Fálkinn - 17.01.1931, Qupperneq 2
2
F A L K I N N
GAMLA BIO
Þegar vorar.
Gamanleikur i 11 þáttum. Fyrsta
talmynd á norðurlandamálunum.
Tekin af Paramount-París eftir
leikriti Yves Mirande.
ASalleikendur allir sænskir:
Margita Alfvén, Uno Henning,
Karin Svanström og Sven
Gustafsson (sem er bróðir Gretu
Garbo).
Viking Ringheim og Else Marie
Hansen, sem eru danskir.
Samtalið ákaflega skýrt og má
skilja hvert orð.
S
PROTOS RYKSUIillR
PROTOS-ryksugur eru
búnar til hjá Siemens-
Schuckert, stærstu raf-
tækjasmiðju Norðurálf-
unnar. —
— Meira sogmagn en
nokkur önnur, sem seld er
svipuðu verði.
— Fæst hjá raftækjasöl-
um. Reynd heima hjá
kaupanda.
Kr. 195.00
Snjóhlííar
og skóhlífar
eru nauðsynlegar í rigningu og
snjó. Fjölbreyttast úrval hjá
okkur.
Lárus G. Lúðvígsson, skóverslun.
m
NÝJA BÍO
Spánskar ástir.
Blóðug ástarsaga frá Mexico, tek-
in af Fox-fjelaginu undir stjórn
A. Santell.
Aðalhlutverk:
Warner Baxter,
Antonio Moreno,
Mary Duncan og
Mona Maris.
Afar spennandi mynd.
Sýnd bráðlega.
Góð föi.
■
■
■
■
■
■ Karlmanna, blá cheviot föt tvi-
i
■
■ hnept vesti og víðar buxur.
S
; Mislit föt, smekklegir litir. Ung-
: lingaföt, Drengjaföt. Vetrarfrakk-
■
j ar. Regn- og rykfrakar. Manchett-
■
■
■
■ skyrtur hv. og misl. Bindi, Flibb-
■ ar. Nærfatnaður. Sokkar. Náttföt.
E
■
j Mesta úrval — Besta verð í
■
■
5
Soffíubúð
í
S. Jóhannesdóttir.
5 Austurstræti 14. Reykjavík.
Talmyndir.
SPÁNSKAR ÁSTIR.
Mynd með þessu nafni, sem sýnd
verður á næstunni i Nýja Bió ger-
ist í Mexíco. Þar er flokkur manna
að leggja járnbraut og eru komnir
að fljótinu Rio Grande, sem liggur
á landamærum Mexico og Bandarikj-
anna. Forstjóri verksins
heitir Pablo (leikinn af
Warner Baxter); er hann
Bandaríkjamaður í aðra
ætt, en mexikanskur i
hina. Hann hefir jafnan
mikið fje undir höndum
og freistar það Mexikanans
Lobo, sem gerir árás á
verkamennina með illþýði
sínu. Ræningjunum veitir
betur, svo að Pablo ákveð-
ur að flýja með pening-
ana. Hann kemst nauðu-
lega undan og kemst mjög
særður og meðvitundarlit-
ill á heimili afa síns, sem
hefir afneitað móður hans.
vegna þess að hún giftist
öðrum en honum likaði.
Hann er gamall, spánskur
aðalsmaður og fyrirleit
Amerikumann, sem dóttir
hans giftist. Ilatar þvi
Pablo afa sinn.
Gamli maðurinn hefir
gert Juan frænda sinn að
einkaerfingja sínum. En
hann er ómenni og ferst
iila við Manuelitu, unga stúlku í hús-
inu. Hann er að draga sig eftir
Charlottu, spanskri blómarós.
Manuelita finnur Pablo í öngviti
skamt frá bænum og gamli maður-
inn þekkir hann á ættarsvipnum.
Honum er hjúkrað þar og það verð-
ur úr að hann dvelur þar áfram
fyrir bænarstað afa sins. En Juan
er ekki um þetta og þegar færi gefst
reynir hann að drepa hann. En það
fer þannig að Pablo særir Juan. Nú
spinst blóðug ástarsaga á milli þess-
ara fjögra, sem éndar þannig að þau
Juan og Charlotta deyja bæði, en
Pablo og Manuelita ná sainan.
Það er mikill svipur yfir þessari
mynd og aðalhlutverkin prýðilega
leikin.
ÞEGAR VORAR.
Hingað er komin fyrsta talmynd-
in, sem nokkuð kveður að, af þeim
sem teknar hafa verið á Norður-
landamálum eingöngu. Er það mynd-
in „Þegar vorar“, sem sýnd verður
bráðlega á Gamla Bíó, en tekin af
Parísardéild Paramounts undir
stjórn Edwin Adolphson. Er þetta
gamanleikur um ungan lögfræðing,
sem á erfitt uppdráttar. Hann finn-
ur skjal eitt, sem er ávísun á fólg-
inn fjársjóð i höll í Frakklandi og
reynir að gera sjer mat úr þessu.
Ræðst hann sem bifreiðarstjóri i
höllina, en þar búa tvö gömul greifa-
systkin og ung dóttir greifans. Leit-
in að fjársjóðnum mistekst — en
lögfræðingurinn fær ungu stúlkuna
í staðinn og það er ekki lakara.
Myndin er leikin af sænskum og
dönskum leikurum eingöngu. Lög-
fræðinginn leikur Uno Henning en
Margita Alfvén ungu stúlkuna. Gömlu
systkinin eru leikin af Karin Swan-
ström óg Niels Wahlbom, cn Sven
Gustafsson, bróðir Gretu Garbo, leik-
ur unga landeyðu.
Mynd þessi hefir fengið ágæta
dóma í Norðurlandablöðunum og
þykir hafa tekist ágætlega bæði hvað
leik snertir og eins að því leyti hvað
hún er skýr. Talið skilst mjög vel
hvert orð heyrist. Einkum má nefna
ágætan leik Karin Svanström og
Uno Henning. Má gera ráð fyrir
mikilli aðsókn að þessari mynd, þeg-
ar hún kemur fram.
Best að auglýsa í Fálkanum