Fálkinn - 28.05.1932, Side 3
F Á L K I N N
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltestcd.
Aðalskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjavík. Simi 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
Blaðið kemur út hvern laugardag.
Áskriftarverð er kr. 1.70 á mánuði;
kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Altar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 atira miliimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Skraddaraþankar.
Máltækið segir, að matur sje
manns megin. Vist er það satt, en
vert er að minnast þess í því sam-
handi, að „of mikið af öllu má þó
gera“, eins og stendur i Aldamóta-
ljóðunum gamansömu.
Ileimurinn er öfgafullur. Siima of-
elur hann, sjálfum þeim til heilsu-
spillis og óhægðar en aðra sveltir
hann. Þeim er vorkunn, sem strit-
ast undir helmingi meiri líkams-
þyngd en náttúran hefir ætlað þeim.
En i flestum tilfellum er þetta sjálf-
um þeim að kenna. Þeir hafa ekki
kunnað magamál sitt. Þeir hafa gert
magann að guði sínum, dekrað við
hann og ekki kunnað að hætta að
snæða, þegar þeir voru orðnir sadd-
ir. Undantekningarnar eru að visu
lil, þær sem eru af ósjálfráðum og
óheilbrigðum orsökum. En þær eru
i minni hluta. Offitan er oftast nær
komin af því, að menn jeta meira
en þeir vinna.
Hinsvegar eru svo þeir mennirn-
ir, sem strita undir vinnunni og' bera
ekki meira úr býthm en sem nægir
því að draga fram lifið. En þær und-
antekningar eru lika til, að sumir
erfiðismenn eru feitir. En þær und-
antekningar eru fáar.
Tilhneigingin til þess að kýla
vömb sína er rik i veröldinni og
hefir valdið miklu tjóni. Ef allir
lifðu við jafnan kost þyrfti enginn
að liða hungur en öllum gæti liðið
vel. En misskiftingin á matnum er
aðalástæðan til þess böls, sem heim-
urinn stynur undir. Ef allir kynnu
magamál sitt væri heimurinn miklu
sælli en hann er, bæði þeir sem jeta
of mikið og eins hinir, sem fá of
litið. Nú sálast fjöldi manna af við-
urværisskorti en aðrir stytta æfi
sína með of miklu viðurværi og
gera sjer lífið leitt og erfitt.
Á þeim tímum sem nú standa yfir
er það einmitt athugavert, hvort ekki
væri rjett að draga úr meini ofáts-
ins. Þjóðarhagnum væri bót að því
að dregið væri úr innflutningi
ýmsra dýrra fæðmegunda, sem þeir
er efnin hafa nota sjcr til bragð-
bætis. Til kaupstaðanna og þá eink-
um til Reykjavíkur flyst mikið af
ýmsum fæðutegundum frá útlöndum,
sem ofur vel er hægt að vera án.
Sveitabúar eru alveg án þeirra og
komast af eins og hinir eða verða
að komast af án þess, því að það er
elnahag þeirra ofvaxið að kaupa það
og lifa samt.
Það er þessvegna rjettmætt að
leggja hömlur á innflutning þessarar
vöru. Hún er ónauðsynleg og kemur
cngum að gagni, sist þeim sem nota
hana.
Dr. theol. Jens NSrregaard
prófessor
[Ijer héfir dvalist um hríð einn
af lærðustu kirkjusagnfræðingum
Xorðurtanda, dr. theol. Jens Xörre-
gaard prófessor við háskóla Iihafn-
ar. Er hann maður á hesta aldri, að-
eins ðð ára og ágœtur vísindamaður.
Ilann hefir flutt hjer á háskólanum
!l fgrirlestra. Voru 5 jieirra um þró-
unarferil Ágústínusar kirkjuföður, 3
um safnaðalíf í fornkirkjnnni og 7
um . borgarrústir .i .Norður-Afríkn.
Vou þeir allir, sem 'vsenta mátti á-
gætir, því að dr. Nörregaard er orð-
lagður fgrirlestrar-maður. Sem vís-
Steinunn Odds-
dóttir og Ólafur
Ketilsson frá Kal-
manstjörn eiga
t/0 ára lijúskapar-
afmæli í dag.
Ennfrernur liefir
Ólafur verið
hreppstjóri í h0
ár.
indamaður hefir hann sjerstaklega
fengist við rannsóknir varðandi
merkilegan æfiferil og andlega þró-
un Ágiistínusar, enda er hann þar
lil brautrgðjenda talinn. Ilann hefir
ferðast viða um lönd og dvalizt lang-
dvölum á Rretlandi, Frakldandi, ítal-
iu og Norður-Afriku. Kann hann þvi
l'rá mörgu að segja. Nn hcfir hann
einnig viljað kgnnast íslandi. Hefir
hann þegar farið til Þingvalla, npp
i Rorgarfjörð — (að Regkholti,
Ilvannegri og Rorg á Mgrum) og
austur að Sogsfossum. Sjóleiðis fór
hann til ísafjarðar og Akuregrar og
er nú á ferð mistur í Rangárvalla-
sgslu (er ferðinni aðallega heitið að
Hlíðarenda og þaðan inn á Þórs-
mörk). Og enn er í áformi að hann
bregði sjer austur að Gullfossi. Hann
liefir verið mjög veðurheppinn síð-
an hingað kom, enda lætur hann
hið besta gfir ferðinni, fegurð lands-
ins og áislúðlegtim viðtökum.
Allir, sem kgnst hafa hinnm góða
gesti munn lengi minnast hans mcð
lilgjum hug.
fícinkastjóri fí jarni Jónsson, Ak-
tireyri, tiard sextugur þ. J't. þ. m.
Var hann skipaðnr útibústjóri
íslandsbanka á Akureyri og hef-
ir gegnt því sarfi síðan. Er
fíjarni óvenjulega vinsæll mað-
ur.
Þorsleinn Jónsson á Grund,
Akranesi, verður 7í> ára V júní
n. k.
Ekkjan Gróa Sigurðardóttir frát
Austurvöllum, Akranesi, varð
70 ára 16. þ. m.
Jón Ásmundsson trjesmiður,
Bragagötu 31, varð sextugur
18. maí.
Gullbrúðkaup eiga í dag frú
Ilelga .1 ónsdáttir og Úlafur Jóns-
son fiskimalsmaður, Vesturg. 35.
„Karlinn i kassanum“ hefir hafl
mikið aðdráltarafl á Regkjavikurbúa
og fglla þeir leikhúsið hvað eftir
annað, þrátt fgrir kvöldbirtu og góð-
viðri. Mgndin hjer að ofan sýnir,
hvernig teiknarinn hugsctr sjer karl-
inn, þegar hann vippar sjer á fjöður
npp úr leikhúsinu.
er viðlesnasta blaðið.
er besta heimilisblaðið,