Fálkinn - 19.03.1932, Side 1
16 siður 40 aura
Reykjavík, laugardaginn 19. mars 1932
KÍNVERSKIR FLÓTTAMENN.
Á forsiðunni í síðasta blaði Fálkans var mynd af japanskri járnbrautarstöð, þar sem æstur almúgi er að kveðja hermenn er
leggja af stað til orustustöðvanna. Þessi mynd er líka i ælt við styrjöldina en hefir aðra sögu að segja. Hún er tekin á kín-
verskri járnbrautarstöð og sýnir, hvar verið er að flytja ldnverska alþýðu á burt frá vígstöðvunum við Peping, til þess að
forða henni undan ógnum styrjaldarinnar. Vitanlega komast ekki nema fáir undan af öllum þeim fjölda, sem komast þyrfti,
því að járnbrautir Kínverja eru ófullkomnar. Og svo er annar vandinn: hvert á að flytja þetta fólk, svo að það verði óhult
fyrir morðtækjum „gula Prússans“, sem er margfalt betur vigbúinn og líklegur til þess að geta flætt yfir landið fljótar en
hinir geta flúið undan. Og svo eru Kínverjar mergsognir fyrir, af borgarastyrjöldum, vatnsflóðum og hungursneyð.