Fálkinn - 05.10.1929, Blaðsíða 5
F Á L K I N N
5
Vetrarkjóllinn „Steina“
K J Ó L L I N N
sem þjer veröið ánægÖastar meÖ fæst í
,,N I N O N“
Þenna vetrarlijól, sem sýndur er á myndinni, hefir
„NINON" látiö búa til sjerstaklega handa yÖur. Kjóll-
inn er hlýr, þægilegur og sterkur, búinn til úr nýtísku
ensku Tweed. Hann fæst í Ijósum og dökkbrúnum lit,
ennfremur grábláum, og annað-
hvort einlitur eöa snláköflóttur.
1sSST Verð aðeins 33 krónur.
Sent gegn póstkröfu aö viðbættu burðargjaldi,
en buröargjaldsfrítt ef borgun fylgir pöntun.
MuniÖ að senda mál af herðutn og yfir brjóstiö
með pöntuninni.
Sendiö pönlun sem fyrst til
,,N I NON“
Austurstræti 12..— Reykjavík.
©V ---
Sunnudagshugleiðing.
H v a r c r u þ e i r n i u ?
Eftir síra Pál Sigurðssou.
Lúk. 17, 11—19.
Tíu líkþráir verða fyrir þeim
áhrifum frá Jesú frá Nazaret,
að þeir verða allir hreinir. Einn
þeirra verður svo gagntekinn af
mætti hans og elsku, að hann
fleygir sjer að fótum hans í til-
beiðslu og þakkargjörð, fullviss
þess að hjer er hann með ein-
hverjum hætti staddur í návist
Guðs. Þetta ógleymanlega augna-
blik veldur straumhvörfum í
Iífi hans. Upp frá þeirri stundu
er stefnan sett á hinn hátignar-
háa himinn Guðs, i fótspor
Meistarans.
En hvar eru þeir níu? Þeir
eiga líka Drottinn að, verða
fyiir sömu reynslu, og eru alt
eins umvafðir ástarörmum Guðs.
Hví fara þeir leiðar sinnar? Hví
ihuga þeir ekki það sem skeð
liefur? Hví ganga þeir ckki i
þjónustu Krists? Hvar eru þeir?
Þetta fyrirbrigði vekur undr-
un Meistarans. Það er og ástæða
til að samskonar fyrirbrigði veki
einnig undrun þeirra, sem Kristi
vilja þjóna. -—
Naumast verður því mótmælt
með rökum, að fjöldi kristinna
manna lætur sjer fátt um hin
mikilvægu verðmæti trúarbragð-
anna finnast. Gera má ráð fyrir
að það þjóðbrot sje miklu minna
en 1/10, sein lætur sjer trúar-
brögð nokkru verulegu máli
skifta. Ekki fara menn þó var-
hluta verðmæta þeirra, sem trú-
arbrögðin skapa. Því enginn,
sem fæddur er og uppalin í
liristnu landi, getur h.já því
komist að njóta góðs af hreins-
andi, læknandi og lífgefandi
geislum Krists.
En augu manna eru haldin,
og hugur þeirra bundinn því
stundlega og jarðneska. Lífið er
orðið svo margbrotið, hraðinn
svo mikill, lífsbaráttan svo hörð,
og ytri siðmenning svo glæsileg,
að ýmist fá menn ofbirtu i aug-
un, eða þá þeir fá ekki notið
næðis til að átta sig. Þessvegna
er fálæti fjöldans svo mikið, er
um verðmæti trúarbragðanna er
að ræða.
Þetta fálæti er íhugunarvert,
einkum fyrir þá sök, að vanda-
raál vorra tíma verða engan veg-
inn leyst án íhlutunar Jesú
Krists. Það er því knýjandi
nauðsyn að kristið fólk geri sjer
far um að komast undir hans
áhrifavald.
Áhrifavald Jesú Krist liefur
gert vart við sig með dásainleg-
um hætti i heimi hjer, alt frá
því að tíu líkþráir urðu hreinir
og alt til þessa dags. Fyrir því
valdi stenst ekkert, þar sem það
nær að gagntaka menn hindr-
unarlaust. Hugsunarháttur og
líferni tekur stakkaskiftum;
s jóndeildarhringurinn víkkar;
friður og ró færist yfir; og Kristi
vilja þeir þjóna og fórna öllu.
