Fálkinn - 18.08.1928, Blaðsíða 11
F Á L K I N N
11
ÚTI LEGA.
í sumar hitti jeg skáta frá Arac-
riku, sem sagði mjer margt skemti-
iegt af lifi skátanna þar. En engu
hafði jeg eins gaman af eins og sög-
unum af þvi þegar skátarnir liggja
úti. Reyndar er það ekki alveg rjett
að segja, að þeir iiggi úti, því skát-
arnir kunna manna best að búa sig
út i ferðir og dvalir upp til fjalla
eða út um sveitir, og þessvegna hafa
þeir altaf tjöld með sjer. En „úti-
lega“ er það nú kallað samt, þegar
menn hafast við fjarri mannabygðum
á ferðalagi. Á fyrstu myndinni eru
skátatjöld í fallegu umhverfi, en víst
er um það, að viða er hægl að fá
eins fallegan stað fyrir tjaldið sitt
lijer á landi.
í Ameríku er sumarfriið í skólun-
nm íremur langt og sumarið afar
beitt. Einkum finnur maður til hitans
inni i borgunum og þykir næstum
þvi ólift þar stundum. Er þetta meðal
annars ástæða til þess, hve Ameríku-
menn ferðast mikið til annara landa
á sumrum. En vitanlega hafa fæstir
drengir i Ameríku efni á því, að ferð-
ast til annara landa á dýrum skipum.
En þeir gera annað, drengirnir, þeir
slá sjer saman i hópa og fara burt
úr borginni. Stundum þurfa þeir ekki
að fara nema stutt — þeir finna ef
fil viil yndisiegan dvalarstað rjett fyr-
]r utan borgina, og þegar búið er að
akveða hann, er ekki lengi verið að
reisa Ijaldið.
hess er nú fyrst að gæta, að opið
a tjaidinu snúi ekki upp í veðrið.
inngangurinn verður að vera undan
vindinum, eins og sjest á annari
mynd (1). Eigi er hægt að kalla tjald-
staðinn góðan nema því aðeins að
gott drykkjarvatn sje nálægt (2) og
nægilegt til allra búsþarfa, í matinn
og til þvotta.
Til þess að verða ekki fyrir óþæg-
indum af rigningu er vissast að grafa
svolítinn skurð kringum tjaldið, eins
og sjest á myndinni (3), þvi annars
er ekki að vita nema að rennblautt
verði inni í tjaldinu.
Nú er að búa til hlóðir. 'Iil þess
þarf maður fjóra steina. Best er að
hal'a með sjer stóra járnþynnu og
leggja hana ofan á steinana og láta
eldinn leika um liana að neðan. Með
Jjessu móti fær maður miklu jafnari
hita undir pottinn eða ketilinn en ef
maður lætur hann yfir sjálfan eldinn
en ekki á plötuna (4). Til þess að
hafa eitthvað til að liggja á hefir
maður með sjer nokkra poka. Svo fær
maður sjer hey eða hálm á næsta bæ
og setur það í pokana og skátinn full-
yrðir, að maður sofi betur á svona
heypoka í tjaldi en á bestu dúnsæng
heima lijá sjer. En likast til kemur
það af þvi, að drengirnir sem eru að
ferðast úti á víðavangi i góða loftinu,
eru orðnir þreyttari um háttartíma,
en þeir eru vanir heiman að frá sjer.
Svona lýsir skáttinn útbúningnum
og margt af því sem hann segir gæti
átt við hjer. Þó er óvíða hægt að
ferðast hjer á landi án þess að hafa
með sjer suðuvjel til þess að hita
Sími 249. Reykjavík.
Okkar viðurkendu
niðursuðuvörur:
Kjöt.........í 1 kg. xh kg. dóum
Kæfa........- 1 — xh — —
Fiskabollur . - 1 — xh — —
L a x........- xh — —
fást í flestum verslunum.
Kaupið þessar íslertsku vörur, með
því gætið þjer eigin- og alþjóðar-
hagsnruna.
sjer teið eða kaffið og sjóða matinn,
sem maður liefir með sjer. Því hjerna
er óviða hægt að tína samna kvisti
og sprek til þess að brenna undir
katlinum. í útilegum verðið þið þess-
vegna að hafa með ykkur litla suðu-
vjel og olíu, ef þið viljið fá eitthvað
volgt ofan i ykkur.
Skemtilegast er, þegar farið er i
svona útilegur, að nokkrir kunningj-
ar, liclst á likum aldri, slái sjer sam-
an og útvegi sjer í sameiningu tjald-
ið og allan útbúnað, sem til ferðar-
innar þarf. Svo skiftið þið með ykkur
verkum, svoleiðis að liver um sig hafi
sitt ákveðna starf þann og þann dag-
inn. Þegar gott er veður farið þið í
stuttar „landkönnunarferðir" og safn-
ið skrítnum steinum, blómum eða
öðru, seni þið eruð ekki vanir að sjá
þar sem þið eigið licima og rcynið að
þekkja það. Ef þið þekkið það ekki þá
verðið þið að spyrja um livað það
sje, þcgar þið komið heim. Þið getið
haft nóg að gera allan daginn.
En þegar vont er veður? Ja, þá er
bcst að lialda sig heima í tjaldi. Og
ykkur þarf ekki að leiðast það, ef þið
farið rjett að. Þið getið sagt hver öðr-
um sögur, látið hvern annan geta gát-
ur eða reikna flókin dæmi og ef til
vill liafið þið liaft með ykkur ein-
hverja skemtilega bók, sem þið getið
lesið hátt í.
Vitanlega eigið þið ekki að flytja
með ykkur kynstrin öll af liinu og
öðru, til þess að gera ykkur lífið
þægilegra. Um að gera að taka engan
óþarfa með sjer. Mest ríður á að
tjaldið sje gott og vel vatnshelt. Svo
er gott að liver ykkar liafi gott ull-
arteppi þykt, og eitthvað til að sjóða
í. Fötin ykkar þurfa að vera hlý, og
um að gera að muna eftir að skórnir
sjeu sterkir og sólarnir þykkir, svo
að þið gangið elcki niður úr þeim.
Þegar þið hafið cinu sinni reynt hvað
gaman er að liggja úti, þá getur vel
verið að þið hugsið svo mikið um
Líkast smjöri!
mm
MJ0RLIKI
0®®®®ía®«®í2!£a«œœíSíSía®®S!íSi®ffiíSiö
Silkisokkar
allar mögulegar
tegundir, fallegir litir
frá 1,15—6,85 parið.
Verslnn Torfa Póröarsonar,
Laugaveg.
<3
að komast betur út búnir af stað
næsta sumar, að þið eyðið cngum
eyri í „gott“ en safnið öllu saman
sem þið eignist af aurum til þess að
kaupa ykkur verulega góð „útilegu-
mannatæki“ fyrir næstu ferð. Þau
fást i búðunum en kosta nokkuð
mikið, svo að það er best fyrir ykk-
ur að fara að safna strax.
Tóta sysiir.