Fálkinn


Fálkinn - 01.06.1929, Page 13

Fálkinn - 01.06.1929, Page 13
FÁLKINN 13 Málninga- vörur Veggfóður Landsins stærsta úrval. Mpranum Reykjavík. Framköllun. Kopiering. Stækkanir Carl Ólafsson. «- Tvíbura-vasahnífar, slípivjelar fyrir rakvjelablöð, hitamælar fyrir útungunarvjelar (Fahrenheit), LINDARPENNAR o. m. fl. Best og ódýrast í mi,La»p2 Sími 2222. <*“*“*"*"*■ ^ Hver, sem notar ^ ◄ CELOTEX ► ◄ 03 ► < ASFALTFILT £ ^ í hús sín, fær hlyjar og y ^ rakalausar íbúðir. ^ ^ Einkasalar: ^ J Verslunin Brynja, ► ■ Laugaveg 24, Reykjavík. y ^ Laugaveg neyKjaviu. | •▼▼▼▼▼ ▼ ▼▼▼▼▼! NOTUÐ fslensk frí- merki kaupi jeg aalíð hæsia veröi. Verðlisti sendur ókeypis, þeim er óska. Óska eftir duglegum umboðsmönnum til að annast innkaup; góð ómakslaun. GfSLI SIGURBJÖRNSSON, Ási — Reykjavik. Kvensokkar í miklu úrvali í Hanskabúðinni. Notið hjer teikniblýantinn' „ÓÐINN“? “1 súkkulaðið er að dómi allra vandlátra hús- mæðra langbest ev víðlesnasta blaðið. crai/iintl ev besta heimUisblaðið. Maðurinn minn - SKÁLDSAGA EFTIR FLORENCE KILPATRICK. ina fyrir næsta ársfjórðung, og hún er stíluð upp á þitt nafn“. Og eins og til þess að forð- úst að heyra nokkur mótmæli frá Virginíu, stóð gamla konan upp og brunaði út úr stof- nnni. ..Hvernig átti mjev að geta dottið þetta og nnnað eins í hug“, sagði Virginía. „Nú er nkkur nauðugur einn kostur að finna ráð, Sem dugir. Hún sat stundarkorn hugsandi °g hnyklaði brýrnar. „Þú verður að hverfa“, sagði hún loksins. >.Það er nú neyðarúrræði og líkist dálítið glæp, Virginía". ..Sleptu öllu gamni“, sagði hún, „mjer er fyllilega alvara“. ..Til er annað ráð“, tók Hemingway fram b ..sem sje að segja frænku blátt áfram allan sannleikann“. ..Sannleikann? Ertu genginn af vitinu? Hvernig ætti jeg að geta það? Hún myndi al- drei fyrirgefa mjer. Lofaðu mjer því að halda Ieiknum áfram þangað til ... ..Þangað til hann endar með skelfingu“, Sagði Hemingway hrosandi. „En auðvitað get- urðu reitt þig á mig, það veistu, Virginía“. ..Heyrðu þá til. Jeg hef fundið nýtt ráð. Hvernig væri, að við tryðum frænku fyrir Í>vh að við ætluðum að skilja ....?“ ..Hvað? .... Meinarðu að fá lagaskilnað?“ ..Nei, ekki lagaskilnað. Jeg get komið fraenku í skilning um, að við viljum ekki láta þetla komast í hámæli, heldur skiljum þegj- andi og hljóðalaust, eftir hesta samkomu- lagi »Jú, .... það gæti orðið lausn á málinu“, Sagði Hemingway hugsandi. „En geturðu ehki hugsað þjer hvernig þá er komið fyrir Pjei’ meðan frænka þín er á lifi: þá geturðu ekhi gifst, Virginía“. »Hefi jeg ekki sagt þjer, að jeg hefi and- stygð á ÖIlu hjónabandi?“ ..Það hefirðu ef til vill nú sem stendur, en jeg er það miklu eldri en þú, að þú mátt ekki þykkjast, þó jeg vari þig við“. Hann stóð við hlið hennar við skrifborðið og horfði á höfuðið, hvíta hálsinn og hreina vangasvip- inn. Honum gramdist er hann hugsaði til þess að þessi dýrðlega fegurð ætti fyrir höndum að visna, án þess að uppfylla hlutverk sitt. Hemingway var einn þeirra manna, sem gremst að hugsa til þess, að ung, fögur kona sje sköpuð fyrir annað en ást og heimilislíf. „Það er ösköp fallegt af þjer að hugsa um framtíð mína, en engu að síður sje jeg ekki neitt annað ráð en að framkvæma þessa fyr- irætlun .... Hún hikaði dálítið, og hann svaraði: „Við skulum heldur hætta öllum þessum vífillengjum og segja frænku þinni upp alla söguna. Jeg þoli ekki lengur þetta hlutverk mitt. Lofaðu mjer að þú skulir gera enda á þessu