Fálkinn


Fálkinn - 27.04.1929, Blaðsíða 13

Fálkinn - 27.04.1929, Blaðsíða 13
F A L K I N N 13 Málninga- vörur Veggfóður Landsins stærsta úrval. MfHHRlWN Reykjavík. Framköllun. Kopiering. Stækkanir Carl Ólafsson. QQQQQQQQQQQtiQQGQQQQQQOQQQ O O £3 m O § 50 aura | 8 gjaldmælisbifreiðar 8 8 hefir § 8Nýjabifreiðastöðin| 8 til leigu. £3 8 Afgreiðslusímar 1216 & 1870. 8 8o£JO0eJOO0£3OO00QG£30£3O0OCJa£3 ^ Hver, sem notar ^ i CELOTEX ► t ASFALTFILT £ ^ í hús sín, fær hlýjar og y j rakalausar íbúðir. ^ ^ Einkasalar: ^ < Verslunin Brynja, ► ^ Laugaveg 24, Reykjavík. ^ NOTUÐ íslensk frí- merki kaupí jeg aetffi hæsta verfii. Verfilisti sendur ókeypis, þeim er óska. Óska eftir duglegum umbodsmönnum til að annast innkaup; góð ómakslaun. GÍSLI SIGURBIÖRNSSON, Ási — Reykjavík. Kvensokkar í miklu úrvali í Hanskabúðinni, j 'Notið þjer teikniblýantinn j „ÓÐINN “? FABRIEKSMERM súkkulaðið er að dómi allra vandlátra hús- mæðra langbest. c^álRinn er víðlesnasta blaðið. er besta heimilisblaðið. Maðurinn minn - SKÁLDSAGA EFTIR FLORENCE KILPATRICK. I. Það var Dick Burtenshaw, sem varð til þess fyrslur inanna að vekja athygli Willi- ams Hemingway á því — einmitt um það leyti, sem William þóttist viss um það, að hamingjan hefði snúið við sjer bakinu fyrir fult og alt. Þess her þó að geta, að hann var maður bjartsýnni en alment gerist. Sex sinn- Um hafði hann leitað fyrir sjer um atvinnu sama daginn og sex sinnum verið visað á hug. Erf hann hugsaði sem svo: „Gefist mér tækifæri í sjöunda sinn, er mjer borgið — sjö er happatalan min“. Það er svo sem auðvitað, að ljettlyndur maður á besta aldri getur ekki örvænt um hag sinn til lengdar. Hemingway bjó i litlu, en ekki ósnotru herbergi við hliðina á leiðinlegu krókagöt- unum fyrir vestan Notting Hill Gate. Þegar kann var nýkominn heim til sín, kom Dick vinur hans og fjelagi, lallandi inn til hans. Dick var hesta sál og vinur vina sinna, þótt hann væri ekki hærra settur en að vera leik- ari i skopleikahúsi af Ijelegra tæi. „Fyrirgefðu, að jeg veð hjer inn til þín, fyrirvaralaust", sagði hann, „en mjer var forvitni á að vita, hvort þú hefðir fengið nokkuð að gera í dag“. Hemingway hristi höfuðið. „Jeg hjelt að þú gætir nú sjeð það á mjer“. „Jæja, jeg er búinn að finna hjer atvinnu handa þjer. Gerðu svo vel — jeg klipti þetta út úr Tímanum“. ATVINNA í BOÐI. Ungan mann — háan vexti, dökkhærðan °g skegglausan, góðra inanna og vel upp al- inn — vantar fyrst um sinn. Sjerstök mentun ekki heimtuð. Tilboð merkt Y. Z. 77, sendist afgreiðslu blaðsins. „Það mætti ætla, að þetta væri gaman en ekki alvara“, sagði William þegar hann var húinn að lesa auglýsinguna. „Nú! — Jeg vildi óska þess, að jeg væri hár vexti og dökkhærður — þá skyldi jeg ekki hafa látið standa á mjer að fara á hnot- skóg. En jeg get ekki komið til inála“ — og Dick leit ólundarlega á stutta og digra fætur sína. „Útlit mitt hefir altaf verið mjer til ó- liðs. Hversvegna getur ekki einhverjum bann- settum leikritahöfundinum dottið í hug að láta aðalpersónuna vera smáa vexti og litla fyrir mann að sjá! Var Napoleon t. d. ekki lítill vexti?