Fálkinn - 27.04.1929, Blaðsíða 4
4
F A L K I N W
l
Fyrsla ókapídýrið, sem kom til Evrópu. Myndin er tckin, í dýragarðinum í
Antwerpen, en dýrið lifði að eins stutta stund.
af dýrastofni, sem er að deyja
út, því annars mundi dýrsins
hafa orðið víðar vart. Það er
mjög erfitt að finna ókapíinn,
því hann heldur sig þar í skóg-
inum sem mestur er sef- og star-
argróður, svo að henn sjest að
eins sjaldan upp úr grasinu.
Auk þess er hann styggur og
heyrir mjög vel, svo hann get-
ur komið sjer undan í tíma, ef
hætta er á ferðum.
I vaxtarlagi er ókapí einna
svipaðastur hesti, nema hvað
hann er miklu vambmeiri en
flestir hestar. Líka lækkar hrygg-
urinn eftir því sem aftar dreg-
ur og lendin er lægri en hrygg-
urinn. Að þessu leyti minnir
hann á gíraffann. Vömbin er
mjög samandreginn um nárann,
eins og á gíraffanum, og því lík-
ast að lærin sjeu laus við síð-
urnar. Hausinn er talsvert likur
og á hesti, á hlið að sjá, en fram-
an frá likist hann talsvert kýr-
haus, einkum á nefið og gran-
irnar. Er hausinn mjög langur.
Á krúnunni hefir karldýrið tvö
horn, sem þó eru skinnguð eins
og á gíraffanum. Lágklaufir hef-
ir hann engar. Dýrið er um
meter á herðakambinn, fullvax-
ið. Annars lýsa myndirnar útliti
þessa nýja dýrs, svo vel að því
verður ekki betur lýst með orð-
um. —
Stefnumótið í flotastöðinni.
Nýlega stóð danskur sjóliSi fyrir
rjetti til aS svara til sakar fyrir
hrœSilega ávirSing. Hann heitir Henry
Schlahs og var dáti á herskipinu „01-
fert Fisher".
Hann hafSi einn dag veriS settur
dyravörSur á söSlasmiSadeild, sem er
þar á flotastöSinni og átti vitanlega
fyrst og fremst aS gœta þess, að eng-
iun óviSkomandi kæmist inn. En nú
vildi svo til, aS þennan sama dag
kom unnusta lians aS heimsækja
hann. Hún var ofan úr sveit og þekti
alls ekki þann stranga aga, sem her-
menn lifa undir. LeigSi hún sjer bát
og ljet róa sjer yfir sundiS tii flota-
stöSvarinnar.
I’egar liún steig þar á land mætti
hún varSmanni, sem varS allur að
einu brosi þegar hann sá stúlkuna,
þvi stúikur eru sjaldsjeðar á þessum
slóSum. Hún spurði eftir, hvar Henry
Schlabs væri að finna, og hann beigði
sig og buktaði og benti lienni á hvar
hún ætti að fara. Sclabs væri i dag
dyravörður í söðlasmíSadeildinni.
Stúlkan fann Henry og fleygði sjer
um hálsinn á honum undir eins. En
þar sáu menn til, svo að Henry bað
stúlkuna um, að ganga með sjer út
fyrir dyrnar, þar sem enginn sæi til.
Og þar kysti hann liana. En nú var
ólánið það, að yfirmaður sá þetta.
Og í sama vetfangi, sem Henry var að
smella þriðja kossinum á munninn á
unnustunni, kemur yfirmaðurinn. Og
hann var ekki alveg eins ljúfur og
varðmaðurinn fyrsti, sem stúlkan
hafði hitt. Skipaði hann stúlkunni að
snáfa í land og fór svo með Henry
til yfirforingjans, sem dæmdi liann til
8 daga refsingar.
En þessi dómur fanst Henry full
harður. Og því fór hann til dómstól-
anna og áfrýjaði. Hann var svo hepp-
inn að ná í lögmann, sem hafði lag á
að koma við hjartað i dómurunum.
Hann hjelt langa ræSu um ást, og
úrslitin urðu þau, aS Henry slapp
með aðvörun, og lofaði að kyssa aldr-
ei stúlku á þeim tima, sem hann væri
dyravörður á söðlasmiðaverkstæSinu.
m
m
m
m
æ
m
m
m
m
#
m
m
m
m
Piano
fyrsta flokks fyrirliggjandi.
Seljast með verksmiðjuverði
að viðbættum flutnings-
kostnaði.
A. Obenhaupt.
m
m
m
m
m.
m
&
m
m
&
m
m
m
Maður nokkur var nýlega látinn laus
úr fangelsi i Ohio eftir tveggja ára
vist þar. í fangelsinu hafði hann
skrifað skáldsögu um styrjöldina og
seldi hana fyrir 30 þúsund krónur
undir eins og hann var orðinn laus.
Það var tugthúsvist sem borgaði sig.
