Fálkinn


Fálkinn - 16.03.1929, Blaðsíða 13

Fálkinn - 16.03.1929, Blaðsíða 13
P Á L X I N N 13 | Veðdeildarbrjef. \ S l,ll»|'»iniiiiiiininimnimninimninniiiiiiiininiiii • mm S Bankavaxtarbrjef (veð- deildarbrjef) 8. flokksveð- deildar Landsbankans fást keypt í Landsbankanum og útbúum hans. “ Vextir af bankavaxta- S brjefum þessa flokks eru S°Jo, er greiðast í tvennu iagi, 2. janúar og 1. júlí ár hvert. jjj Söluverð brjefanna er s 89 krónur fyrir 100 króna S E brjef að nafnverði. Brjefin hljóða á 100 kr., 5 500 kr., 1000 kr. og S S 5000 kr. | Landsbanki Íslands i *• s illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllli Hreinar léreftstuskur kaupir háu verði Prentsm. Gutenberg. s s VINDLAR: PHÖNIX, danski vindillinn, sem allir þekkja, Cervanles — Amistad — Perfeccion — Lopez — Don Juan — Dessert og margar fleiri tegundir hefir í heildsölu SIGURGEIR EINARSSON Reykjavík Sími 205. ◄ 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 Hver, sem notar C E L O T E X og ASFALTFILT í hús sín, fær hlýjar og rakalausar íbúðir. Einkasalar: Verslunin Brynja, Laugaveg 24, Reykjavík. ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► I JteimiNllOLSEINlCÍj P""-------- REYKIAVÍK --------------------------------— ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði. IIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIUIIIIIIIIIIItllllllMlllllllllltlllllllllllllimilllimilllHIIIIIINIIIIHIIIIllllUIIIIIIIIIIIIIIII Þakpappinn Zinco-Ruber verður ódýrastur, en þó bestur. Reynið hann! £ Leðuvreimar, r. Strigareimar, ( Gummíreimar, Reimlásar. ) (. Einar 0. Malmberg. 0 Vesturgötu 2. — Sími 1820. súkkulaðið er að dómi allra vandlátra hús- mæðra langbest. er víðlesnasta blaðið. CfCílHinn er besta heimHisblaðið. StlILEG MGRABV&L Eftir PHILIPPS OPPENHEIM. — Þá græði jeg aftur — og miklu meira, sagði hann með ákafa. — Vitið þjer að þjer eruð fegursta kona á jarðríki?' — Heimska sagði hún háðslega. — Þarfta, — þjer megið halda i höndina á mjer. Mjer Hst mjög vel á yður, en .... -r--Jeg elska yður, tók hann fram i. — Jeg tilbið yður, Judith. Komið þjer með mjer til Ceylon . . . . ? Hún skellihló. — Hvað verður þá um manninn minn? spurði hún. — Og á hverju eigum við að lifa? Jeg er mjög eyðslusöm. — Jeg get grætt fje, sagði hann. Og það œtla jeg mjer að gera, til þess að geta unnið yður. —-■ Mjer líst vel á yður, sagði hún aftur. — Og jeg hefi ást að gefa, en jeg vil vara yður við því, að jeg er heiðingi. En jeg skal elska yður þegar þjer gefið mjer gjöf eins og þessa. Hún lyfti upp handleggnum, en á honum hjekk einkennilegt armband, grönn festi úr hvítagulli og ein róslituð perla á henni. — Það skal jeg gera, svaraði hann. — Einn Loss, Judith, — einn einasta koss. Hún hallaði sjer að honum, en hrökk sn“gglega við og benti honum að stilla sig. Hurðin hafði opnast hljóðlaust, og Londe stóð á þröskúldinum. Andlitsdrættir hans voru óbifanlegir, og hann virtist ekki taka eftir vandræðasvip gests síns. Hann stóð þar aðeins grafkyrr. —- Hjer hefi jeg meðal, sem mig langar nð þjer reynið, hr. Brookes, sagði hann. — '— Á eftir leikur konan mín kanske á hljóð- færi fyrir okkur. Ungi maðurinn hikaði. Rjett sem snöggv- ast virtist einhver illur fyrirboði kvelja hann. Einhver koldimm gjá gapti við fætur honum, og hinu megin við hana stóð Londe, rolegur á svip, en ógnandi. Honum datt snöggvast í hug að taka til íotanna og flýja 11 r húsinu. En þá heyrði hann Judith hvísla lagt og gælulega, eins og hún væri að lofa honum öllu fögru: — Farið þjer með honum og komið svo aftur. Hann gekk til dyranna, geltk gegnum stóru forstofuna með steintiglagólfinu og inn í borðsalinn á eftir húsbóndanum. Gömul, rykug konjaksflaska og tvö glös stóðu á horðinu. Londe helti í glösin með afarmikilli nákvæmni og varúð. -—- Átján hundruð og átján, tautaði hann með sjálfum sjer. — Gull og sólskin .... Tvent hið besta í heiminum. Brookes tæmdi glasið sitt í einum teig. Hann fann þægilega hitakend