Fálkinn


Fálkinn - 05.12.1931, Blaðsíða 14

Fálkinn - 05.12.1931, Blaðsíða 14
14 F Á L K I N N Sokkarnir yðar þvegnir úr Lux þola betur og eru ávalt sem nýjir. SOKKARNIR eru viðkvœmar flíkur, af öllum tisku klæðnaði þurfa þeir því besta meðferð. Sje varúðar gætt i þvotti, eykur það endingu þeirra. Lux notkun iieldur þeim sterkum og sem nýjum löngu eftir að önnur sápuefni mundu hafa slitið þeim til agna, því Lux-löðr- ið er hreint eins og nýjasta regnvatn. — 011 óhrenindi hverfa af liverjum silkiþræði fyrir hinu mjúka Lux-löðri. — Þeir halda hinum upprunalega gljáa. — Lux gerir sokkana yð- ar aftur sem nýja, og eykur endingu þeirra. Hafið því Lux ávalt handbært. LUX W-UX Litlir pakkar 0.30 Stórir pakkar 0.60 LEVER BROTHERS LlMITED, PORT SUNLIGHT.BNCLAND. Það sem þolir vatn þolir Lux. VIV I2I-IO LÉVER BR07HFRS UMITED. PORI SIINllGHT. ENGlANft * Allt meö íslenskiiiii skipuni! * sem líður reyfarahugmyndum yðar og fjar- stæðilegum vonum. Kvenfólkið tekur að sér að fá yður á aðra skoðun. Þjer hittið eitt kvöld drotningu drauma yðar, og þjer hugsið, að þetta sje sú ást, sem vara muni um alla eilífð. Fljótt komist þjer að raun um, að sú eilífð varir sex daga, sex vikur, í mesta lagi ár, og svo: tjaldið fellur! Leik- urinn er á enda. Einu sinni enn sannið þjer það, að la donna é mobile*) og þeir sem taka ástina í alvöru eru annaðhvort sjónleysingjar eða skýjaglópar. Roberts hætti. Hann fann, að hann hafði talað af meiri ákefð en hans var venja. Hann kveikti i pípunni sinni með kolþvita sínum, og þar sem Nicholson svaraði engu hjelt hann áfram afsakandi: ----Raunar er þetta, sem jeg segi, ekki nema ein skoðun af mörgum. Og jeg ætla ekki að reyna að sannfæra yður. — Yður mun heldur ekki takast það, höfuðsmaður. ----- Mig grunar það og. Ef skoðanir okkar í ástarmálum væru ekki okkar friðhelgasta eign, nú til hvers væri þá eiginlega okkar óháða einstaklingseðli? I siðmenningar- löndunum klæðast menn samskonar fötum, sniðnum eftir órjúfanlegum reglum, menn hlita sömu lögum og þjóðskipulagi, jafnvel hugsanir manna eru mótaðar af sömu erfða- kenningum, menn borða sama mat og leika sömu leiki, menn apa hver eftir öðrum með hlægilegri nákvæmni. Ef við hefðum nú ekki einu sinni rjett til að elska liver á sína vísu, værum við ekkert annað en vjel- brúður í hinum mikla basar mannkynsins. Nicholson undirforingi stóð upp. — Þjer hafið rjett að mæla, höfuðsmað- ur. Þessvegna er árangurslaust að deila um þetta mál. Látið mig um glópsku mina og terið sjálfur einn af þeim hyggnu. Nicholson. Yður liefir þó ekki mislik- að? Jeg hefði óskað, að fyrsta verulega sam- lalið milli okkar yrði ekki rangskilið af yður, og ... . Nei, nei. Þegar öllu er á botninn hvolft er hjer ekki um skoðanaágreining að ræða. En það eru ellefu ár á milli okkar. Það nægir .... Með leyfi? Jeg ætla npp á her- hergi mitt að skrifa brjef. — Gerið svo vel. Nicholson undirforingi fór út. Roberls tæmdi bolla sinn, sló pípunni við ofninn, fór líka til