Bandaríkin hafa veitt 6.400 norsk-
um innflytjendum viðtöku á ári und-
anfarið, en nú eru það 30.000 manns
sem hafa sótt um innflutningsleyfi
og þau eru afgreidd eftir röð, svo aS
það verða 4—5 ár þangað til þeir eru
komnir vestur, sem hafa sótt nú þeg-
ar. En nú vill Hoover lækka innflytj-
endatöluna niður í 2.377 manns og ef
það verður ofan á líða 10—12 ár
þangað til þeir fá innfararleyfi sem
nú hafa sótt.
Þegar heildsali einn í Kaupmanna-
höfn kom heim til sin fyrir nokkru
hitti hann fyrir innbrotsþjóf i dag-
stofunni sinni. Þjófurinn lá á sófa
og hraut. Það kom þá í ljós, að þjóf-
urinn hafði farið að fikta við út-
varpstækið í stofunni og hitti svo á,
að einn af hinum leiðinlegri ræðu-
mönnum þjóðarinnar var að flytja er-
indi. Og — við það sofnaði hann.
Negrahöfðingi einn í Narobi dó ný-
lega af blóðeitrun. Hann hafði átt 50
konur á lifi er hann dó og fylgdu
þær honum allar til grafar ásamt 300
börnum hans. Hann hefir áreiðanlega
ckki verið með kenningum Thit Jen-
sen um takmörkun barneigna, karl-
inn sá.
Coolidge forseti hefir nú farið að
dæmi sumra annara stjórnmálaskör-
unga, sem látið hafa af embætti, og
er farinn að skrifa í blöð. Hefir hann
gert samning við ýms stórblöð Ame-
ríkumanna um fjölda blaðagreina,
sem eiga að fjalla um sjálfan hann,
störf hans í forsetasætinu og lífið í
Washington. Fyrir þetta fær hann
dollar fyrir orðið, svo búast má við
að hann verði langorður.
Nú virðast menn staðráðnir í að
grafa jarðgöng undir Ermasund. En
fyrir 40 árum töluðu menn í fullri
alvöru um að byggja brú yfir sundið,
milli Cape Griz og Folkstone. Er þar
38 kilómetra vegalengd á milli. Haf-
K\g\gyg\/a/»i»i«/i
P&sthússtr. 2.
Reykjavík.
Sfmar 542, 254
°3
309 (framkv.st].).
i>t\r\rs<r»/i/i/a
KWiS'iTvrSrSQl
Alíslenskt fyrirtæki.
Allskonar bruna- og sjó-vátryggingar.
Hvergi betri nje áreiðanlegri viðskifti.
LeitiB upplfsinga h)á næsta umboBsmannit
dýpið var livergi meira en 60 metr-
ar, þar sem brúin átti að liggja, en
brúin sjálf átti að vera 56 metrum
yfir sjó, svo að öll skip gæti siglt
undir liana. Fjarlægðin milli stöpla
átti að vera 100 til 500 metrar. Og
brúargólfin þannig útbúin, að hægt
væri að loka brúnni alveg, ef til ófrið-
ar kæmi. í þá daga þorðu menn ekki
að grafa jarðgöng af hræðslu við, að
þau gæti komið óvinum að gagni í
styrjöld og voru því að ráðgera þessa
brú, sem hefði orðið margfalt dýrari.
Vixlarinn Georg Blúmenthal kom
nýlega til Cannes í Suður-Frakklandi
og kom auðvitað i spilabankann. Á
þremur mínútum vann hann 91.650
dollara og er sagt, að enginn liafi
áður unnið jafn mikla peninga í spil-
um á svo skömmum tima.
Berlinablaðið Tempo segir, að Vil-
helmina Hollandsdrottning ætli i
ferðalag í sumar til ýmsra konungs-
hirða Evrópu til þess að ná dóttur
sinni og ríkiserfingja Hollendinga í
mann. Nefnir blaðið ýmsa, sem drotn-
ingin muni hafa augastað á, svo sem
hertogann af Glouchester, sem er
þriðji sonur Bretakonungs, ennfrem-
ur nefnir það „þriðja son Kristjáns
konungs tiunda" — en hann er sem
lcunnugt er enginn til. Blaðið telur þó
líklegast, að Leopold prins af Coburg
verði tengdasonur drotningarinnar og
næsti „drotningarbóndi“ í Hollandi.
Með leyfi páfa var nýlega tekin
kvikmynd í Róm, er heitir „Sættin
milli páfagarðs og ftaliu". Er sýnt i
myndinni hvernig aðdragandinn var
að sættinni og eru þarna margar
myndir af daglegu lífi páfa.
Um daginn voru 40 manns staddir
á Gothlerstone-hengibrúnni í Durham
í Englandi. Bilaði þá annar strengur-
inn sem brúin hvildi á, og fór brúin
í ána og alt fólkið. Enginn druknaði
er um 20 manns meiddust; cnginn
þó banvænlega.
►