Fálkinn - 16.03.1929, Qupperneq 4
4
F Á L K I N N
Aðal strœtið, Rambla, með platanviðargöngunum.
Barcelona er hin breiða Rambla,
með trjágöngum úr platanviði á
báða vegu. Gengur stræti þetta
frá torginu Plaza del Paz, en á
því miðju er minnismerki
Christofers Columbus. íslending-
um, sem sjá þetta minnismerlci
verður ósjálfrátt á að hugleiða,
hvenær Leifi heppna verði reist
ekki óveglegra minnismerki í
Reykjavík, — því hans er æran
meiri.
í Barcelona eru um 90 kirkj-
ur. Fegurst og tilkomumest
þeirra allra er dómkirkjan, sem
er sannkallað listaverk bygg-
inga kunnáttunnar. Er hún bygð
á 13. og 14. öld. Af öðrum
merkum byggingum í borginni
má nefna höll Aragoníukonunga,
sem nú hefir verið gerð að forn-
menjasafni; ennfremur höll yf-
irstjórnanda setuliðsins, sem er
æfa gömul bygging, biskupshöll-
in, hæstarjettarhúsið, ráðhúsið
og kauphöllin — alt sjerstaklega
fallegar byggingar.
Og ekki má gleyma iðnaðar-
höllinn frægu, því Barcelona er
mesta iðnaðar- og verslunarhorg
Spánar. Bómullariðnaðurinn er
efstur á blaði, en næst honum
kemur silki- og ullarvefnaður,
má þar sjerstaklega minna á
sjalavefnað og áklæði á húsgögn,
sem Spánverjar eru meistarar í.
En annars er margskonar iðn-
aður í Barcelona, alt frá fall-
byssum og verksmiðjuvjelum til
húsgagna, sykurs og sætinda og
títuprjóna.
Hvað yisinda- og mentastofn-
anir snertir stendur Barcelona
framar öllum borgum á Spáni,
nema Madrid. Má þar fyrst telja
háskólann, sein stofnaður var af
Filippusi II. árið 1596, og nú er
í fjórum deildum með 54 pró-
fessorum og um 2000 stúdent-
um. Þá má nefna jurtasafns-
garðinn, prestaskólann, sjó-
mannaskólann, verslunarskólann
og listaháskólann. í horginni eru
ennfremur allskonar mentasöfn
og söngleikahús eitt veglegt, auk
leikhúsa. Fólkið í Barcelona þarf
ekki að láta sjer leiðast.
Og svo getur Barcelona stært
sig af því, að vera með elstu
bæjum á Spáni. Það voru vik-
ingarnir frá Karthago sem stofn-
uðu borgina. í þá daga hjet hún
Barsino, en á 4. öld e. Kr. rek-
ast menn i'yrst á nafnið Barce-
lona. Meðan óróinn var sem
mestur við Miðjarðarhaf, eftir
að áhrif Rómverja fóru að
þverra, var borgin undir stjórn
Araba og Frakka á víxl. Og
jafnvel á síðustu öld var hún
í hers höndnm. Enn þann dag
í dag má búast við óvæntum tíð-
indum frá Barcelona, því borgin
er höfuðborg Kataloniu og það
fylki telur sig alls ekki hluta
af Spáni. Einmitt síðan einvalds-
stjórnin kom í landinu, hafa
þess sjest glögg merki, að Kata-
loníuinenn vilja að minsta kosti
sumir hverjir, losna úr sam-
bandinu við alríkið og stofna
sjálfstætt riki.
Barcelona aS nœturþeli.
&
m
m
m
*
m
*
m
m
m
m
m
m
m
m
*
rtaírtftrító
Piano
fyrsta flokks fyrirliggjandi.
Seljast með verksmiðjuverði
að viðbættum flutnings-
kostnaði.
A. Obenhaupt.
*
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
Árið 1914 voru „aðeins“ 7000 mii-
jónamæringar í Bandarikjunum, en ár-
ið sem leið voru ])eir taldið yfir
90.000. Meira en helmingur pessara
manna hafa grætt auðæfi sín á gengis-
braski á striðsárunum og kreppuárun-
um eftir stríðið, en aðrir liafa grætt
á hlutabrjefakaupum, því flest hluta-
brjef hafa farið sihækkandi vestra í
mörg ár.
