Stúdentablaðið - 01.12.1994, Page 10
Bls. 10
HÁSKÓLINN
STBL. • Desember 1994
Stúdentablaðið
Útgefandi: Stúdentaráð Háskóla íslands
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Auðunn Atlason
Ritstjórn: BirgirTjörvi Stefánsson, Guðmundur Tómas Árnason,
Guðmundur Steingrímsson, Halldór Fannar Guðjónsson,
Kristrún Heimisdóttir
Auglýsingastjóri: Sæmundur Norðfjörð
Ljósmyndari: Arnaldur Halldórsson
Prófarkalestur: Gestur Svavarsson
Umbrot og hönnun: Kraftaverk
Filmuvinnsla og prentun: Oddi hf.
Pennar: Ármann Jakobsson, Bergsveinn Birgisson, Birgir Tjörvi
Stefánsson, Brynhildur Þórarinsdóttir, Bylgja Björnsdóttir, Flóki
Halldórsson, Gestur Svavarsson, Guðmundur Steingrímsson,
Helgi Þorsteinsson, Jón Fjörnir Thoroddsen, Kjartan Örn
Ólafsson, Kristján Guy Burgess, Málfríður G. Gísladóttir,
Orri Hauksson o.fl.
Stúdentablaóið - blaö allra stúdenta. Þaö segir sig sjálft
Sauðmenntastefnan
egar landsmenn hafa
smalað fé af afréttum á
hausti þykir tímabært að
kalla saman Alþingi og huga að
löggjöf landsins. Haustin eru
ekki aðeins tími gangna og
rétta heldur leggur íjármálaráö-
herra þá fram frumvarp til fjár-
laga fyrir næsta fjárlagaár.
A þessum síðustu og verstu
tímum í efnahagsmálum kveð-
ur við margþekktan niður-
skurðartón í fjárlagafrumvarp-
inu. Eins og svo oft áður kem-
ur það í hlut fjársvelts Háskóla
Islands að skera niður útgjöld.
En er tíðin svo slæm eftir
allt? Er ekki þjóðarskútan í
mokfiskeríi norður í ballarhafi?
Sagði ekki forsætisráðherra að
ótvíræð teikn um efnahagsbata
væru á lofti? Lásum við ekki í
fyrirsögn í Morgunblaðinu
4.10.: „Greiðslur til landbúnað-
ur aukast"? Mikið rétt, með
hliðsjón af betri tíð með blóm í
haga hefúr ríkisstjómin ákveð-
ið að hækka greiðslumark í
mjólkur- og sauðfjárfram-
leiðslu á næsta ári.
Fjárlagafrumvarpið gerir ráð
fyrir að heildarframlag til
mjólkurframleiðslu hækki úr
2.568 m. kr. í 2.616.000.000.
kr. Að sama skapi hækkar fjár-
framlag til sauðfjárframleiðslu
úr 2.648 m. kr. í 2.703.000.000
kr. Á sama tíma stendur fjár-
veitingin til HÍ í stað í krónu-
tölum talið. Getur talist vits-
munalegt á nokkurn hátt að
veita öllu þessu opinbera fé í ó-
opinbert sauðfé?
Hvar getur Háskólinn fundið
fjármagn svo að reka megi
hann sem fullgilda akademíska
menntastofnun? Á háskólinn
að ráðast í frekari rekstur fjár-
hættuspila á knæpum bæjarins
eða á Háskólarektor að stjórna
nýjum happdrættisleik í sjón-
varpinu? Svörin er ekki að
fínna í margplægðum happ-
drættismarkaði heldur í þeirri
atvinnugrein sem nú sækir
fram, sauðfjárbúskapnum.
Háskóli Islands ætti nú að
koma sér upp góðum sauðfjár-
stofni. Þær grænu grundir sem
eru á Háskólasvæðinu og eng-
um nýtast eru tilvalin beitilönd.
Sauðfjáreldið gefúr vel af sér
og ekki mega gleymast gullnir
tekjumöguleikar sem felast í
slátrun og öllu fremur geymslu
á kjötinu. Allt veltur þetta á
sjálfsbjargarviðleitninni eins og
Megas benti á í kvæðinu Björg:
Efmaður ber sig eftir björginni
þá bœtir alvaldið því við sem
vantar uppá.
Flóki Halldórsson
Ritstjóri skrifar
Háskólinn á ekki að
óttast umræðu
Háskóli íslands hefur verið mikið í sviðsljósi fjölmiðla
undanfarnar vikur. Mikið hefur verið greint frá baráttu
stúdenta og starfsliðs Háskólans fyrir auknum fjáveit-
ingum og þjóðarátak stúdenta fyrir bættum bókakosti hefur vak-
ið verðskuldaða athygli og jákvætt umtal. En athyglin hefur
ekki einvörðungu verið jákvæð. Fjögur dæmi: Umfjöllun íjöl-
miðla um klám og ofbeldi á Internet í Tæknigarði vakti óhug
manna um land allt. Ásakanir á hendur Félagsvísindastofnunar
um brot á samkeppnislögum vöktu athygli, sem og umfjöllun
Stöðvar tvö um skattsvik Jónasar Hallgrímssonar prófessors í
læknadeild og samanburður hans máls við mál Björns Önundar-
sonar. Siðast en ekki síst hafa þrjár af stofnunum HÍ - Sjávarút-
vegsstofnun, Hagfræðistofnun og Alþjóðamálastofnun - verið í
brennidepli ESB-umæðunnar á íslandi að undanförnu og verið
gagnýndar fyrir slæleg vinnubrögð og hlutdrægni í efnisvali og
úrvinnslu.
