Fálkinn


Fálkinn - 01.06.1929, Blaðsíða 7

Fálkinn - 01.06.1929, Blaðsíða 7
F Á L K I N N 7 V E G U Það var gengið á tánum livar sem stigið var niður fœti i liúsinu. Ragn- ai' kaupmaður var liættulega veikur. Hann hafði fengið svæsna lungna- hólgu. Læknirinn hafði verið táoi'ður. Ragnar kaupmaður iiafði gert sjer von um að dauðinn væri í einhverri órafjarlægð. Hann liafði lialdið ]iví fram, að dauðinn kæmi hversdagsmál- urn mannanna ekkert við. Það væri ekki um annað að ræða en að sofna, Þegar ]>essu lífi væri lokið. En nú gat hann ekki hetur sjeð, en að hann stæði alt í einu frammi fyrir dauð- anum. Og gat hann nú verið alveg viss um það, að enginn fótur væri fyrir öllu því, scm sagt var um lifið eftir dauðann? Hvernig gat liann verið viss um ]>að? Hann hafði í raun og veru aldrei um málið hugsað. Honum liafði ávalt fundist það fjarstæða. En margir höfðu hugsað um þau mál, og þeir höfðu ýmislegt fullyrt. Og það var fjöldi fólks, sem trúði þeim fullyrðingum. Var fólkið svona trúgjarnt og heimskt? — Það hafði honum fund- ist. — En nú runnu á hann tvær grimur. Og nú var máske að því kom- ið, að hann þyrfti að standa frammi fyrir sannleikanum. Það fór hrollur um hann, og svitinn spratt fram á enninu. Hugurinn iivarflaði aflur í tímann, til liðínna æfidaga. Eitt sinn hafði hann verið fátæk- ur og umkomulaus unglingur. Með linúum og hnefum hafði hann hrotið sjer hraut í lífinu. Og var það ekki heiður hans að hafa sjálfur hrotið sjer hraut? Hann gat ekki sjeð, að hægt væri að komast öðruvísi áfram. I'að voru nú ekki neinir lieilagir engl- ar, þéssir hlessaðir jarðarbúar. Og gat nokkur láð lionum það, þó Iiann vildi láta sem allra minst af hendi við aðra, og ná í sein mest fvrir sjálf- an sig? Voru ekki allir með þvi marki hrendir? Hann hafði verið geðrikur og vilja- sterkur. En var það ekki viljaþrótt- urinn og skapfestan sem höfðu gjört honutn það fært að komast það, sem hann liafði komist. Ófyrirleitinn hafði hann verið i æsku og hefnigjarn. Margir liöfðu fengið að kenna á harð- leikni hans á uppvaxtarárunum. Það kom upp í huga lians atvik frá þeim árum. Hann hafði þá verið smali að Skriðu. Þóra, vinuukonan, hafði reitt hann til reiði. Hann hugs- að um það all kvöldið, hvernig liann gæti komið hefndum fram. En um nóttina læddist hann að rúmi henn- ar og klipti af henni liárfljctlurnar, fast upp við eyrun. Hann fekk að vísu hotnlausar skammir fyrir tiltækið; en það sem húið er að gjöra, verður ekki aftur tekið. Og Þóra gekk með skuplu alt sumarið og allan næsta vetur. En það mundi hann, að Þóra grjet eins og harn allan daginn, eftir að þetta gerð- ist. Það gægðus,t lika fram í huga lians ýms atvik úr daglegu lifi siðari ára. Hvernig hafði framkoma hans verið við fátæklingana og aðra litilmagna? Hg hvernig Iiafði honum farnast við verkafólkið? Það gægðust liópar af ásakandi and- litum upp í huga hans. Ætlaði það að tara að ásaka hann nú — ósjálf- hjarga og hjálparlausan, eins og hann var? En myndirnar fóru ekki aö þvi, hvað honuni þótti best lienta. Þær ætluðu auðsjáanlega að hjóða hoiium hirginn. Hann skipaði þeim að fara, sagði þeim, að þær hefðu ekkert hjer a® gera. En nú urðu sctriingarnar rugl- ingslegar, og myndirnar fóru á ring- ulreið. — Hann hefir óráð, aðra stundina, mælti hjúkrunarkonan við frú Önnu. R I N N Þær liagræddu houum á koddanum, þerruðu svitann af