin gengur fyrir“. Tökum annað dæmi. Ást og ræktar- semi millistéttareiginmannsins í garð fjölskyidu sinnar firrir eiginkonu hans öllum áhyggj- um yfir því sem gerist utan heimilisins og leiðir að lokum til þess að hlekkja hana við börnin og eldavélina. „Fyrir- myndareiginmaðurinn sér fyr- irmyndarfjölskyldunni far- borða“ er viðhorf borgaranna til þessa. En hvert er viðhorf verkamannsins til stéttvíss fé- laga síns sem lokar augum konu sinnar fyrir stéttarbar- áttunni? Siðgæði verkalýðs- stéttarinnar krefst þess til að tryggja lífshamingju einstak- lingsins og fjölskyldunnar að konan taki þátt í því sem fram fer utan heimilisins. Fangelsun konunnar á heimil- inu, algjör forgangur fjöl- skylduhagsmuna, beiting eigin- mannsins á eignaréttinum yfir konu sinni — alla þessa hluti mun stéttarleg samstaða verka- lýðsins brjóta á bak aftur. Hugmyndin um að sumir með- limir stéttarinnar séu lægra skrifaðir en aðrir og verði að beygja sig undir ægivald þeirra er í mótsögn við grundvallar- reglur verkalýðsins. Hún set- ur mark sitt á alla siðfræði verkalýðsins sem eflist stöð- ugt af þrótti. Það er siðfræði sem stuðlar að umbreytingu persónuleika mannsins og efl- ir jákvæðar hliðar tilfinninga- lífs hans, eykur frelsi hans í stað þess að hlekkja hann við séreignaróttinn, eflir félags- hyggju hans í stað þess að hlekkja hann við séreignarrétt- inn, eflir félagshyggju hans á kostnað misréttis og undir- gefni.* ■II ■ BARAITAN VERÐUR AÐ HEFJAST STRAX Það eru forn og ný sann- indi að sérhver ný stétt sem til verður vegna efnalegrar framþróunar býður mannkyn- inu upp á nýja hugmynda- fræði. Ákveðnar reglur um kynhegðun eru hluti þessarar hugmyndafræði. Það hefur samt sem áður gildi, að ræða nokkuð um verkalýðssiðgæði og kynlífssiðgæði verkalýðs- stéttarinnar í þeim tilgangi að gagnrýna þá útbreiddu hug- mynd að siðfræði verkalýðs- ins sé ekkert annað en yfir- bygging og að innan hennar geti engar breytingar átt sér stað fyrr en efnahagsgrund- velli þjóðfélagsins hefur verið breytt. Þetta er það sama og að halda því fram að hug- myndafræði éinhverrar ákveð- innar stéttar verði þá fyrst til þegar félajjs- og efnahags- grundvellinum hefur verið breitt og stéttin fest sig í sessi sem ríkjandi stétt. Sag- an sýnir okkut að stéttin skap- ar hugmyndáfræði sína og þar með kynlífssiðfræði í bar- áttunni við fjandsamleg þjóð- félagsöfl. Því aðeins að stéttin skapi nýtt, andlegt verðmætamat, lagað að þörfum hennar, getur hún styrkt þjóðfélagsstöðu sína. Eina leið hennar til að velta hinum fjandsiimlegu 'öfl- um úr sessi er að halda fast við hin nýju siðaboð og hug- sjónir. Verkefnin sem bíða hug- myndafræðinga verkalýðsins eru að finna þau siðrænu gildi sem endurspegla hagsmuní verkalýðsstéttarinnar og að sjá til þess að siðaboð þau sem skapast séu í samræmi við þessi gildi. Okkur verður að skiljast að einungis með því að Öðlast meðviturid um hið skapandi frelsi sem er í deiglunni í þjóðfélaginu og um hinar nýju kröfur, nýju hugmyndir og nýju siðaboð; einungis með því að gera okkur ljósan grundvöll kynlífssiðfræði hinnar framfarasinnuðu stéttar getum við gert okkur vonir um að skilja ringulreiðina sem ríkir í kynferðismálum og finna það vopn sem bítur á Gordíons- hnút þann sem þau eru kom- in í. Verum þess minnug að ein- ungis sú kynlífssiðfræði sem er i fullu samræmi við þarfir verkalýðsins getur orðið okkur að liði í að styrkja stöðu verkalýðsstéttarinnar í barátt- unni. Það hefur sagan kennt okkur. Hvað getur staðið í vegi fyrir því að við notfærum okkur þetta vopn í þágu þeirr- ar stéttar sem berst fyrir kommúnísku þjóðskipulagi og fyrir einlægri og innihaldsrík- ari samskiptum kynjanna? (HS og ÞH þýddu úr Politisk Revy). HÚSNÆÐISHRAKHOLAR | Mönnum er enn í fersku minni frá því í haust, að helm-1 ingi fleiri sóttu um garðvist en pláss var fyrir. Nú virðistJ sama vandamálið ætla að stinga upp kollinum varðandi sum-^ arvist á Görðunum. Tuttugu herbergi standa stúdentum tilÉ boða, en helmingi fleiri af þeim sem nú búa á Garði hafaí hug á að dvelja þar við lestur í sumar. Verður það eflaust" erfitt fyrir biskup Garðanna að gera upp á milli þeirra semÉ sækja um áframhaldandi vist í sumar. Sú hugmynd hefur komið upp á Görðunum, hvort ekki J væri ráð að loka Gamla Garði fyrir hótelrekstri í sumar^ og taka hann allan fyrir sumarvistarstúdenta, síðan mættiÉ svo halda Garðsböll mánaðarlega til að standa undir tapinuw sem af þessu leiddi. Eða hvernig ætli Félagsstofnun geðjist® að hugmyndinni? GOSMÆLGI Það hefur verið hlerað, að í Vestmannaeyjum sé að finnaj menn, sem Viðlagasjóður er sagður greiða kaup eftir Ficher-É taxta. Nafnið ku vera til komið vegna þess hve góðan tímaJ þeir hafa til að tefla skák og sinna öðrum hugðarefnum íl vinnutímanum, sem annars er mjög langur, allt að.21 tími^ á sólarhring. Hér er áð sjálfsögðu um læknastúdenta aðW ræða. Þeir hafa það hlutverk að mæla gasmengun á ein-J faldan, en nokkuð öruggan háttpiá u.þ.'b.1 20' íítöðúm í bæn-| um. Verkið gæti sjálfsagt hver asninn unnið, en þar eð sam-fc úð landlæknis bitnar helzt á hans tilvonandi kollegum, neydd-J Framhald á 10. síðu. 1 HASKOLANS STÚDENTABLAÐIÐ — 9

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.