Stúdentablaðið - 01.02.1993, Blaðsíða 17
Danmörk
Dynastyflækjur
Danska fjölskyldan hefur ekki
verið eins vinsæl og frændur
þeirra í Noregi. Margrét drottning
(sem heilir Þórhildur að þriðja
nafni) hefur reynt að sýna á sér al-
þýðlega hlið, málar myndir í
barnabækur og eitt og eitt leiktjald
fyrir áhugaleikhús. Danir sýna
konungshollustu sína í því að telja
þessi verk hennar efnileg og líta
fram hjá því að hana má ekki
rnynda nema frá annari hliðinni og
að fjölskyldan keðjureykir öll og
hefur lagt í rúst margar reykinga-
varnarherferðir danskra heilbrigð-
isyfirvalda.
Reyndar fer í taugarnar á þeim
að dönskukunnátta franska vín-
ræktandans og drottingarmannsins
Hinriks prins þykir ekki upp á
mörg vínber. Hann mun skorta
orðaforða til að panta sér grænan
Tuborg á barnum.þekkingu sem
hver grunnskólanemandi íslenskur
ræður yftr. En grpn.
Ahyggjur Dana af framtíð
konungsveldisins tengjast arfa-
prinsinum. Friðrik þykir ekki sér-
stakt gáfnaljós og hefur hvað eftir
annað verið stöðvaður fyrir
glannaakstur á glæsikerrum þeim
sem fjölskyldan útvegar.
Þungu fargi var þó létt af þeim
konunghollu þegar slitnaði upp úr
sambandi hans og baðfatafyrirsæt-
unnar Malou Aamund sem þótti
heldur vafasamt drottingarefni,
enn verri cn fyrri kærustur Frikka
sem voru lítt við smekk Amalíu-
borgar.
Malou var fráskilin eins og
Wallis Simpson og það sem verra
var: Stjúpmóðir hennar sameinar
það að snúa happahjóli í danska
sjónvarpinu í frekar skjóllitlum
klæðnaði, vera með kynlífsdálk í
einu stærsta dagblaði Danmerkur
og að vera tapframbjóðandi
íhaldsflokksins (Dct konservative
folkeparti) til þings - ekki beint
fjölskyldan sem Hinrik og Mar-
grét vildu fá í jólaboð.
Friðrik og Malou eru nú skilin
að skiptúrfi og Malou tók saman
við fyrrum eiginmann og barns-
föður þriðju eiginkonu sjálfs
Pplle, þ.e. tamíla-Schliiters, fyrr-
verandi forsætisráðherra. Og þið
hélduð að Dynasty hefði flókið
plott!
Við þessu má bæta að þó að
Friðrik sé ekki skarpgreindur er
hann Nóbelsverðlaunaefni í sam-
anburði við afabróður sinn, Knút
arfaprins. Knútur var bróðir Frið-
riks IX, pabba Margrétar, og átti
að erfa krúnuna þar sem Friðrik
átti enga syni. Knútur þótti aftur á
móli svo áberandi vitlaus að enn
er haft að orðtaki í Danmörku: en
gang til for prins Knud, ef einhver
gerir sig beran að skilja ekki cin-
földustu smáatriði. En Danir lágu
ekki í því og breyttu stjórnar-
skránni og gerðu Margréti að
drottingu
Svíþjóð
Knugen leve!
Hinum megin við Eyrarsund
ríkir fjölskylda sem gerir dönsku
fjölskylduna að gjalti því að flestir
í henni kunna að skrifa nafnið sitt.
Það á þó ekki við um Svíakonung
sem skrifar nafnið sitt Carl Gustva
við ýmis tækifæri. Knugen er
nefnilega orðblindur auk þess sem
hann þykir ekkert gáfnaljós og
einkunnir hans í menntaskóla eru
sennilega best gcymda hernaðar-
leyndarmál Svíþjóðar (næst á eftir
upplýsingunum um fjölda barr-
trjáa í Finnmörku sem Norðmað-
urinn Treholt lak í Rússa).
Vinsældir Svíakonungs skýr-
ast að miklu lcyti af því að Svíum
linnst að þýski íþróttafréttaritarinn
sem hann giftist sé algjört æði og
trygg staða Karls 16 Gústavs er að
stórum hluta Sylvíu drottingu að
þakka.
Sænska konungsættin er kom-
in af vini og vopnabróður Napóle-
ons keisara, byltingarmarskálkin-
um Jean Baptiste Bernadotte. Hún
hefur ættlægan áhuga á fornleifum
og hefur farið um heiminn og
grafið upp dauða forfeður sína.
