Fálkinn


Fálkinn - 20.04.1929, Blaðsíða 7

Fálkinn - 20.04.1929, Blaðsíða 7
FÁLKINN 7 ANDFÚLI RAKARINN JÓN H. GUÐMUNDSSON Þessi rakari þurfti endilega verða andfúll. Eini maður- inn, sem jeg nokkurnveginn ör- uggur gat látið raka mig. Jeg hafði eitthvað út á alla aðra að setja, því ýmist skáru þeir mig eða fóru svo óhöndulega með hnífinn, að jeg var dauðhrædd- ur undir honum. En þessi rak- ari var rjettnefndur sniilingur. Aldrei kom það fyrir, að hann skæri mig svo mikið sem smá- skeinu. Það var engu líkara en að ull væri strokið eftir andlit- inu, þegar hann var að verki. Og hann var einkennilega fljót- ur að skafa af manni. í langan tíma hafði jeg ekki látið neinn annan raka mig og sjálfur gerði jeg það aldrei. En nú var rakarinn orðinn hræðilega andfúll. Og þessi ó- sköþ komu að mjer virtist í einni svipan. Það var vægast sagt ill- þolandi, þegar hann laut yfir mig. En sjálfur hafði hann lík- lega ekki hugmynd um þetta. Annars hlyti hann að hafa hald- ið sig betur frá vitunum á mjer. Mjer fanst hann aldrei hafa komið nær þeim en nú. Þetta olli mjer mikilla á- hyggja. Jeg var búinn að taka þá trygð við þennan rakara, að mjer mundi varla vera unt að finna ánnan eins. Einnig þóttist jeg vita, að honum fjelli þungt, ef jeg hætti að koma til hans. En að sitja undir þessum ó- daun, minst þrisvar í viku, var alveg óþolandi. Var það skortur á ahnennum velsæmisreglum, ef jeg færði þetta i tal við hann? G,at hon- um mislíkað, ef jeg spyrði hvort ekki væri hægt að gera eitthvað við þessu? En þótt jeg' kaimi mjer til þess, þá vissi jeg alls ekki hvernig jeg ætti að koma orðum að því. Jeg fór að spyrja kunningja mína hvernig hest væri að lækna andremmu. Þeir komu með mörg ráð og flestir þóttust vita töluvert um þessa hluti. En mjer virtust ráðleggingarnar vera harla lítils virði. — Sumir sögðu, að pillur fengjust í lyfjabúðum <>g væri gott að nota þær, því að lyktin mundi að minsta kosti finnast síður meðan þær væru upp i manni. En ef jeg keypli þessa pillur og byði honum þær, áður en hann hyrjaði að raka mig næst? Jeg náði mjer í fulla dós og hjelt nú vonglaður til rakarans. Þegar jeg var sestur í stólinn, hauð jeg honum úr dósinni. „Nei takk, jeg horða aldrei svona pillur“. „En þær eru svo ljómandi góðar“. „Já, sumum finst það“. Og ,íeg V£>rð að láta dósina of- :,n i vasann al'tur við svo búið. Enn mátti jeg til með að sitja Undir þessari hræðilegu lykt, tinna þessa viðurstyggilegu and- renimu þrengjast inn í vit mín °g gera mig hálfvitlausan. „Tyggið þjer inunntóbak?“ spurði jeg þegar hann hafði 1-akað mig. „Stundum hefi jeg gert það“. Jeg hjet sjálfum mjer að hafa það með mjer í næsta skifti. — Auðvitað varð jeg að hafa það upp í mjer, þegar jeg kæmi inn. Hraustlega skyldi jeg tyggja og spýta kunnáttulega í hrákadall- inn eða kolakörfuna. En jeg hefi oftast verið fljót- ur að taka álcvörðun, án þess að hugsa um, hverjar afleiðingarn- ar yrðu fyrir mig og aðra. Jeg hafði aðeins einu sinni á æfinni látið munntóbak upp í mig. Það var fyrir mörgum ár- um, þegar jeg var enn 'óspiltur. Þá hafði jeg áídrei reykt, drukk- ið áfengi nje litið konu losta- fullum augum. En jeg fekk verk í tennurnar, hræðilega tannpinu. Jeg hálfgrjet af kvölum. Þá ráðlagði mjer einn af þessum umhyggjusömu og hjartagóðu mönnum sem svo mikið er til af í heiminum og alt af hafa ó- brigðul ráð á takteinum, að jeg skyldi tyggja