Fálkinn - 17.10.1931, Síða 9
F A L K I N N
9
Krókódílafósiri einn í Ameríku hjell mjlega hátíð í lilefni af
þuí að tveir krókódílarnir hans vorn orðnir 100 ára. Á mynd-
inni sjesl veisluborðið, alsett krásum handa krókódilunum.
Óvenjuleg sundsamkepni var nijlega háð í Long Beach í Flo-
rida. Keppendurnir höfðu allir logandi kerti í munninum, og
fjekk hver sá verðlaun, sem kom með kertið logandi að marki.
Myndin sijnir gamla enska hestvagna-ökumenn, sem nýlega
fóru í skemtiferð — i bíl — lil þess að skoða umferðina og
bera hana saman við það, sem var í þeirra ungdæmi.
Zigaunarar hafa m. a. atvinnu af því að lesa í lófa auðtrúa fólks
og græða margar kerlingar svo vel á þessu, að þær geta alið önn
fgrir stórri fjölskyldu. Á myndinni sjest kerling, sem er að kenna
ungri stúlku listina.
í Chicago hafa menn komið upp stofnun, sem hirðir öll börn,
sem lenda i óskilum í borginni. Tapi móðir barni sínu þá veit
hún lwert á að snúa sjer, þvi að í önnur hús er ekki að venda.
Börnin eru geymd þarna í búrum og þeim er sjeð fyrir viður-
væri ef þau bíða lengi.
Strútsf jaðrirnar sem þóttu ómissandi kvennprýði fyr á árum en
gengu svo úr tísku, eru nú komnar til virðinga aftur. Hjer á
myndinni sjest auglýsing frá einum fjaðrasalanum í París:
strútar sem draga vagna um göturnar.