Það er ekkert við gagnrýni á Háskólann, starfsmenn hans og
stofnanir, að athuga ef hún er sanngjörn og á rökum reist. Opin
gagnrýni er ein af forsendum opins samfélags og hún kallar á
umræður og rökræður, eðlilegar og áleitnar spurningar kalla á
svör. Þar hefur Háskólinn ekki staðið sig nægjanlega í stykkinu.
Sérstaklega er þögn áðurnefndra stofnana Háskólans hávær, um
langa hríð hafa þær setið þegjandi undir árásum og háðsglósum
neðan úr Alþingi og gert sér að góðu það hlutskipti að vera bit-
bein í pólitískum deilum um ESB-aðild. Þessum stofnunum var
ætlað að gefa umræðum um Evrópusambandsmál aukna
akademíska dýpt og gera vitræn skoðanaskipti um kosti og galla
aðildar möguleg. Það hefur hingað til mistekist og þar virðist
ekki eingöngu við óprúttna stjórnmálarefi aó sakast. Það útskýr-
ir e.t.v. þögn forsvarsmanna stofnananna í allri þessari umræðu.
Háskóli Islands á ekki að bregðast við utanaðkomandi gagn-
rýni af fálætí. Háskólinn verður að svara ásökunum og spurn-
ingum um sin mál ef hann á ekki að einangrast uppi á Melum.
Opin umræða um málefni Háskólans, hvort sem það er starf-
semi stofnana, siðareglur starfsmanna t.d. í skattsvikamálum
eða hátterni stúdenta, á að vera Háskólanum kærkomið tækifæri
til þess að taka á eigin málum. Háskóli íslands er lítill háskóli
og í smæðinni felast möguleikar. Möguleikar viðbragðsflýtis og
örra breytinga í takt við tímann. ÖIl umræða um málefni Há-
skólans er í raun af hinu góða því hún opnar stofnunina og teng-
ir hana samfélaginu. Háskólinn, bæði stúdentar og starfsmenn,
eiga að taka þátt í þeirri umræðu af sjálfsgagnrýni og sanngirni.
Að
gefnu
Nú er próftímabilið
illræmda að hefjast,
eins og allir vita.
Stúdentar sitja æ
sveittari við bókalestur, harma hversu illa þeir glósuðu
og sjá eftir því að hafa verið á móti þeirri kenningu sem
var kennaranum hvað hjartfólgnust, því hún er
ábyggilega til prófs. Blessunarlega geta þeir fengið það
bætt hjá félögum sínum og skrifað upp þeirra glósur.
Oftast er það svo, þrátt fyrir allar gróusögur, að
samkenndin er svo mikil hjá „þjáningarsystkinum“
innan Háskólans að glósubækur hvers og eins standa
hinum opnar.
Sumir gangast undir það að fara ekki í próf. Þeir
hinir sömu gera þá verkefni, einir sér eða í hópum,
gera ritgerðir, bæði smærri og stærri. Ávallt hafa þeir
hinir sömu bölvað og ragnað yfir þeirri heimildafæð
sem er á Háskólabókasafninu en beðið þess með
óþreyju að roðamusterið við Melatorg yrði opnað, þó
að það eitt og sér leysi auðvitað ekki neitt.
Enn einu sinni upphefst bölvið og ragnið, þó lítillega
breytt. Nú á loksins að opna roðamusterið, mögnuð
opnunarhátíð verður haldin fyrsta des. og allir verða
hamingjusamir og lifa happilli ewe aftör.
En ekki allir (hér eftir kallaðir ,,sumir“). Það er ekki
hægt að hugsa sér óheppilegri tímasetningu á flutningi
háskólabókasafna, en seinasta mánuðinn fyrir próf. Þá
þurfa sumir, sem ekki eru í prófum heldur eru að vinna
lokaverkefni eða ritgerð, nefnilega á bókum og
tímaritum að halda. Þau fást hins vegar ekki núna. Þau
eru í kössunum. í fangi fólks sem er að hlaupa á milli
húsa. Yfir Suðurgötuna. í roðamusterið. Það á að opna
fyrsta des.
Kjörtímabilinu er nefnilega að Ijúka.
Biskupnum yfir íslandi, síra Ólafi
Skúlasyni, líkaði ekki alls kostar
áskorun stjórnmálafræðinema við
Háskóla íslands.
Stjórnmálafræðinemar læddu af
lævísi ályktun inn í kvöldfréttir
Ríkisútvarpsins þar sem þeir hvöttu
alla Háskólanema til þess að segja
sig úr þjóðkirkjunni og láta monn-
ínganna renna til Háskólans. Þessi
ályktun fór raunar ekki hátt fyrr en
biskupinn fór að skammast og
hneykslast í fjölmiðlum um þetta
guðlast og þessi drottinsvik og skjóta í
allar áttir. Hvað sem segja má um skylduaðild
Háskólanema að þjóðkirkjunni vöktu ein ummæli biskups
furðu, þar sem hann hélt því fram að svona tillögur
samræmdust ekki akademískum borgurum. Við sem
héldum einmitt að akademísk hugsun fælist í því að efast
um alla sjálfsagða hluti og komast að niðurstöðu með
„platónskum díalóg"? Akademísk hugsun stjórn-
málafræðinema og önnur slík efasemdarvillutrú á
greinilega ekki upp á pallborðið á biskupsstofu. Stú-
adentar flestir kunna biskupi hins vegar bestu þakkir fyrir
að draga sjónir landsmanna að fjársvelti Háskólans.
tíð fáið
5% staðgreiðsluafslátt
af brauðum og kökum
hjá okkur
með framvísun
stiídentaskfrteinis
BAKARIIÐ
HAGAMEL 67
sími 21510