Fálkinn


Fálkinn - 09.02.1929, Síða 2

Fálkinn - 09.02.1929, Síða 2
2 F Á L K I N N GAMLA BfÓ ...... Undir verndarvæng Napoleons. Sjónleikur í 9 þáttum eftir skáldsögu A. Conan Doyle. Aðalhlutverk leika: Rod la Rocque Phyllis Haver. Verður sýnd innan skams. Best. Ódýrast. INNLENT r ölgerðin Egill Skallagrímsson. Rafmagnstæki sem notuð eru um allan heim. PROTOS RYKSUGUR BÓNVÉLAR ÞVOTTAVÉLAR HÁRÞURKUR HITAPÚÐAR Fæsl hjá raftækja- sölum. Jk, Tau-legghlífar fyrir karlmenn og kvenfólk er nýjasta tískan. Fallegt úrval af legghlífum hjá okkur. Lárus 0. Lúðvígsson Skóverslun. E3: .............................iHiminmiHiiiiiimiiiiii.liiniiTiTiTtTiXTiiTTiOTnnTíriiliillnliiiMÍTiTiTTi'iiTm ................................................ NÝJA ÐÍÓ .. Glataði sonurinn Eftir hinni frægu skáldsögu Halls Caine’s. Myndin er tekin hjer á landi Dg textarnir eru íslenskir. Síðari hluti, 7 þættir, sýndur næstu viku. Allir verða að sjá þessa mynd. Litla Bílastöðin Lækjartorgi Bestir bílar. Ðesta afgreiðsla. Best verð. Sími 668 og 2368. Kvikmyndir. GAMLA BIO. Gamla Bio sýnir bráðlega merka mynd, „Undir verndarv.xng Napo- leons“, sem gerð er eftir skáldsögu er hinn kunni rithöfundur Conan Doyle hefir samið. Saga þessi byggist sumpart á sögulegum viðhurðum og er mjög spennandi. Meðal persónanna í myndinni má nefna sjálfan Napo- leon mikla, sem Max Barwyn leikur, Josephine keisaradrotningu og Tall- eyrand utanriltisráðherra. En aðal- hlutverkin leika Rod la Roqué og PhyRis Haver. Drotninguna leikur Julia Faye. Ekkert hefir verið sparað*við kvik- myndatöku og gefur myndin góða hugmynd um lifið i Frakklandi á dögum Napoleons mikla. NÝ.IA BIO hefir sýnt fyrri hluta myndarinnar „Glataði sonurinn“ undanfarna viku og hefir mikil aðsókn verið að mynd- inni. Jafnskjótt og sýning þessa kafla er lokið verður síðari hlutinn sýndur, og er hann mun áhrifameiri en sá fju-ri, enda sjást þar sögulokin. JACKIE COOGAN. Charlie Chaplin hefir nýlega sagt frá því í ensku tímariti hvernig fund- um hans og Jackie Coogan bar sam- an. Er þetta aðalefni frásagnarinnar: — Kvöld eitt 1918 fór jeg í Orphe- um-leikhúsið í Los Angeles til þess að sjá sundkonuna Anette Keller- mann. Seinasta skiftið sem hún kom fram á leiðsviðið leiddi hún við liönd sjer fjögra ára gamlan dreng, son mannsins sem sá um sýningar henn- ar. hessi drengur var Jacltie Coogan. Fólk vildi ekki fara út úr leikliúsinu en klappaði fyrir sundkonunni. Og svo var Jackie látinn biðja fólkið um að fara nú heim. Og hann gerði það svo vel, að allir fóru. Þessi atburður varð mjer þýðingar- mikill. Áruin saman hafði mig Iang- að til að leika sögu sem heitir „Tlie Kid“, en orðið að slá þvj á frest af því að mig vantaði smádreng í ann- að lilutverkið. En þarna var einmitt drengurinn. I’aðir Jackies hafði verið leikari þegar hann var ungur. Og þegar Jaqkie var 21 mánaða kom hann í fyrsta skifti á leiksvið, í New York. Rað varð með þessuin hætti: Móðir lians hafði farið með hann í leikhús- ið til að liorfa á leik, sem faðir hans ljek í. Drengurinn þekti föður sinn á leiksviðinu og heimtaði að fara upp á leiksviðið til hans. Gerði hann þetta svo áberandi, að fólkið i lcik- húsinu var farið að horfa meira á drenginn en leikendurna. Faðir hans gerði sjer litið fyrir og fór og sótti drenginn og fór með liann upp á leiksviðið. Og hann ljet eins og ætti hann þar lieima. Hjeldu áhorfend- urnir, að þetta væri hluti úr leikrit- inu — og eftir það var Jackie lát- inn vera meðal áhorfendanna á liverju kvöldi og sóttur upp á sviðið á hverju kvöldi. Besti kostur Jackie er