Ekki hafa öll áhugamál þeirra ver-
ið svo saklaus. Gústav 5 naut virð-
ingar þjóðar sinnar og var nokkuð
velkynntur þrátt fyrir óvenjulegan
áhuga á liðsforingjum sínum.
Mikið langlífi er meðal Bernadott-
anna. Gústav 5 varð 92 ára og
tveir bræður hans álíka gamlir,
Gústav 6 Adolf (sem varð kóngur
á þeim aldri sem allir aðrir Svíar
setjast í helgan stein og helga h'f
sitt bridsi og samkvæmisdönsum)
varð svo 91 árs og flestir sona
hans lifa enn. Gera má því ráð fyr-
ir að Svíar sitji upp með Karl
Gústav fram að 2036.
Belgía
Kóngi leyft
að snúa heim
Konungsættirnar í smáríkjun-
um flatlendu, Belgíu og Hollandi,
hafa þótt frckar ótryggar í sessi.
Þær hafa þó sýnt ótrúlegan lífs-
þrótt miðað við hneykslin sem
þeim hefur tekist að lenda í.
Aður var minnst á það sem
Norðmenn lelja hetjulega fram-
komu Hákonar 7 í seinni heim-
styrjöldinni. Þáltur Leopolds 3
Belgíukonungs vakti aftur á móti
meiri deilur. Hann gaf fyrirskipun
um uppgjöf belgíska hersins án
þess að ræða við bandamenn sína
og giftist þvínæst dóttur flæmsks
stjórnmálamanns sem var ná-
tengdur þarlendum nasistum.
Að loknu stríði var honum
ekki vært í landinu en í þjóðarat-
kvæði 1950 var samþykkt með
naumum meirihluta að íeyfa hon-
um að snúa aftur. Kom þá til
óeirða um land allt uns hann sagði
af sér og Baldvin I tók við emb-
ætti.
Hefur hann ríkt síðan án telj-
andi vandræða. Baldvin þykir ó-
venju leiðinlegur og litlaus kon-
ungur sem ekki hefur áhuga á
neinu nema Ijósmyndun. Það eina
sem er spennandi við belgíska
konungsdæmið er hver á að erfa
það þar sem konungur er barnlaus.
Erfinginn er bróðursonur kóngs,
Philippe, sem er glaumgosi af
verstu sort og eru Belgar farnir að
leita lciða til að slcppa við hann.
Ein þeirra gæti verið að afnema
konungdæmið.
Holland
Bernhard var í klúbbi
með Birni Bjarnasyni
Hollenska konungsdæmið er í
sárum. Þar hafa konur setið á há-
sæti síðan 1890. Þá lést síðasti
karlmaðurinn af Oraníuætt, Vil-
hjálmur 3. Fyrst var kornung
ekkja hans Emma ríkisstjóri í 8 ár
fyrir dóttur sína Vilhelmínu sem
ríkti síðan í 50 ár. Af hennar fjöl-
skyldulífi segir ekki mikið neina
af manninum hennar sem setti nýtt
konunglegt mct í því að vera leið-
inlegur.
Þegr Vilhelmína sagði af sér
sökum heilsubrests tók Júlíanna
dóttir hennar við völdum. Hennar
maður var ekki jafn leiðinlegur og
faðir hennar og af Bernhard prins
er margt skemmtilegt að frétta.
Hann var yfirmaður í hollenska
hernum og áberandi í lista- og
viðskiptalífi Hollands. Auk þess
var hann einn af stofnendum
World Wildlifc Fund ásamt starfs-
bróður sínum, Filippusi drotting-
armanni. Hann var að auki forseti
Bildenberghópsins sem um tíma
var eflirlæti allra samsæriskenn-
ingasmiða í heiminum (sjá: Falið
vald eftir Jóhannes Helga). í Bild-
enberghópnum hefur eflaust vcrið
glatt á hjalla því að annálaðir fjör-
kálfar á borð við Geir Hallgríms-
son heitinn og Björn Bjarnason
voru meðal þeirra sem sóttu þessa
fundi. Björn mun raunar aðeins
hafa verið áheyrnarfulltrúi (skv.
Földu valdi).
