Fálkinn - 26.07.1930, Síða 4
4
F A L K I N N
Frú Guðbjörfi- Þorleifsdóttir í Múlak.
Á morgim er Guðbjörg í Múla-
koti sextug. Er hún fyrir löngu
orðin þjóðkunn kona fyrir
trjágarðinn sinn fagra. Get-
ur hún nú með gleði hugsað til
þess dags, er hún reiddi fyrstu
reynioiðarplönturnar í vasa sín-
um yfir Markarfljót úr Naul-
luisagili, og gróðursetti fyrir
framan bæinn sinn í örlitlum
garði. Nú situr hún og gestir
hennar í laufskála, þar sem
risavaxin trje fljetta saman
krónur sinar. En inni á milli
trjánna angar og glitrar alt af
blómskrúði. — Það er eftir-
minnilegt að sjá Guðbjörgu í
Múlakoti gróðursetja trje eða
blóm. Svo varlega og ástúðlega
fara aðeins góðar mæður með
nýfædd börn. Og þegar hún hef-
ir gengið frá blómavöggunum
svo vel sem henni líkar, signir
hún börnin sín hljóðlega. —
Við óskum henni af hjarta iil
hamingju og sendum margar
hlýjar kveð jurheim að Múlakoti.
G. E.
Til Guðbjargar í Múlakoti.
ntómr/óða sál, þig blómi jarðar gleðji.
Ei bál nje hret að Eden þinni steðji.
hverá frá hlíðum helgur leiði kraftur,
— hún komi' ei aftur.
fírói á söndum akrar, einsogforðum,
ægilegt fljót í gömlnm hvili skorðum.
í Múlakoli blóm og lundur lifi,
lof iim þig skrifi.
Hulda.
Eins og kunnugt er var Alþingi
frestað í vetur þar til á Alþing-
ishátiðinni á Þingvelli dagana
26.-28. júní. Kom Alþingi þar
saman hátíðardagana og voru
þar samþyktir aerðardómssamn-
ingar milli Islands og allra
Norðurlandaríkjanna, þess efn-
is, að öll deilumál, sem upp
kynni að koma milli þeirra
annars vegar og Islands hins
vegar skyldi jöfnuð á friðsam-
legan hátt. — Síðan Alþingi var
lagt niður á Þingvelli árið 1798
hefir aldrei verið liáður þar
eiginlegur þingfundur þangað
til nú í ár. — Myndin hjer að
ofan er tekin um leið og verið
var að samþykkja gerðardóms-
samningana við Norðurlönd.
Til hægri á myndinni sjest for-
seti Sameinaðs þings, Ásgeir
Ásgeirsson alþingismaður en til
vinstri sitja umboðsmenn hinna
erlendu ríkja, sem undirskrif-
uðu samningana. Sjerstök mynd
af þeim birtist hjer fyrir neðan.
Hjer birtist mynd af þeim, sem undirskrifuðu gerðardómssamn-
ingana milli íslands og annara Norðurlandaríkja um Alþingishá-
tíðina. Mennirnir eru þessir (talið frá vinstri til hægri): Th.
Stauning, forsætisráðherra Dana, V. Hakkila, fyrv. ráðherra í
Finnlandi, borgarstjóri, Tryggvi Þórhallsson, forsætisráðherra,
Rysst-Andersen, hermálaráðherra Noregs og 0. Ewerlöf, sendi-
herra Svía í Kaupmannahöfn.
Iljer birtist mynd af þeim Hit-
ardalssystrum, er grein var um
i síðasta tbl. „Fálkans", frú
Hólmfríði Þorsteinsdóttur (til
vinstri) og Filippíu Þorsteins-
dóttur hjúkrunarkonu (til
hægri).
í 10. tbl. Fálkans þ. á. birtist grein eftir Sigurð Jónsson, skólastjóra,
þar sem hann segir frá merkilegum íslenskum þríburum og lofar
að útvega blaðinu mynd af þeim seinna. Mynd þessi er nú komin
og fylgir hún hjer með. Svo merkilega vill til, að systurnar eiga
ekki allar sama fæðingardag og meira að segja ekki sama fæð-
ingarár. Hin elsta þeirra, Jóhanna, er fædd 31. des. 1918 en hinar
tvær, Jónína Sigríður og Guðbjörg Kristjana, eru fæddar 1. jan.
1919. Foreldrar þeirra heita Guðmundur Magnússon Waage og
Sigurlaug Jóhannesdóttir og eiga nú heima í Reykjavík