Fálkinn - 01.06.1929, Blaðsíða 4
4
FÁLKINN
Frœðslustnnd á lökuheimilinu. Kennarinn er aiS útskýra Ijósmyiulalistina.
sagt tilnafns síns og þvi síður
heimilis eða foreldra. Sum slógu
sjer saman í hópa. Þau betluðu
og ef það dugði ekki þá stálu
þau. Þau sváfu á nóttunni í
húsagöngum, skúrum og á
gluggaristum veitingahúsanna,
þar sem yl og ilm lagði upp frá
eldhúsunum. Suin fórust en þau
tápmestu hjeldu lífi og juku tölu
glæpalýðsins í landinu.
flökkubörnin tekin, hvar sem
þau hittast, og hvort sem þau
geta sagt til um hvaðan þau sjeu
eða ekki, og ltomið fyrir á þess-
um stofnunum. Er reynt að gera
hörnin að nýtum þjóðfjelags-
borgurum, þeim eru kend al-
menn fræði og síðan eru þau
látin læra eitthvað, sem orðið
geti þeim af lífsstarfi. — En
varla þarf að taka fram, að
IS'okkrir af elslu nemendunum í bóknáms-deildinni.
Fyrstu árin gat stjórnin ekk-
ert við þetta ráðið; hún hafði i
svo mörgu að snúast, að hún
varð að láta börnin eiga sig að
svo stöddu. En það er til marks
um endurbata i rússnesku þjóð-
lifi, að nú eru yfirvöldin farin
að láta þetta mál til sín taka.
Kenslumálaráðuneyti Rússa hef-
ir stofnað fjöldann allan af skól-
um og uppeldisstofnunum fyrir
vanrækt börn í samráði við
sveitastjórnirnar, og nú eru
börnunum er eigi hvað síst inn-
rætt, að kommúnisminn sje hin
eina sanna stefna í þjóðfjelags-
málum!
Það er engum vafa bundið, að
barnafræðslan er nú orðin al-
mennari í Rússlandi, en hún var
nokkurntíma undir keisara-
stjórninni. Samkvæmt opinherum
skýrslum er „analfabetum":
mönnum sem ekki þekkja staf-
rófið, þ. e. kunna hvorki að lesa
nje skrifa, að fækka i Rússlandi.
Svefnskáli í cinu af tökuheimilunum ráðstjórnarinnar, í Moskva.
m [afnarstræti 18.
RAFMAGN
Sími 1005.
S tofnendur:
Höskuldur Baldvinsson, rafmagnsverkfræðingur,
Hafliði Gíslason, löggiltur rafvirki,
/ /
Oskar Arnason, rafvirki,
Hans R. Þórðarson, framkvæmdastjóri,
Sigurður Gíslason, rafvirki.
Gerum áætlanir og byggjum rafmagnsstöðvar.
Leggjum rafmagnslagnir í hús, skip og báta.
Rafmagnsviðgerðir fljótt og vel unnar.
REYNIÐ!
En þess verður að gæta, að á-
sland það er ríkti meðal rúss-
neskrar alþýðu fyrir byltinguna,
var allsendis ósambærilegt við
það sem gerist hjá öðrum
Evrópuþjóðum. Rússar voru
orðnir heilli öld á eftir tíman-
um í flestu tilliti; Ijensmanna-
l'Iokkur, sem kúgaði alþýðuna
og hjelt hændum hins mesta
landbúnaðarlands Evrópu í á-
nauð, rjeð þar mestu, undir yf-
irstjórn zaranna, sem hvorki
höfðu dáð nje dug til þess að
leyfa sjálfsögðum framförum
innrás í landið. ■—■ Þessvegna er
það engin tilviljun, að byltingin
Íd aut að koma í Rússlandi. Rúss-
land var eina landið í Evrópu,
sem slík bylting gat orðið í.
JEG ER ALVEG
HISSA!
Danske og udenlandske
B O G K R
hurtigst fra \
EINAR HARCH í
Dansk og udenlandsk
« Boghandel. »
I Fiolsfræde 33. Kobenhavn K. *
Forlang Katalog graíis tilsenflt.
Niræður lireskur hersliöfðingi, Sir
Cliarles Maurfield Clarke, gifti sig um
daginn 37 ára gamalli stúlku. Konu
sína misti hann fyrir möi-gum áruin
og einkarsonur lians fjell í striðinu.
Hinn heimsfrægi rúsneski söngvari,
Sjaljapin, liefir nýlega undirskrifað
samning við kvikmyndafjelag i Amer-
iku um að syngja í „talandi" kvik-
mynd. Hann fær 400,000 dollara fvrir.
Um daginn ók miljónamæringurinn
Wood í hifreið sinni yfir leikkonuna
Thema German. Hún meiddist tölu-
vert í andliti, einkum skemdust var-
irnar töluvert. Hún lor í skaðabóta-
mál — og fjeklt 30,000 dollara fyrir.
Frú Sara Goodwin í Kingston á
Bretlandi var jarðsungin um daginn
við mikla viðhöfn. Hún hafði verið
gift sjö sinnum. Þrjá eiginmenn hafði
liún mist af slysum, tveir liurfu alveg,
og við tvo hafði liún skilið.
Náungi í Chicago hefir sett heims-
met í alveg sjerstakri grein. Hann
hefir á tæpu ári þvegið og þurkað
hálfa miljón diska á veitingahúsi þar
í horginni.
Læknar í Birmingham hafa sein
stendur til athugunar unga stúlku sem
hefir handieggi með svo miklu þenslu-
magni, að hún getur teygt þá marga
centimetra, Atta að sögn. Annars er
ekkert athugavert við liana en þetta
þykir tíðindum sæta.
í Tyrklandi er verið að reisa stór-
an minnisvarða, sem á er ritað
latneska stafrofið með gullnum stöf-
um. Það er til minnis um að Mustafa
Kemal 10. ágúst 1928 hjelt líkræðuna
yfir arabiska stafrofinu.
í Ameriku þykir óskaplegt ef mað-
ur kyssir kvenmann svo nokkur sjái,
— svo maður ekki nefni, ef nokkuð
slíkt fer fram á opinberum stað eða
á strælum úti. En að fólk kyssist úti
þrátt fyrir alt, má ráða af þvi, að nú
liefir lögreglustjórinn í New York tek-
ið allmargar ungar, snotrar stúlkur í
þjónustu lögreglunnar. Þeim er hók-
staflega ætlað að láta menn kyssa sig
— og síðan að kæra þá og fá þá sekt-
aða.
Miljónamæringurinn Guazzone frá
Suður-Ameríku hafði ákveðið í erfða-
skrá sinni að einkadóttir hans skyldi
því aðeins erfa liann, að hún giftist
einum frænda sínum, sem hann til-
nefndi. Hin fagra dóttir lians var því
miður ieynilega trúlofuð fátækum
lilaðamanni og henni þótti málið
vandast. Hún Icom því þannig fyrir að
liún geröi samning við frænda sinn.
Þau giftust, en skildu nokkrum min-
útum síðar. Frændi liennar fjekk
iielining auðsins fyrir vikið — og
síðan giftist liún blaðamanninum.
Ensk stúlka, sem nýlega giftist lá-
varði, lirósar sjer af þvi að hafa
minstan munn allra kvenna i heimi-
Bresku blöðin segja, að allar konur
öfundi hana. En brúki liún munninn
í hlutfalli við stærðina er eldti ósenni-
legt að margir karlmenn öfundi inahn-
inn liennar!