Fálkinn - 05.12.1931, Side 1
IV.
Reykjavík, laugardaginn 5. des. 1931
49
SÁTTABOÐ ÓVINANNA.
Þegar heimsstyrjöldin stúö sem hæsl ixir hatrið svo mikið milli andstœðinganna, að eigi rntrð annað sjeð, en heitstrehgingar
væri gerðar nm, að sættast aldrei framar. „tíott strafe England" tíað refsi Englandi var setning, sem sást máluð stóru
letri á .þýska vigskála, og í Frakklandi og Englandi mun hafa mátt sjá líkar kveðjur í garð Þjóðverja. Heiftin logaði í brjóstum
allra, heift og hefndargirni í garð þeir'ra, sem hárust á hanaspjótum við vinina og ættingjana. En tíminn er furðu fljötur að
græða sárin. Enginn skyldi hafa trúað því, að rúmum tug ára eftir að heimsstyrjöldinni lauk mundu friðarboð ganga milli ó-
vinanna. — Myudin hjer að ofan sýnir áþreifanlega, að hefndarhugur styrjaldarinnar er gleymdur. Hún er tekin af afhjúpun
likneskis yfir fallna hermenn í Rheims, en við þái borg voru háð ein eftirminnilegustu hermdarverkin í styrjöldinni. Við at-
höfmna voru sem sje staddir, auk Frakka, fulltrúar Englands og fíandaríkjanna en jafnframt útsendir fulltrúar Þýsrkalands óg
Austurríkis og lögðu þeir krans á fótstall líkneskisins.