munntóbak. Hann gal' mjer fúslega eins mikið og jeg þurfti. Rjett á eftir fór jeg í sendiferð. Jeg tugði rösklega og datt ekki annað í hug en að mjer mundi batna. En skyndi- lega fór mjer að verða flökurt. Jeg fann að jeg hlyti að kasta upp. Ekki datt mjer i hug að gerá það úti á götu. Jeg vissi af vanhúsi einu utanhúss og flýtti mjer þangað og inn. Þar fór alt upp úr mjer, sem komist gat þá leiðina. — Þann dag hjet jeg því, að þessi óþverri skyldi ald- rei framar fara inn fyrir mín- ar varir. En nú hlaut jeg að brjóta þetta heit. Jeg mátti ekki láta undir höfuð leggjast nokkuð ráð, sem gat orðið til þess, að þess- ari plágu yrði ljett af, þótt ekki væri nema í svip. Jeg fór til rakarans með tó- hak bæði i munninum og í vas- anuin. Skönunu áður en jeg sett- ist í stólinn, bauð jeg honiim bita. „Nei takk, jeg tygg aldrei tó- bak meðan jeg er að vinna“. Nú var jeg illa vonsvikinn. Þetta hafði þá líka brugðist. — Enn Ijet jeg raka mig og alt var eins og áður. Svona sat í sama horfi nokkr- ar vikur. Jeg tók eftir því, að viðskifta- menn rakarans urðu alt af færri og færri. Á þeim tíma dags sem áður hafði verið nóg að gera, komu nú orðið örfáir. Þetta varð mjer nýtt umhugsunar- og áhyggjuefni. Jeg þóttist sjá, að með þessu móti mundi rakar- inn verða atvinnulaus innan skamms tíma. Það var nokkuð, sem mjer fanst að mætti alls ekki koma fyrir. Mjer var sagt, að hann ætti konu og þrjú börn. Vesalings konan og aumingja börnin! Hlaut það ekki að vera hræðilegt, að sjá viðskiftamenn- ina, hvern af öðrum ganga sjer úr greipum. Var ekki skylda mín að gera alt sem jeg gæti, til jiess að koma í veg fyrir slíkt? Auðvitað var rangt af mjer að láta þetta afskiftalaust. Mjer dat í hug að leita lækn- is og spyrja hann ráða við þessu. En það mundi kosta peninga og ekki hafði jeg of mikið af jieim. Jeg fór því að blaða i hók, sem jeg bjóst við að gæti ef til vill gefið einhver ráð. Þar rakst jeg á þetta: „Andrcmma (foetor ex ore) er oft að kenna ýldu úr holum tönnum, en stundum langvinn- um ígerðum í nefi eða kjálka- holi. Stunduin getur andremma stafað frá skemd í Iunga“. Jeg mundi glögt, að fram- tennur rakarans virtust vera i góðu lagi. Hinar hafði jeg aldrei sjeð og lítil líkindi voru til Jiess, að jeg fengi að skoða upp í. hann. Hvort hann hefði ígerð í nefi eða kjálkaholi eða skemd í lunga, hafði jeg auðvitað ekki hugmynd um. Og ef jiað væri eitthvað af jjessu þrennu, mundi líklega erfitt að lækna jiað. En skenidar tennur var þó hægt að draga úr eða gera við. Næst þegar jeg ljet raka mig, var jeg óvenju skrafhreyfinn. Enda lá mikið A’ið. Jeg varð að komast eftir án þess að vekja minsta grun, hvort hann hefði ígerð i nefi eða kjálkaholi eða skemd i lunga. Og það verð jeg að segja, að jiótt mjer hafi oft vel tekist að orða hugsanir mínar, þá hafa jiæi' aldrei birst i betri búningi en í þetta skifti. — Þegar jeg gekk út úr stofunni var jeg liandviss um, að þessi ófögnuð- ur stafaði einungis frá tönn- unum. Þá var ekkert annað eftir en að koma honum til læknis. Þar var reyndar sá þröskuldur, sem lengi mundi jjvælast fyrir. Mjer fanst alveg ófært að segja rak- aranum blátt áfram, að hann jjyrfti að fara til læknis og láta gera við tennurnar. Þess er skylt að geta, að langt var síðan, að jeg hætti að hugsa um, hve ill-þolandi þetta var fyrir mig. Það var atvinna mannsins, konan og börnin, sem jeg bar fyrir