enninu og vöktu yfir liverri lireyfingu Iians. Þannig leið tíminn. Nú bjuggust þær við að bráðlega mundi skifta um, á annanhvorn veg- inn. Klukkan var orðin 3. Friður nætur- innar livíldi yfir öllu. Það hafði sig- ið svefnmók á Rangar. Frú Anna var áliyggjufull. Hún sat við rúinið og grúfði andlitið i hönd- um sjer. Sárast þótti lieniii, hve litið hún var fær um að gera. Hjer var auðvitað engu hægt úr að hæta. Hún hafði lesið úr sundurlausu setningunum og óráðsruglinu. Og hún gat af þvi ráðið, livernig hugarástand lians var nú. Hún fór að barma sjer yfir því, rneð sjálfri sjer, hve lílil á- lirif liún hefði getað liaft á honn. Þau höfðu aldrci átt samleið í lífsskoðun- um, allra síst i andlegum málum. Hann hafði alt af hæðst að trúartil- finningum licnnar og bænrækni, alt af stríði við sjálfa sig. En svo tók Þóra lilegið að lienni, þegar liún mintist á íramhald lifsins. Og hversu oft hafði hann lirýnt hana með því, að hugsun hennar snerist öll um draumkendar hugsjónir og skýjaliorgir, sem ekki komu veruleikanum við. Aðalliugsun lians hafði verið að safna fje, og það hafði honum telrist. Húii vissi að fjármunirnir voru inikilsvirði, og liún vildi afla fjár- muna, án þess að ganga á liluta ann- ara. Og hún vildi afla þeirra i þarfir göfugra hugsjóna. En liverju höfðu ]iau varið til göfugra liugsjóna? — Henni var órótt. Það greip liana cinliver sterk þrá, til þess að leita sambands við æðri öfl. Hún hafði oft fengið styrk og hug- svölun í sambandi sálar sinnar við þau öfl. Hún laut að Ragnari og sá að haun mókti. Nokkur liöfug tár fjellu á koddann. Hún gekk fram í stofuna, sem var fram af svefnherberginu og staðnæmdist þar. Hún vildi leita guðs í einrúmi og kyrt næturinnar. Og hún kraup við legubekkinn, til þess að biðja. En lienni var erfitt um hænina. Það gægðust ótal liugsanir fram i liuga liennar. Og það var eins og hugsanirnar yrðu að myndum. Fn svo breyttist sjónarsviðið. Ifvað var þetta? — Nú sá liún Ragnar. — Hann var staddur á einhverri auðn. Var þetta hugar- burður, eða sá liún þetta inni i stof- unni? Hún hlaut þó að vcra með rjettu ráði. Eða var hana farið að dreyma, glaðvakandi, eins og hún var? Og livað var þetta, sem Ragnar liafði lilaðið upp í kringum sig? Nú sá liún það. Það voru auðæfi bans. Hún sá liann reyna að breiða sig yfir þau, eins og liann vildi verja þau fyrir ein- hverjum. Nú skýrist sýnin belur. — Það var fjöldi fólks umliverfis Ragn- ar. —Hún þekti það flest. Alt hafði það orðið fyrir einliverskonar mis- rjetti af lians hendi. En til hvers var komið til þess að kref.jast reiknings- skapar? — Hvers vegna kom það nú? — Hún mundi eftir þvi, að Ragnar var liættulega veikur. — Nú var auð- vitað timinn kominn. — En þarna stóð maður í skínandi ltlæðum. — Ekki gat það verið menskur maður. Hann hjelt á vogaskálum i liendinni. — Nú var gátan ráðin. — Hún gekk fram og staðnæmdist við lilið Ragnars. — Þar vildi hún vera, livað sem á dýndi. Hún gat þá máske eitthvað hjálpað honúm. Og nú fann hún þrótt sinn aukast. Það var eins og hún andaði að sjer krafti' frá einhverjum ósýni- legum aflgjafa. — Ilún sneri sjer að Ragnari. Hann var þungur á brúiiina og kuldalegur, eins og norðanliakki yfir hafinu. lfún lagði hönd sina á öxl lians, og við það mýktist svipur- inn og varð ljúfur eins og vormorgun. En Ragnar varð um leið máttvana eins og lítið barn. — Hvað