herbergis síns og skaut slag- brandi fyrir dyrnar. Hann var orðinn rólegur eftir þessar ó- venjulegu kappræður. Hann furðaði sig meira að segja á því, að hafa talað í þessum tón. Ilvað varðaði liann svo sem um það, hvort þessi ungi fjelagi hans tæki ástina hátíðlega? Hversvegna las hann þetta yfir honum? Hversvegna greip hann þessi böl- sýni? Af því að hann hugðist hafa vissu íyrir því, að Alba hefði tekið annan elsk- liuga í hans stað? Og ef enginn fótur væri nú fvrir því? Ef til vill lifði hún kyrlátu lífi með manni sínum, án þess að hyggja á frekari æfintýri, með þá einu ósk að gleyma ástinni, sem fjarlægðin hafði gert ómögu- lega. Hann hafði verið of fljótur á sjer i örvæntingu sinni að gera henni upp óstöð- uglyndi, sem ekkert rjettlætti. Eða hvaða sannanir hafði liann? Engar. Hann fjekk alt i einu samvisku af að hafa verið ósanngjarn gagnvart henni. Lykl- arnir hjengu í borðskúffunni. Hann tók þá og opnaði handtöskuna. Hann tók upp myndina, sem hafði legið þar nokkra daga, og virti liana enn fyrir sjer. Hið þögula til- lit stóru, svörtu, flosmjúku augnanna virt- ist ásaka liann fyrir hans vondu hugsanir. Og hann sá eftir öllu saman. Hann mintist þess, sem liann hafði sagt við Nicholson. Það hefði hann nú gjarnan viljað taka aft- ur. Þá kysti hann myndina og lmgsaði: „Kæra, hafi jeg móðgað þig, þá fyrirgefðu mjer, — vegna þess að jeg elska þig“. VII. J>essa nótt grúfði dauðakyrð vl'ir daln- um. Hvirfilhylurinn í vikunni á undan hafði sópað alt hjeraðið frá Malisud til Þeshawar, alla leið til Indusbakka og hafði gefið frá sjer seinustu andvörpin í gegn um járngrindur hrúarinnar við Attok. Loks var nú komið logn aftur. Loft og jörð höfðu gert með sjer vopnahlje til bráðabirgða. Til allrar ólukku leit ekki út fyrir að mennirnir myndu fara að þessu dæmi. Tahsildar’num höfðu horist tíðindi með tveim njósnurum, sem greiddar voru 50 rúpíur á mánuði fyrir að lmýsast eftir við- ræðuin mulla’anna*) í nágrenninu. Menn voru farnir að ákæra á laun ensk-indversku stjórnarvöldin fyrir að styðja kröfur nýs konungsefnis, sem kallaði lil ríkis í Kabúl. Hverjar yrðu afleiðingarnar? Enginn gat sjeð það fyrir. En það var undir öllum kringumstæðum hyggilegra að treysta ekki um of á liinn ótrygga frið. Roberts hafði beðið Nicholson að vaka til dagmála og híða þriðja njósnarans, sem sem sendur hafði verið í leynilegum erind- um. Það var úlfaldareki frá Kandaliar, sem bera mátti fult trausl til, enda hafði rás viðburðanna nær nær því ávalt staðfest upplýsingar hans. Eftir margra stunda andvöku sofnaði Roberts loksins í litla járnrúminu sínu. Kl. um eitt var hann vakinn af tahsildar’num, sem gekk hljóðlaust inn í herbergið hans. — Höfuðsmaður .... Jeg verð að láta yður vita að jeg var nú að heyra tvö byssu- skot mjög langt i burtu í suðaustri. En nú er það einmitt þar um slóðir sem sendillinn -) ít. '= koaa er kvikul (úr Rigoletto). ■) Múhameðsprestar hjá Afgönmn.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.