“ „Jú, auðvitað“, svaraði vinur hans hug- hreystandi, „og hann var ekki nándar nærri eins geðslegur og þú. — Jeg held að jeg verði að tefla á tvær hættur“. „Tefla á tvær hættur“, sagði Dick og hló, „jeg held nú það; þá byrjar gamanið fyrst, svo að um munar. Jeg þóttist undir eins viss um, að þetta væri einmitt við þitt hæfi, og til þess að spara þjer ómak, lagði jeg tilboð íyrir þína hönd inn á afgreiðsluna. Svarið kom í morgun“. Hann tók sigri hrósandi brjef upp úr vasa sinum, rjetti William það og sagði: „Gerðu svo vel. Þú átt að koma til Pridmore Gar- dens nr. 84, kl. 4 í dag“. „Dick, þú ert hreinasta gersemi“, sagði Wiliam hrærður. „Jeg vona, að jeg fái ein- hverntíma tækifæri til þess að gera þjer ann- an eins greiða. — Klukkan er orðin hálf- fjögur, jeg verð að leggja af stað undir eins. Jeg vona að fötin villi ekki sýn á mjer, þó að þau sjeu orðin lóslitin". Hann skoðaði sig í krók og kring. „En sú guðs mildi, að fötin mín eru heil ennþá“. Dick skoðaði vin sinn vandlega hátt og lágt. ,Fötin þín fara ágætlega, og eg held, að útlit þitt geri þig færan í flestan sjó. Hefurðu hreint hálslín?" „Já, — en jeg ætla að spara það þangað til sjerstakt tilefni verður til þess að nota það“. „En þetta er alveg sjerstakt tilefni, þú get- ur reitt þig á það. Jeg skal lána þjer ristar- hlifarnar minar, þær gera sitt gagn. En nú verður þú að fara að komast af stað, annars verður helftin af atvinnulausum Lundúna- húum, sem auglýsingin getur átt við, komin á undan þjer“. Eftir nokkurar mínúlur var William lagð- ur af stað. Hann var gagntekinn af einkenni- legri eftirvæntingu, óljósu hugboði, sem hann hafði aldrei orðið var áður, þótt á ýmsu hefði gengið fyrir honum. Það var eins og hann væri að leggja út í furðulegt æfin- týri---------. „Þetta er sjöunda tilraunin i dag — og hún skal hepnast", sagði hann við sjálfan sig. Það var ekki að kynja þótt hik kæmi á William, þegar hann kom í námunda við Pridmore Gardens nr. 84. Samt sem áður herti hann upp hugann og gekk inn í húsið. Honum var vísað inn í herbergi, sem var fult fyrir af ungum mönnum, háum og dökk- hærðum, og báru þeir sig allir meira eða minna mannalega. Það var mikið vafamál, hvort hann kæmi yfirleitt til greina, þar sem svona margir voru komnir á undan lionum. Umsækjendurnir rendu alt annað en hýru auga hver til annars. I einu stofuhorninu stóð ungur maður, sem virtist ekki uppfylla neitt af skilyrðum auglýsingarinnar annað en það, að hann var ákaflega langur. Hann var að skeggræða við þann, sem næst hon- um stóð, og atyrða stjórnina og kendi hann henni um atvinnuleysi sitt. „Eftir mínu viti er það horngrýtis stjórn- in---------“. „Hvað gagn er í því að atyrða stjórnina?“ svaraði hinn. „Jeg get sagt yður það fyrir satt, að hér í lifi er alt undir því komið, að hepnin sje með“. William leit á þann, sem talaði, fullur skilnings og samúðar. Þetta átti við hann. En honum gafst ekki tími til að hugsa nánar um þetta efni, því að alt i einu var hurð- inni hrundið upp og þjónustustúlkan. sem hafði visað honum inn i biðstofuna kom inn í dyrnar og leit í kringum sig. Hún virti um- sækjendurna lauslega fyrir sjer og loks varð henni litið á William. „Viljið þjer koma?“ sagði hún. William roðnaði sigri hrósandi. Hann stóð þegar upp og gekk nokkur skref í áttina til hennar. En þá nam hann staðar og sagði af- sakandi: „Jeg er hræddur um að röðin sje ekki komin að mjer ennþá“. „Jú, það er öllu óhætt“, svaraði stúlkan. „Ivomið þjer hjerna“. Fyrir utan dyrnar nam stúlkan staðar. „Hvað er nafn yðar? Jeg fór inn með nafnspjaldið yðar — en umsækjendurnir eru svo margir“.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.