fara um taug- ar sínar. Snerting drykkjarins við góm hans var mjúk eins og af silki. Londe tók fram aðra flösku, sein stóð bak við skál með rós- um í, helli í annað glas og rjetti að honum. — Nú skuluð þjer reyna þetta, sagði hann. Gesturinn hikaði hvergi. Hann lyfti glas- inu upp að vörum sínum og tæmdi það. Drykkurinn var bragðlaus en hafði þó ein- hver áhrif, þannig að honum fanst sjer auk- ast kraftar um allan helming. Hann leit á andlit Londes, sem var skuggalegt en sigri hrósandi, og svo þóttist hann sjá hundrað andlit. Svo þoka og neyðaróp. Það vissi hann síðast af sjer. Broolces leið skrítilega er hann vaknaði morguninn eftir. Hann fann til óvanalegs afls í líkama sínum, er hann vaknaði í herbergi sínu i gistihúsinu, heyrði vatnið renna i bað- kerið og sá herbergisþjóninn vera á ferli í lierberginu að taka til föt hans. Hann reis upp í rúminu. — Hæ, kallaði hann, — hvern- ig í fjandanum komst jeg hingað? — Herrann kom heim laust eftir kl. eitt, sagði þjónninn. Með honum var roskinn maður, sem var svo vænn að gefa mjer tutl- ugu franka. Herrann liafði auðsjáanlega ver- ið í góðu kvöldboði, bætti hann við. — Brookes hafði alls enga löngun til að vita meira um viðburðina kvöldið áður. Hann stökk út úr rúminu blístrandi. í sama vetfangi og hann steig niður í baðkerið varð hann var við eitlhvað ljettlyndi hjá sjer, en tók því, sem væri það sjálfsagt. Hann kallaði eftir morgunverði sínum, borðaði hann með mikilli matarlyst, klæddi sig og gekk út l'yrir gistihúsið, altekinn gleðitilfinningu, sem hann hafði ekki þekkt árum saman, harns- legri gleði yfir öllu, sem fyrir augun bar, Ör- vænting hans frá deginum áður var gjörsam- lega horfin. Hann talaði við hvern, sem hann náði i inni í drykkjustofunni, en þar fjekk hann sjer glas af víni og kyntist ýmsum mönnum, gekk yfir í spilasalinn, spilaði þar rólegur, eins og ekkert væri um að vera og með einhverri vissu, sem hann hafði ekki haft af að segja áður. Áður en hann fór að eta hádegisverð með nokkrum þessara nýju kunningja sinna, hafði hann grætt lítið eitt yfir fjörutíu þúsund franka. Klukkan fjögur var hann kominn inn í Spilaklúhhinn, og var önnuin kafinn að leita að Judith. Hann vasa- fylti af peningum og seðlum, en fór frá borð- inu jafnskjótt sem Londe og Judith komu inn. Hann flýtti sjer til þeirra, ákafur eins og skóladrengur. Þau litu á hann forsdtnis- lega. — Vinnið þjer? spurði Londe. Brookes kinkaði kolli kæruleysislega — hann, sem hafði verið að spila daginn áður með svitaperlurnar á enninu, og horft á eftir hverjum skilding, eins og hann væri að tefla um líf og dauða. — Já, jeg hefi unnið, svaraði hann. -—- Hvað segið þjer um að fá te, systir Judith? Við skulum finna okkur einhvern krók hjerna inni .... eða eigum við kannske að fara eitthvert annað og dansa? Augu hans leituðu að hennar augum, með áfergju. Hún var kurteis, en í viðmóti hennar var þó mótstaða, sem hann var of glaður til að taka eftir, í fyrstunni. — Jeg lcom til þess að spila, sagði hún. En engu að síður getum við fengið okkur te fyrst, ef þjer viljið. Londe gekk frá þeim og ungi maðurinn dró Judith að borði í einu horninu í salnum. Alt órólega hikið frá kvöldinu áður var horf- ið. Hann við hafði óspart sterkustu hrósyrði og beindi til hennar ástarorðum, án þess að draga neinar dulur á það, og með ákafa, sem var helsti mikill. Hún fyrir sitt leyti tók þessu með kurtcisi, og selti aldrei ofan í við hann, en hann fann samt ósjálfrátt, að eitt- hvað dró þau hvort frá öðru, sem ekki hafði verið daginn áður. Samt vildi hann ekki við- urkenna með sjálfum sjer, að svo væri. Hann hló að þessari heimskulegu hugsun, að sjer yrði ekki að ósk sinni. — Þjer eruð ákafir í ást yðar í dag, sagðí hún lágt, — en jeg er hingað kominn til að sjá yður græða í spilum. Munið eftir, að þjer verðið að græða. Hann ljet hana fara með sig, hálfnauð- ugan, inn í spilasalinn. Klukkan sjö hafði

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.