Fálkinn - 01.12.1928, Síða 1
16 sÉr 10 aiin
1 haust voru liðin 5 ár síðan Primo de Rivera hershöfðingi steypti hinu siðasta þingstjórnarráðuneyti Spánverja af stóli.
Hefir hann síðan ráðið lögum og lofum í landinu, mcð likum hætti og Mussolini i Italiu, etida hefir hann tekið sjer hann
til fyrirmyndar i flestu. Þó stendur Rivera Mussolini mjög að baki í ýmsu og endurbætur hafa ekki orðið nærri eins mikl-
ar í Spáni eins og á Ítalíu undir einveldinu. Meiri hluti þjóðarinnar virðist þó una sjer skaplega undir þessu stjórnarfari
enda var hagur þjáðarinnar illur fyr. En vitanlega er stór flokkur manna i Spáni, sem fyrir Iwern mun vill koma á lýð-
frjálsri stjórn aftur. Hefir þessi flokkur hvað eftir annað reynt að koma Rivera frá, en aldrei tekist. Nú tiðast var gerl
samsæri gegn honum og átti að gera stjórnarbyltingu daginn fyrir fimm ára afmælið. En alt komst upp á síðustu stundu
og uppreisnarmennirnir lentu í svartholinu. En hátíðin varð einhver liin mesta samkoma, sem Spánverjar kunna frá að
segja. Mörg hundruð þúsund manna votluðu Rivcra hollustu sina. — Myndin sýnir einvaldsherrann vera að halda ræðu
fyrir framan konungshöllina við Plaza Armeria í Madríd.
Reykjavík, laugardaginn 1. desember 1928.
SPÁNVERJAR OG DE RIVERA