átti hún að gera? — Henni var auðvitað ætlað að gera eitthvað. — Hún tók nú fjársjóðina, einn af öðrum, eins og ósjálfrátt, og tíndi þá i vogaskálina. Lóðanna þurfti liún ekki að gæta. Það gerði maðurinn í livitu klæðunum. Og nú afhenti hann hverjum fyrir sig, það sem hann vóg á skálarnar, jafn óðuin og þeir gáfu sig fram. Þannig hjeldu þau áfram, þar til alt var þrotið. En fjársjóðurinn hafði ekki enst handa öllum. Þarna kom ung kona, tötraleg og hálf nakin. Hún var hikandi og ó- framfærin. —■ Með Iiverju varð lienni greitt? — Það var ekkert eftir. — Hún fann augu hvitklædda manns- ins hvila á sjer, fann að liann las huga hennar, eins og læsi liann i op- inni bók. — Henni varð litið á kjól- inn sinn. — Átti hún með rjettu föt- in, sem hún var í. Benti eklti alt á að þau lijónin væru liinir raunveru- legu öreigar? — Og hvað var þá ann- að að gjöra en að skila þeim. Henni var það ljóst. Það var lögmál rjett- lætisins. Engir tveir menn voru sltild- ir að.skiftuin fyr en það lögmál var uppfylt. Og var nú ekki verið að jafna reikningana? — Með hverju gat liún skýlt sjer, ef hún klæddi sig úr fötunum? — En hverju þurfti hún að skýla? — Hver cinasti lijartsláttur liennar var lielgaður guðí. Vilji henn- ar og þrár voru helguð göfugum hug- sjónum. Hún klæddi sig úr fötunum og lagði þau í skálina. Fátæka konan tók þau Og fór. — Þóra frá Skriðu — lieyrði hún sagf við eyrað á sjer. Hún leit upp og sá Þóru standa við vogaskálarnar. Hún var með stýfðu lokkana eins og forðum. — Söguna hafði hún heyrt. — Henni varð ósjálf- rátt gripið til hárlokka sinna. Og lokkarnir fjellu lausir niður á liand- leggi hennar. Hún lagði ]iá i skálina, og leit til Þóru. Þóra stóð kafrjóð og niðurlút. Hún átti auðsjáanlega í hárið, lokk fyrir lokk. Hún lirá lokk- iiiium saman í yndislega fagran hár- sveig. Þegar því var lokið, sá bún Þóru koina í áttina til sin, og fann liana leggja sveginn á höfuð sjer. En þegar Þóra geklc á brott, sá hún að undarlega lirá við. Glóbjart liár lið- aðist uni herðarnar og fjell i beltis- stað. — En undrun hennar varð ennþá meiri. — Hún var sjálf i yndislcga fögrum klæðnaði, og bárfljcttur liennar lið- uðust niður, eins og þær höfðu feg- urstar verið. — Henni varð litið til livitklædda inannsins. Ifann stóð enn á sama stað. Hún sá augu lians, mild og kærleiksrík, hvíla á sjer. Og mild- in og ástúðin fóru um sál liennar eins og gróðrarskúr um gróanda. — Iin nú hvarf sýnin. — Henni varð lilið til Ragnars. Hann var enn á sania stað. — Þau voru tvö ein eftir. Hún fór að skygnast um. Nú sá hún Ijósbjarma í fjarska. Það var eins og hjarmi yfir lýstri borg. — Hún reyndi að reisa Ragnar upp. Hann gat með naumindum staðið. -—■ En nú livarf sýnin alt i einu og það var eins og liún raknaði úr undar- legu ástandi. — Hvað liafði komið fyrir liana? — Hvað lioðaði þcssi sýn? — Hún fann sig knúða til að svala bjarta sínu i bæniniii, og nú ællaði hún sjer að beita til þess öll- uni vilja sinum. Henni fanst sálin vera í einhverskonar samhandi við ósýnileg æðri öfl, og hún vissi að nú mundi henni verða Ijett um að biðja. Og nú lieyrði liún rödd, unaðslega eins og þýðustu tóna og þróttþrungna eins og fossaniðinn: — Hvers þjer liiðjið föðurinn í mínu nafni, það mun hann veita yð- ur. — Og nú var eins og sál liennar andaði að sjer uinlra þrótti. Hver taug var spent. Hún fann sig alla verða að