sá, að liann er svo látlaus; jafnvel eftir að „Tlie Kid“ hafði verið sýnt og dálætið á drengnuin var orðið sem mest, Ijet liann það ekkert á sig fá. Honum hef- ir ekki skilist ennþá, að hann sje frægur. Faðir hans sjer fyrir því, hann er jafnan með honum hvar sem hann er, til þess að afstýra því að hann verði „skemdur“. Jackie hefir enga hugmynd um, að hann sje rikur. Og þó hefir hann grætt að meðaltali liálfa miljón doll- ara á ári undanfarin ár. — begar liann er að leika í kvikmyndum hleypur hann hvenær sem hann á frí inn í herbergið sitt og leikur sjer að gullunum sinum. Hann á dýrasta leik- fangasafn í heimi, alt gefið honurn af aðdáendum viðsvegar um heim. En nú er Jackie að verða of gam- all. Hann er 14 ára og inenn eru liræddir um, að hinum glæsta ferli lians sje lokið. I’að er óneitanlega nokkuð snemt. „ENGLAR JEHOVA“. bað er trúkredduflokkur einn, sem kallar sig þessu látlausa nafni. Fjöl- mennur er hann ekki, eitthvað uin 200.000 sálir alls í heiminum og aðall. í löndunum Belgíu, Austurríki, Sviss, Þýskalandi, Englandi og Mexico. beir aðhyllast í flestum atriðuin trúarsetn- ingar bibliunnar, en hafa ýmsa siði, t. d. mega þeir ekki bragða kjöt. Og svo afneita þeir öllum læknavfsind- uin og meðalagutli. I>eir Iækna sjálfir. Nú bar það við nýlega að kaup- maður einn í Wien dó í höndunum á einum af þessum „englalæknum“. Kaupmaðurinn var nýkominn í söfn- uðinn fyrir látlausa áeggjan konu sinnar, sem hafði verið „engill“ lengi. Og næst þegar kaupmaðurinn varð lasinn ljet hann sækja „engla- læknirinn Hermann Mill. Ilann lækn- aði mest með nuddi, og nuddaði kaupmanninn svo rösklega í hjarta- grófinni að hann dó. ' Lögreglan tók i taumana og rann- saltaði málið og kom það í ljós, að kaupmaðurinn hefði verið sárlítið veikur, en að „læknirinn" liefði drep- ið hann. En ekkjan fagnaði dauða mannsins síns og sagði að guð hefði deytt hann, því göfugra hlutverk biði hans hinumeginn. Nú hafa stjórnarvöldin sett konu- garminn á geðveikrahæli og bannað þennan sjertrúarflokk í Austurriki. „Englarnir“ eiga sjer „Messias“ hjer á jörðu. Hann heitir Freytag, er skó- ari og á heima í Frankfurt a. Main. SPRÆKUR BISKUP. Dr. Ingram Lundúnabiskup varð 71 árs í janúar. Nokkrum vikum fyrir afmæli silt vakti hann eftirtekt á sjer fyrir það, að vera leikforingi i hockev-leik, sem stóð 40 minútur og setja þrjú mörk fyrir sitt lið af 7 sem gerð voru. Leikurinn stóð milli stúdenta frá Marlborough- og Radley- skólum og liinir leikmennirnir voru allir ungir. Var hann í Marlborough- liðinu. Radley gerði fyrsta markið, en þá hrópaði biskupinn til liðsmanna sinna, eins og ungur fullhugi, og eggjaði ]>á. Eftir fjórar minútur gerði hann fyrsta márkið í sínu liði og síð- an hamaðist hann leiltinn á enda, og virtist alveg óþreyttur að lokum. I>að eru fáir, sem standa Helen Wills á spörði í tennis. En sumarið 1926 sigraði Ingram biskup hana i þeim leik, vestur í . Ameríku. Biskupinn er talinn vcra sá Lund- únabúi, sem heldur bestri heilsu og þoli í hlutfalli við aldur sinn. Hann segir að allur galdurinn sje í því fólg- inn, að fara vel með líkama sinn og láta heilann vinna. I>á þakkar hann og heilsu sína því, að liann bragðar hvorki tóbak nje áfengi. Hann er göngumaður mikill og á hverju hausti fer hann i heimsókn á Marlborough- skóla, þar sem hann nam ungur. I'ekur hann úr flokki skólasveina liðsveit i hockey og labbar með þá til Radley og keppir við strákana þar. Alt virðist benda á, að liann geti haldið þeim kappleikjum uppi í mörg ár enn.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.