Bernhard var ekki í jafn góð-
um félagsskap þegar hann þurfti
að segja af sér 1976 eftir að það
kom í ljós að hann hafði þegið dá-
lítið af mútum frá Lockheed flug-
vélarverksmiðjum. Er hann senni-
lega eini maðurinn í heimi sem
hefur þurft að segja af sér sem
drottningarmaður. Skömmu síðar
sagði kona hans líka af sér og Be-
atrix dóttir þein a tók við.
Enda þótl Bernhard væri bófi
líkaði Hollendingum mun betur
við hann en jrjóðverjann Kláus,
eiginmann Beatrix. Hann er svo
óheppinn að vera geðveikur og
hefur alla tíð verið Beatrix til ama,
ekki sísl vegna síendurtekina
sagna um stuðning hans við nas-
ista og veru í Hitlersæskunni.
Nokkrar vonir eru bundar við
ríkisarfann, Willem Alexander,
sem þykir hafa erft talsvert af því
skapgerðareinkenni stofnanda
Óraníuættarinar, Vilhjálmi þögla,
sem viðurnefni hans var dregið af
og er einnig ógiftur sem hlýtur að
teljast jákvætt miðað við seinustu
ínaka jrjóðhöfðingjanna.
Spánn
Vinsælar konunglegar
sáraumbúðir
Árið 1952 var Farouk, feitasta
konungi heims, steypt af stóli í
Ungfrú Stamford skálar fyrir
krýningu Eiísabetar II. 1953
(mynd á síöunni á móti) og
sýnir þannig hollustu sína.
Áhugi almennings á
kóngaliöinu veröur enn
furöulegri þegar haft er í huga
aö kóngaliöiö hefur yfirleitt
engan áhuga á kjörum
almennings. Skál fyrir ungfrú
Stamford!
Egyptalandi. Hann lét svo um-
mælt skömmu síðar að um næstu
aldamót yrðu bara fimm kóngar
eftir í heiminum: hjarlakóngur,
spaðakóngur, tígulkóngur, laufa-
kóngur og Bretakóngur. Síðan þá
hefur konungdæmið verið aflagt í
Kambodju, Jemen, Uganda, Búr-
undi, Grikklandi. Líbýu, Afganist-
an, Eþíópíu, og íran og auk þess
hafa mörg ríki breska samvcldis-
ins fengið sér forseta. Einn nýr
kóngur hefur hins vegar bæst við:
Jóhann Karl Spánarkonungur sem
tók við að Franco og tók þátt í að
leiða þjóðina í átt að Iýðræði.
Hann er frægur hrakfallabálkur og
er alltaf að meiða sig á skíðum í
tennis eða renna á bananahýði.
Spánverjar hafa haft gaman af
jtessunt konungulegu sáraumbúð-
um en núna hafa þeir fengið
skemmtilegra óhapp til að tala
um, nefnilega framhjáhald Jóa
með tölvuforitara frá Barcelóna.
Svo virðist sem Soffía drotting
hafa fyrirgefið Jóhanni og kon-
ungdæmið sé nokkuð tryggt í sessi
uns Felipe sonur þeirra tekur við.
Við breytingarnar í Austur-
Evrópu hafa fyrrverandi kóngar
og erfingjar þeirra sem leita ör-
vætingarfullir að vinnu risið upp í
tonnatali. Almenningur hefur ekki
verið yfir sig spenntur, annars
vegar man hann þá tíð þegar þetta
kóngadót var við völd og hins
vegar er það ekki besta lækningin
við slæmum efnahag að taka upp
á arma sína rándýrt kóngalið og
skyldulið þeirra.
Svo það er líklegt að allt þetta
lið vcrði áfram á atvinnuleysisbót-
um.
Dýrir pakkar af fjöl-
skylduvandamálum
Það verða tæplega færð skyn-
samleg rök fyrir því að kóngar og
hirðir tilheyri tuttugustu öldinni.
Enn hjákátlegri muna þau sýnasl á
þeirri næstu og lfklegt er því að
fleiri lönd losi sig við þennan dýra
pakka af fjölskylduvandamálum
og taki í staðinn upp eitthvað í lfk-
ingu við okkar kerfi af semí-royal-
isma: lorseta sem hægt er að
skipta um, ekki þarf að halda uppi
stórum frændgarði, dýrum húsum
eða hirð. Og engan áhuga þarf að
hafa á svefnherbergisframmistöðu
þjóðhöfðingjans og að viðkom-
andi uppfylli grunnskyldu hvers
konunglegs stjórnanda og ljölgi
sér. -fe/-áj
FÖRUM
STÚDENTABLAÐIÐ