logandi fórnareldi, sem teygði sig upp að liásæti dróttins. Hún hað um að Ragnari mætti verða lengra lífs auðið, og að honum auðn- aðist að hæta fyrir umliðið líf. Hún hað um visku, ]irótt og aðstoð til þess að liæta lif lians og fegra. Og hún hað um að mega fylgja honum vfir á ókuiina landið, ef dauðinn væri óumflýjanlegur. Hún liað um að fá að vera hjá honuni og Ijetta honum vansæluna, sem ef tii vill liiði lians. Hún vildi vera ljósgeislinn lians i myrkrinu, farvegur, sem kærleikur drottins strcymdi um að sál hans, rödd guðs, sem hvislaði í eyra hans, höndin, sem leiddi liann og styrkti. Hún liað fyrir ölluin, sem liáðir eru vansæld og veikleika, öllum sem færu villir vegar. Hún hað um að geta lijálpaði öllum, sem hún næði til. Og nú hvarflaði hugurinn til Ragnars aftur. — Ifvað gat hún gert, ef hann dæi og hún fengi ekki að fylgja hon- um yíir á ókunna landið? — Voru þá <ill sund lokuð? — Nei, sundin voru ekki lokúð. Hún gat fylgt lionum i anda, heðið fyrir honum, látið ást- ríkisliugsanir sinar umvefja hann, styrkja liaiin og varðveita. Og ef liún gæti svo hætt fyrir það, sem hann hafði ranglega gert við aðra, verið ])eim stoð og styrkur, sein halloka liöfðu farið fyrir ofríki hans og á- sælni. Og þá gæti hún um leið ljett af bonuin liefndarhug og óhænum þeirra, sem hæru þungan hug til lians. Sál Iiennar fyltist fögnuði við þessa liugsun. Og nú fanst lienni sem drottinn sjálfur ]>rýsti lienni að lijarta sínu. En við það hurfu allar áliyggjur og allar sorgir úr huga liennar. Þar var aðeins cftir eldlieit þrá, þráin til að bjálpa öllum, gefa alt, fórna öllu. Nú gat bún tekið hverju sem að liöndum har. Hún stóð upp og gekk inn í svefn- hei-bergið. Ragnar var vaknaður. Hann var með'fullu ráði. En nú var henni aug- ljóst, að umskiftin voru komin, um- skiftin, sem hún liafði óttast mest. En hún var við iillu búin. Nú var hún sterk. Hún settist við rúmið, tók hendur hans i sinar hendur og laut að hon- um. Augu þeirra mættust. Henni brá Jiegar hún sá óttann, sem lýsti sjcr i augum lians. — Mjer er nú orðið ljóst, hvert stefnir, mælti lianii, og röddin var þrungin af þjáningu. — Vertu rólegur, vinur minn, mælti hún. — Guð elskar öll börnin sín, líka þau, sem hafa vilst af rjettri leið. Jeg liefi heðið guð að lofa mjer að fylgja þjer yfir á ókunna landið. Og geti jeg ekki komið með þjer nú, ]>á fylgir ])ó hugur minn þjer. Bæn- ir minar allar, ást mín og þrár og allar hestu liugsanirnar skulu verða förunautar þinir. Þetta alt mun fylgja þjer og vera þjer til styrktar og að- sloðar. Jeg verð máske eftir um stuud, til þess að hæta fyrir það, sem bætt verður. Mjer er kunnugt um alt, og jeg mun gera það sem jeg gct. Ragnar brosti. Gleðisvipur færðist á andlitið, og óttinn hvarf úr augunum. En svo var eins og kvöldskuggar færðust yfir brárnar og liaustfölvi yfir ennið og vangana. Andvörpin liðu frá brjóslinu og dóu út. Jarðvistinni var lokið. Frúin stóð á ströndinni og horfði út á liaf eilifðarinnar. Bjarminn frá fórnareldinum í sál hcnnar lýsti leið öreigans, sem var að leggja frá strönd- um hins fallvalta lifs. Og nú ómaði i eyrum hennar röddin, sem liún lieyrði frammi i stofunni: — Vegur kærleikans er vegurinn til guðs, var sagt við eyra hennar. Hún einsetti sjer að stiga aldrei lit af þeim vegi. Kristján Sig. Kristjánsson.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.