Fálkinn


Fálkinn - 05.10.1929, Page 4

Fálkinn - 05.10.1929, Page 4
4 F A L K I N N Xl/tisku verslunarhús i Hamborg. T H E R M A »Therma« Fabrik fur electrische Heizung A/G., Schwanden, er ein af þeim raftækjaverksmiðjum sem þekt er um alla Evrópu, og viðurkend fyrir að skara fram úr hvað vöru- vöndun snertir. — Hin stærstu iðnaðarlönd í álfunni, svo sem t. d. Þýskaland, kaupa rafmagnstæki af Therma. Allir þeir sem ætla að kaupa eitthvað sjerlega vandað, spyrja um „Therma“. Snúið yður til: 3ÚLÍUS BJÖRNSSON, raftækjaverslun, eða ELECTRO CO„ Austurstræti 12, Reykjavfk. Akureyri. þessi hús, sem ennþá eru að vísu aðeins i ímynduninni, eru holspeglar, sem gleypa í sifí sól- argeislana og breyta þeim i hita og orku. Óneitanlega er þetta stórskorin mynd af uppgangi mannvirkjafræði framtíðarinnar. En þó að sje takandi fyrir fátt með öllu, verður manni þó að setja spurningarmerki við það að breytingin verði svo stórkost- leg á 50 árum. Samt sem áður eru altaf að koma fram nýjar og fullkomn- ari húsateikningar en áður hafa átt sjer stað, sem ekki eru að- eins miðaðar við hið hagkvæma heldur líka listina. Hjer á myndunum látum við fylgja nokkur sýnishorn að því hvert húsameistararnir stefna i þessu tilliti. Ameríka hefir auðvitað for- ustuna á þessu sviði, en að það getur líka verið listrænn stíll yfir nýju húsunum, sannar veit- ingahúsið með hinum 2500 her- bergjum, sem innan skamins verður fullgert í New Yorlc. — Þessari tígulegu, strýtumynduðu byggingu, sem er 36 hæðir, verð- ur ekki neitað um fegurð. Það verður stærsta hótel í heimi og kemur til með að kosta 75 miljónir króna. Eitt af nýjustu húsunum í Hamborg er hið risavaxna versl- unarhús, sem er aðsetur Chile verslunarfjelagsins; það vekur almenn aðdáun. í Hollandi hefir húsbygginga- verkfræðin leitast við að láta fegurðaráhrifanna gæta í bygg- ingalistinni þó ekki sje nema um venjulegt bakarí að ræða. Og það hefir hepnast. Eins og myndin sýnir er reykháfurinn feldur þægilega inn i heildina, Veruleiki: Hótel i Ameríku með 2500 herbergjum. sem annars er venjulega til ó- prýði. Frönsku húsabygginga- meistararnir ganga að sínu verki með mildum dugnaði. Um það ber vott íbúðarhús eitt, sem hef- ir verið nýlega bygt og við sýn- um mynd af. Það er stórt, en þægilegt um leið, og þar er nóg Ijós og loft. Ennþá hefir hug- mynd sú ekki verið framkvæmd að byggja hús í kross, sein rúm- ar 700 íbúðir. Hugmynd sú er frönsk að uppruna. Hvort teikn- ingin er falleg eða ekki skulum við láta lesaranum eftir að dæma um. VerUsmiðjubggging i Ililversum í Hollamli. Rcykháfurinn cr fcldur inn i heildina svo aS bygginqin verði sem stílfegurst. Amerikönsk hjón hafa búið sjer til hinn einkcnnilegnsta hil, scm til mun vera i heiminum. Bifreiðin er gerð úr trjástofni, 800 ára gömlum og er 10 fet að Jivermáli. Kassan, sem rúmar marga menn í tveiin herhergium og cldliúsi, hafa hjónin sett á hjói, kom- ið vjel fyrir undir kassanum — og aka nú um landið i pessu einkenni- lega farartæki. Scotland Yard, liin heimsfræga leynilögreglustofa Breta, sem hefir í sinni þjónustu bestu leynilögreglu- menn heimsins, tilkynnis opinberlega, að ekkert morð hafi verið framið í Bretlandi á árinu 1928, sem iögregl- an hafi ekki upplýst til hlýtar