Fálkinn - 27.02.1932, Qupperneq 1
16 siður 40 aura
9,
Reykjavík, laugardaginn 27. febrúar 1932
V.
Fyrir tiittugu árum tálcst manni í
fyrsta sinn að komast fljúgandi
suður yfir Alpafjöll. Mörgum er
þetta flug minnisstætt vegna þess
Iwe raunalega því lauk. Flugmað-
urinn, franskur garpur þá voru
nær allir ftugmenn, sem nokkuð bar
á franskir — var kominn yfir skarð-
ið oy hafði því sigrast á fjallinu, en
í dalnum að sunnanverðu tók vind-
Iwiða vjelina og steypti henni til
jarðar og Ijel flugmaðurinn þar líf
sitt. .liann .hjet .Chaves og varð
mörgum harmdauði, því að hann
var talinn meðal efnilegustu flug-
manna, sem þá voru uppi. Gengu
sögur um það, að keppinautar hans
um verðlaunin, sem heitiö hafði
verið fyrir fyrsta flug yfir Alpa-
fjöll, hefðu mútað vjelfræðingi hans
til þess að gera vjelina veikari fyrir
en vera þurfti, en aldrei hefur það
sannast. Talandi tákn um fram-
farir fluglistarinnar er það, að nú
hafa menn árum saman flogið yfir
Alpafjöll og þykir það leikur einn,
þrátt fyrir vindhviðurnar. Og meira
að segja hcifa orðið svo miklar um-
bætur á lögun og útbúnaði flugvjel-
anna, að menn sækjast einmitt eft-
ir misvindi til þess að fljúga i. Á
þetta einkum við um þái, sem stunda
svifflug áin hreyfils. Flugmenn þess-
ir, sem nota loftstraumana sjálfa
sem hreyfiafl, byrjuðu með því að
fara .á .fleygiferð .fram af háum
fellum og svífa i loftinu, en nú eru
þeir farnir að leika þessar listir sín-
ar suður í háfjöllum og aka svif-
flugum sínum eins og sleða á fleygi-
ferð niður snjóbrekkurnar uns þær
lyftast frá jörðu og fljúga eins oy
fuglinn yfir hengiflugum og hyl-
djúpum dölum og gljúfrum. Og
flugmennirnir nota sjer kastvind-
ana, sem urðu Chaves að bana, til
þess að láta þá lyfta sjer upp í hæð-
irnar og svífa þannig klukkutímum
saman yfir þessum hrikalegu fjalla-
slóðum. Svo gott vald hafa þeir nú
orðið yfir flugvjelunum. Hjer sjest
sviffluga, að ofan á flugi, að neðan
í lendingu.