Fálkinn - 07.11.1931, Síða 1
ENSKAR VEIÐILENDUR.
Englendingar eru manna mestir veiðimenn. Þeir fara suðnr í Afríku til þess að leggja fíla og Ijón að velli og þeir konui lil
lslands til þess að veiða lax. Og heima fgrir eiga ríkisbubbarnir, hinir landríku lávarðar stór skógaflæmi, sem þeir nota aðal-
lega sem veiðilönd. í stað þess að rækta þetta land og gera það arðberandi almenningi til gagns, er það notað, sem griða-
staður ýmsra veiðidýra, til þess að landeigendurnir geti haft skemtun af að drepa þar dýr nokkra daga af árinu. Eins og
eðlilegt er hefir hafist öflug hreyfing í þá átt, að þessi veiðilönd verði tekin og þeim skift í smábýli. -— Hjer á myndinni sjást
enskir veiðimenn á leið heim til sín, ríðandi með hunda sína. Á bak við er fje á beit