brjósti. En eitt laugardagskvöldið, þegar jeg lcom til að láta raka mig, var lokað. A hurðinni stóð, að rakarinn starfrækti ekki stof- una framar. Jeg glápi stutta stund og var fljótur að ákveða mig, eins og fyrri daginn. Jeg fór heim til mannsins og bað hann blessaðan að raka mig, þvi að jeg gæti helst ekki látið neinn annan gera það. Mjer Jiótti rakarinn verða nokkuð undar- legur, er hann heyrði bón mína, en hann byrjaði strax að raka mig. Þegar jeg sá konuna hans, datt mjer undir eins í hug, að hún mundi vera ein af þessum vinnukonum, sem komnar eru af barnsaldrinum og grátglaðar af þakklæti taka fyrsta mann- inum, er biður þeirra. En jeg helði líklega getað tekið hana í faðm minn, þótt ekki litist mjer á liana, einungis til að bæta henni upp jiá kvöl, sem mjer fanst hún hlyti að liða vegna andremmu manns síns. Það er skemst af að segja, að jeg var tíður gestur hjá rakar- anum. Hann vann nú eyrinni og því Jíklega oft þröngt í búi hjá honum. Einu sinni var rakarinn ekki heima, þegar jeg kom þangað, aoooaaoooooooooooaooaaoao o o o o o o o o o o o o o o o o o o o o o o Verslið I o o o o o o Edinborg. o 0000000000000000000000000 en konan bauð mjer inn. Við röbbuðum mikið sanmn og að lokum barst talið að tannpínu og tannskemdum. Jeg spurði þá, hvort maður hennar hefði ald- rei haft verk i tönnunum. „Það held jeg að hann hafi ekki farið varhluta að þvi“, sagði konan. „En hefir hann þá ekki leitað læknis“, spurði jeg. „Hann hefir aldrei fengist til þess“, svaraði hún. Nú hugsaði jeg mikið um, hvernig menn vanræktu að gera skyldu sína og gættu lítið hags síns og annara. En viðskifti mín og rakarans fengu skjótari endir en mjer hafði í hug lcomið. Dag nolckurn fjekk jeg brjef. Það var frá rakaranum og í því var þessi lcafli: „Jeg neyðist þvi til að segja yður, að jeg á ömögulegt með að raka yður oftar vegna jiess að þjer eruð svo hræðilega andfúll“. Mjer hefir aldrei brugðið eins mikið á æfi minni. Fyrsta verk mitt, eftir að jeg hafði jafnað mig, var að opna munninn og líta í spegil. — Og sjá: Þar voru margar skemdar tennur. Útvarpsfrjettir. Nú hefir þýskum hugvitsinanni, prófessor Esau, tekist a'ð smíða sendi- tæki fyrir liráðlaust tal, sern notar miklu styttri raföldur, en liingað til hafa verið notaðar. Hefir hann sent skeyti á 2—3 metra löngum öldum, m. a. úr flugvjel, og Iiafa Jiau lrorist yfir 100 kílómetra. Og nú er hann að reyna tæki, sem senda skeyti með 20 —30 sentiinetra öldulengd. Eru þau ekki stærri en svo, að hægt er að liafa þau i vestisvsanum. Fer þvi sennilega að liða að þvi, að menn geti haft loflskeytalæki i öðrum vestisvasanum eins og inenn lifa úrið sitt i liinum. Með þessum tækjum er hægt að láta öldurnar berast í ákveðna stefnu, og þurfa þær því ekki að trufla skeyti í öðrum áttum. — Flestar útvarps- stöðvar sem nú eru notaðar i heimin- um, senda á 1200—1800 inetra öldu- lengd. Innan fárra vikna verður farið að útvarpa lifandi inyndum i Englandi. ]>A geta inenn setið heima lijá sjer og horft á íþróttakappleiki og merka viðburði, sem gerast í fjarlægð, og ef menn hafa hljóðútvarpstæki, geta þeir heyrt og sjeð sjónleiki og því uin líkt. I>að er aðferð liugvitsmanns- ins Baird, sem notuð verður við út- varpið. Viðtæki fyrir myndir ásamt liljóðviðtækjum eru Jiegar koinin í verslanir í Englandi og kosta frá 250 til 3000 kr.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.