Farða-sjálfsalinn er nýjasta uppá-
tækið í New York. Ef stúlkurnar vant-
ar eitthvað til að „laga sig í framah“
taka þær 50 cent og stinga í sjálfsala-
rifuna og fá það sem þær vilja:
smyrsl, varalit, augnabrúnalit, and-
litsduft eða „vellyktandi". Og svo
fylgir með notkunarfyrirsögn. Vitan-
lega er stór spegill á sjálfsölunum svo
að stúlkurnar geti sjeð árangurinn.
Sjálfsalar ])essir eru m. a. komnir á
allar járnbrautarstöðvar i New York.
„Ef læknirinn i Corming í Iowa not-
ar ljósáhöldin á lækningastofu sinni
milli kl. 6 og 11 á kvöldin, fær hann
100 dollara sekt eða til vara einfalt
fangelsi og má ekki sjá súklinga sína
i mánuð“. Svo hljóðar fyrirskipun, sem
hæjarstjórnin í Corming hefir nýlega
gefið út. Ástæðan er sú að gcislarnir
hjá lækninum trufla útvarpið.
Á landbúnaðarsýningu í Ziirieh var
nýlega sýndur ostur, scm liafði verið
tekinn árið 1778. Hann varð svo
hræddur við allan mannfjöldann á
sýningunna, að hann skreið út í horn
og faldi sig.
Enskur snikkari geklt nýlega í heil-
agt hjónaband. Hann bað ungrar
ckkju, sem hafði mist manninn fyrir
tveimur árum. Hún tók honum og þau
giftust. Sagðist ekkjan eiga tvö börn.
Svo fóru þau í brúðkaupsferð en ]>eg-
ar þau koinu aftur voru sjö hörn í
stofum snikkarans — og konan varð
að játa, að liún ætti þau öll. Snikltar-
inn varð fokvondur og taldi þetta svik.
Fór hann til dómstólanna og heimtaði
skilnað, og kvaðst alls ekki hafa ætlað
sjer að gerast „forstöðuinaður á barna-
heimili“. Rjetturinn kvað upp svolát-
andi Salómonsdóm: Snikkarinn skyldi
sjá fyrir konunni og tveimur börnun-
uin, en konan skyldi sjá fyrir hinum
fimm.
Leggið
undir gólfdúka yðar. —
Einangra mjög vel. Sjer-
staklega þægilegar þar
sem dúkar eru lagðir á
steingólf. Fyrirliggjandi
hjá
J. Þorláksson át Norðmann.
Bankasir.il. Símar: 103 & 1903.
Líkast smjöri!
Elsta hjónaskilnaðarplaggið, sem
menn vita um í heiminum er 2000
ára gamalt og frá Egyftalandi. Það er
ritað á papyrus, og svohljóðandi: Á
ári Faraósins Tybis liefir Pto-Lemy,
elsti sonur Pto-Lemys, sem á hcima
i Amanepi fyrir austan Ne, tjáð
Amenhotep og konu sinni Tahappy
Pekkrúrsdóttur þetta: .Teg tel ]>ig ekki
framar eiginkonu mína og leyfi ])jer
að talca þjer annan maka. Jeg skal
aldrei láta þig sjá mig, þar sem þú
kemur. Frá og með deginuni i dag
sleppi jeg tilkalli til allra húsbónda-
rjettinda yfir þjer. Yfirgef ])ú hús
mitt, undir eins og reiðilaust. Skrifað
með hendi Tuts hins lögfróða".
Vegna harðindanna sem gengið hafa
um Evrópu í vetur hafa úlfar gerst
óvenjulega nærgöngulir mannabústöð-
um og viða gert spell. Hefir kveðið
mikið að þessu í Spáni og Ítalíu og
þar liafa úlfar komið inn i þorpin,
drepið búfjenað og hrætt fólk. Yfir-
völdin í Andalúsíu hafa tekið það ráð
að eitra kjöt og skilja það eftir á
viðavangi fyrir utan þorpin og hefir
]>að hætt nokkuð úr. í Lombardíi á
ltaliu liafa úlfarnir drepið fólk.