Þessi dásamlega lífsreynsla er
skilyrðum bundin. Annarsvegar
innileg tilfinning fyrir vöntun,
eymd og synd; liinsvegar lieit
J>rá, hjartans bæn til Guðs um
hjálp. En jafnframt verður hug-
urinn að vera lokaður fyrir
truflandi áhrifum, en alopinn
í'yrir mikilvægi Jieirra andlegu
verðmæta, sem æðri eru öllum
skilningi.
Þcssi skilyrði lögðu líkþráu
mennirnir til. En einuin þeirra
tekst svo að útiloka bin trufl-
andi áhrif, að hann verður gagn-
tekinn, fellur að fótum Krists,
og þjónar honum upp frá þeirri
stundu.
Hjer er lærdómsrík lexía.
Ileiminum er á engu önnur eins
þörf og þvi, að þeim fjölgi, sem
ÍTamganga í anda, mætti og
elsku Krists. Það er beðið eftir
opinberum Guðs barna. En hvar
eru þeir níu? Lesarinn ihugi það.
SKOTIÐ Á GLUGGANN
Yfirvöldin í Ameríku eru uni jiess-
ar mundir á kafi í rannsókn dular-
fulls glœpátoáls og er aðalpersóna
liess prófessor einn í lífeðlisfræði við
liáskólann í Columbus, Ohio. Er pró-
fessorinn sakaður um að hafa skotið
24 ára gamla stúlku, stúdent, sem hjet
Theora IIix. Atti hún ekki foreldra á
lífi, en var kaupmannsdóttir og hafði
hlýtt á fyrirlestra lijá prófessornum
í tvö ár. Hann varð ástfanginn af
henni og liún tók ástum hans.
Kyrir nokkru fanst stúlkan dauð í
sumarkofa, sein ein af vinstúlkum
hennar átti. Hafði skammbyssukúla
hitt liana i hjartastað. Þjónn einn,
sem vanur var að koma vikulega í
kofann til Jiess að taka þar til, fann
líkið. Tók hann eftir, að ein stofan
i kofanum var lokuð að innanverðu.
Lykillinn stóð í skránni. Hann braut
]iá rúðu og komst þannig inn i her-
bergið og fann stúlkuna dauða. Lög-
reglan var kvödd á staðinn undir eins,
og við rannsókn' kom í ljós, að morð-
ið hafði verið framið fyrir nokkrum
klukkustundum. Fyrst hjelt lögreglaii
að stúlkan liefði framið sjálfsmorð,
þvi liurðin var aflæst að innan. En
skammbyssan fanst hvergi. Og við
nánari rannsókn kom i ljós, að gat
cftir hyssukúlu var á cinni rúðunni.
Ilefir þvi morðinginn skotið á stúlk-
una gegnum gluggann.
Grunurinn fjell á prófessor Snook.
Ilann er ágæt skytta, og það lilaut
moröinginn líka að hafa verið. Hafði
hann tekið þátt i skotmótum og var
m. a. í skotmannaflokki Bandaríkja-
manna á Olympíuleikunum i Ant-
verpen árið 1920. Vjtni háru, að pró-
fessorinn hefði verið mjög afbrýðis-
samur og hefði grunað stúlkuna um,
að vera í þinguin við stúdent einn og
hefðu þau stefnumót í kofanum. Ilef-
ir prófessorinn því verið tekinn fast-
ur, en neitar liarðlega að vera noltk-
uð við morðið riðinn.
Gullbrúðkaup útlu 23. ágúst
hjónin Ormur Suerrisson og Guð-
rún Ólafsdóttir Kaldrananesi, for-
cldrar Ormsbræ&ra hjcr i bæn-
nm og þeirra sgstkina. liirtist
hjer mgnd af þeim hjónum á-
samt gjöfum tveimur, er börn
þeirra færðu þeim við það tæki-
færi, og hefir Rikarður skorið
gripina. Er annar prjónastokkur,
sem húsfregjan fekk, skregttur
blómum og upphlegptum mgnd-
um af prjónakonu og konu við
lestur, en ofan á hölfunnm til
bcggja enda bandhngklar. Ofan
(i stokknum er skorin mgnd af
bæjarburst. Hinn gripurinn er
tóbakshglki með þrem hólfum;
cru einskonar askar til endanna,
samfastir með hólfi á milli.
Handföngin eru hestahöfuð en
meisar ofan á lokunum. Fjörir
karlar eru skornir á liliðar ask-
anna, cru það lands- og sjávar-
bændur að verki, en milli ask-
anna er bæjarþiljaröð af mjlegri
gerð. Munirnir ern skornir úr
rauðaviði, reknum á Meðallands-
fjörur.