öllusaman“. „Hún opnaði varirnar til að svara. Og hefði hún fengið næði til þess — hvílíkar geðshræringar hefðu þau þá sloppið \ið í framtíðinni. En svarið kom aldrei, því Wyn- gate birtist snögglega á sviðinu. „Herra Parkinson“, tilkynnti hún og fór út aftur. Til allrar hamingju tók F'reddie ekkí eftir hinni auðsæju gremju Virginiu er hann kom. „En hvað jeg var heppinn að hitta þig heima, Virginia", sagði hann, og meinleysis- legu augun Ijómuðu af gleði. Þá kom hann auga á Hemingway. „Komdu sæll, Billy — og þú ert hjer líka?“ „Þe .... þekkist þið?“ spurði Virginia steinhissa. „Jeg held nú það. Öll borgin þekkir Billy“, sagði Freddie. „En hvað hefir þú fyrir stafni sem stendur. Ertu á flækingi á 5 lesta skemti- bátnum, sem þú varst svo hreykinn af?“ „Jeg er hættur skemtisiglingum, kall minn“. Og til þess að koina í veg fyrir fleiri spurningar frá Freddie, bætti hann við: „Jeg sje, að þú ert rósóttur, eins og fyrri daginn. Er þetta nú síðasta tískan?“ Freddie brosti ánægjulega er hann leitt á fagurlita vestið sitt og hinn skrautlega fatnað. „Viltu ekki reykja?" spurði Virginia þeg- ar hann hafði afþakkað te; — þú finnur wiskí og sódavaln i litlu stofunni, ef þú vilt bera þig eftir því. Freddie hristi höfuðið með sorgarsvip. „Jeg er alveg hættur við áfengi .... þ. e. a. s. milli klukkan 5 og 7 ..... á morgnana ....?“ spurði Virginia. Freddie hló. Honum þótti vænst um Virginiu þegar hún var meinyrtust. Honum fanst hún vera eins og demantur: hörð, hrein og köld, en jafnframt Ijómandi og fágæt „Jeg koin bara til þess að fá að vita hvað þú hugsar um Ascot. Gamla kassa greyið er í fínu lagi sem stendur. Þetta átti við 30 hestafla Daimlerbifreið Freddies". „Þakka þjer kærlega fyrir, Freddie, jeg held ekki að frænku minni mundi líka það“, sagði Virginia ákveðin. „Og meðan hún er hjer nærlendis fer jeg eftir hennar vilja í einu og öllu“. „Jeg skal taka að mjer að snúa henni“. „Það held jeg ekki, að þú getir, svo þjer er víst best að spara þjer ómakið“, tók Hem- ingway fram í. Honum var ekki um það gefið hversu kunningjalega Freddie talaði við Virginíu. „Jæja, nú verð jeg að fara“„ hjelt hann á- fram og leit á úrið sitt. „Vertu sæl Virginia og heilsaðu Jane frænku“. „Hvar hefir þú kynnst Bill ?“ spurði Fred- die, jafnskjótt sem Hemingway var farinn. „Þú hefir aldrei minst á við mig, að þú þektir hann“. „Nú er frænka að koma aftur. Vertu nú vænn, Freddie, og fai’ðu strax, því jeg vil sið- ur, að þú hittir hana. Jeg skal seinna segja þjer, hversvegna. En farðu nú“. „Nei, heyrðu nú til — hvað er eiginlega á seiði?“ tók Freddie til máls. En þá opnuðust dyrnar og Jane frænka stóð á þröskuldinum, og varð steinliissa á skelfingarsvipnum á andliti Virginiu. „Jeg vona, að jeg ónáði ykkur ekki“, sagði hún hvast, og augnaráð hennar rannsakaði hinn Ijómandi „ytra mann“ Freddies, og í liuga sínum skipaði hún honum í flokk spjátrunganna. Freddie gekk til hennar kát- ur í bragði og hafði auðsjáanlega enga hug- mynd um annað en hann væri hjartanlega velkominn. „En hvað það gleður mig að kynnast yð- ur, frú Crundel. Jeg er mjer þess ósjálfrátt meðvitandi, að við eigum eftir að kynnast nánar“. „Einmitt það?“ sagði hún reigingslega, „hvenær byrjaði sú tilfinning hjá yður, ef jeg má spyrja?“ „Ja, .... jú .... þjer eruð .... altso .... frænlta Virginiu .... og svo .... frainveg- is „Hvað kemur það málinu við, þó jeg sje

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.