Fálkinn - 24.08.1929, Qupperneq 9
F A L K I N N
9
ir Iiitomi og tók þátt í siðustu
Oli/mpíiileikum hefir sett met í
220 uarda hlaupi á 24,7 sck.
Myndin sýnir eitt af nýjustu herskipum Brela hlcypa skoti af öllum fallbyssum sínum á annað
borð samtímis. Er slcip þetta fullkomnasta beitiskip Breta og hefir þrjá fallbyssuturna með þrcm-
ur byssum á hverjum turni. Eru svo margar byssur liafðar á hverjum turni til þess að draga úr
þyngd skipsins, sem samkv. ákvæðum Washingtonsamþyktarinnar má ekki fara yfir ákv. hámark.
Bifreiðarnar eru sífelt að ryðja sjer til rúms og bjóða ný og ný
þægindi til þess að geta kcpt við járnbrautirnar á löngum vega-
lengdum. Myndin lijer að ofan sýnir nýjusiu gerð af almenn-
ingsbílum í Kaliforníu. Eru þær með tveimur hæðum, svo að far-
þégar geta setið bæði uppi og niðri. t bifreiðum þessum eru
einnig svefnklefar.
/ síðasta mánuði vorn liðin tuttugu ár síðan Bleriot tókst að
fljúga yfir Ermarsund, fyrstum manna. Og svo miklar hafa fram-
farirnar í flugi orðið, síðan, að nú þykir mönnum minna til koma
þótt flogið sje yfir þvert Atlantshaf en til flugs Bleriots á sinum
tíma. Myndin sýnir flugvjel Blcriots hcngda upp á lxúsvegg hjá
einu stórblaðinu i París.
Lloyd lávarður, stjórnarerind-
reki Breta i Egyptalandi hefir
nýlega sagt af sjer embætti út-
af misklið við enslcu stjórnina.
Hefir heyrst að hún ætli að
sleppa tilkalli til þeirra forrjctt-
inda, sem Bretar hafa haft í
Egyptalandi, svo að landið verði
algjörlega fullvalda. En Lloyd
hafði þótt nóg um undanhald
fýrverandi stjórnar i Egypta-
landsmálum og sagði af sjer er
hann hcyrði um hinar nýju fyr-
irætlanir. Telur hann Bretlandi
stafa hætta af þeim. Sagt cr að
eftirmaður Lloyds verði Sir
Sydney Wedd, sem nýlega var
aðlaður af vcrkmannastjórninni
undir nafninu Lord Passfield.
Er myndin af honum, tekin eft-
ir blaðinu „The Graphic“.
Þjóðverjar hafa nýlega smíðað
örlitið loftskip og tiltölulega ó-
dýrt. Vinna þeir ótrauðlega að
loftskipasmíð, þrátt fyrir það,
að flestar þjóðir eru að missa
trúna á slik farartæki.