og inorðinginn liafi ætíð verið tekinn. Þetta er sagt að sje einsdæmi. Gömlu dansarnir, vals og polka eru sem óðast að ryðja sjer til rúms aftur alsstaðar i heiminum. Dans- kennarar i París halda því fram, að að tveim árum liðnum sjáist ekki jazz dansaður í nokkrum danssal i Norð- urálfu. Við rjettarliald i þjófnaðarmáli i Berlín var dómarinn að yfirheyra unga stúlku. Henni þótti meðferðin ekki sem hest og varð svo vond að hún, áður en nokkur gat komið fyrir það, reif af sjer öll fötin og kastaði i haus- inn á dómaranum. Það þurfti fjóra lögregluþjóna, þá allra sterkustu, til þess að koma lienni í fötin aftur. Ungfrú Betty Amann i Berlín er orðin fræg um alt Þýskaland. Ósköp lítill iokkur af hári liennar var nfl. metinn af dómaranum 1800 króua virði. En það var sem lijer segir: Ungfrú Amann var lijá tannlækni, sem dró úr henni og svæfði hana áður. Tannlæknirinn varð alveg bálskotinn í henni og gat ekki stilt sig um að klippa lokkinn úr hári liennar. Þegar hún vaknaði eftir svæfinguna sá hún undireins að liann hafði skorið lokk úr hári hennar. Hún fór í rnál við tannlæknirinn og hann varð að borga hcnni 2000 mörk í skaðabætur fyrir lokkinn. Edgar Wallace segist nú ekki muni rita fleiri Ieynilögregluhækur „Mjer dettur ekkert meira i liug“, segir hann i viðtali við blaðamann nýlega. COOPERS baölyfin eru best og handhægust til sauðfjárbaðana. Fást í heildkaupum hjá Garðari Gíslasyni, Reykjavík. I Ameríku liefir nýlega verið borað 10,000 fet í jörðu eftir olíu. En svo djúpt hefir enginn borað áður. Borgarstjórinn í Frankenau í Þýska- landi er maður lilaðinn störfum. Auk þess að vera borgarstjóri er hann gjaldkeri fríkirkjunnar á staðnum, póstmcistari, tannlæknir, rakari. gest- gjafi og eftirlitsmaður sláturhússins. Hæðsti karlmaður í Danmörku heit- ir Erik Bövig og er 2 metrar og H centimetra hár. Hann auglýsir eftir stöðu sem dyravörður við bió eða einhverja verslun. „Hvar sem jeg fer vek jeg eftirtekt, svo það hlýtur að vera gott fyrir einhverja verslun að liafa mig i sinni þjónustu", skrifar liann. Um daginn pantaði stúlka 1 París sjcr bifreið og skipaði bifreiðastjór- anum að aka með sig til Longwy, en sá staður liggur í 347 kilómetra fjar- lægð frá Paris. Eftir 4—5 stunda akst- ur komu þau loks á ákvörðunarstað- inn og bifreiðastjórinn lauk upp hurð- inni. Stúlkan, sem aðeins er 18 ára, kom brosandi út og sagðist ekki eiga einn eyri til að borga aksturinn með. Hún var siðan dæmd í 5 daga fangelsi fyrir vikið. Einn af þýsku flugmönnunum, sein hingað kom í sumar fljúgandi með von Gronau flugskólastjóra hefir ný- lega verið ráðinn til þess að stjórna flugferð, sem heitið er til Miðafriku á næstunni. Eru það enskir og holl- enskir auðkýfingar, sem gera út þenn- an leiðangur og er erindið að veiða fíla og Ijón. Flugvjelin er Fokkervjel með þremur lireyflum og á að geta flogið mjög liátt, enda er búist við að fara þurfi yfir ýmsa liæstu fjall- garðana í Afriku. í Staten Island í Bandaríkjuuum hefir bæjarstjórnin ákveðið að byggja stóran skemtigarð er beri nafn Ro- alds Amundsen. Norðmenn þar i ná- grcnninu hafa efnt til samskota til þess að kaupa likneski af Amundsen til þess að setja upp i garðinum.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.